Hafnfirðingur - 15.06.1946, Síða 1
Ritstjóri og
ábyrgðarmaður
Jón Helgason
Jón Helgason;
Skúli Guðmundsson:
SÖKNARGÖGN Á HENDUR FRAM-
BJÖÐENDUM RíKISSTJÖRNARINNAR
i.
Almennar kosningar til al-
þingis fara fram á sunnudaginn
kemur, svo sem allir vita. Allir
hinir fjórir stjórnmálaflokkar
landsins bjóða fram í nær öll-
um kjördæmum í landinu og
um þessai mundir ber ekki á
öðru meira í blöðum, útvarpi og
tali manna á meðal en stjórn-
málaumræðum og stjórnmála-
áróðri í margvíslegum myndum
— sumum viðsjárvc”ðum í landi,
þar sem menn vona, að lýðræðið
megi þróast sem bezt, þjóðinni
tíl aukinnar giftu.
Það hefir svo ráðizt, að ég
yrði frambjóðandi Framsóknar-
flokksins i Hafnarfirði. Mér var
það ekki óljúft. Ég trúi því, að
ég sé að berjast fyrir góðan mál-
stað. En Framsóknarmenn eiga
að ýmsu leyti örðugri vígstöðu í
Hafnarfirði en flestum öðrum
kjördæmum landsins sökum
þess, að þeir hafa aðeins tvisvar
áður boðið þar fram við
þingkosningar, en aldrei við
bæjarstjórnarkosningar. Stefna
Framsóknarflokksins og ðtarf,
nú og áður, er því ekki eins vel
kunnugt Hafnfirðingum og
fólki í þeim kjördæmum, þar
sem betur hefir verið hlúð að
vexti hans. Þar við bætist svo
magnaður áróður fjölmennra
andstæðinga til beggja hlíða, oft
rekinn með óvandaðri aðferð-
um en æskilegt væri, smn ekki
er þó ætíð flokkana sjálfa um
að saka, heldur miklu fremur
einstaklinga, sem ekki kunna
sér hóf í pólitískri baráttu. Af
þessum sökum hefi ég kosið að
gefa þetta blað út, svo ég geti
með rökum rætt um ágreinings-
málin við hvern þann, er virðir
kosningarétt sinn þess, að hann
vilji kynna sér sóknar- og varn-
argögn fleiri en eins aðila, og
hafa það síðan, er honum virð-
ist sannara og farsælla. Þegar
sá vilji er almennt fyrir hendi,
ætti allir flokkar og frambjóð-
endur að geta vel unað
dómsorði fólksins, á 'hverja
lund sem það svo verður. Þá eru
uppfylltar þær skyldur, sem lýð-
ræðið leggur kjósendunum á
herðar. Þar á móti er þá skylt
að komi drengilegur vopnaburð-
ur og skilmerkileg rökfærsla
þeirra, er við eigast.
II.
Rikisstjórn sú, sem nú situr,
var mynduð haustið 1944, eftir
langar málaleitanir og ýmsar
tilraunir ítil stjórnarmyndunar.
Hún hefir því farið svo lengi
með völd, að séð er, að verulegu
leyti, hver er geta hennar og
farsæld, og því tímabært að
gera sér grein fyrir því, hvort
æskilegt sé fyrir þjóðina, að hún
fari lengur með völdin og rétt
að veita frambjóðendum hennar
brautargengi.
Framsóknarmenn gátu ekki
tekið þátt í stjórnarmynduninni,
þótt svo færi, að hinir flokkarn-
ir þrír gerðu það, sumir þeirra
að vísu með mikilli tregðu og
ekki nærri því öllu atkvæða-
magni sínu. Innan Alþýðu-
flokksins munaði mjög mjóu, að
stjórnarsamvinnunni við komm-
únista og íhaldsmenn yrði
hafnað, og við framboðin í vor
urðu fylgismenn stjórnarinnar
sums staðar að þoka úr örugg-
um sætum fyrir eíndregnum
andstæðingum hennar, þótt ekki
væri i Hafnarfirði. Svipað er
ástatt í Sjálfstæðisflokknum.
Sumir þingmenn hans hafa alla
tíð verið í andstöðu við stjórn-
ina, sem formaður flokksins
veitir þó forstöðu, og við fram-
boðin í Reykjavík varð stjórn-
ardeildin að kaupa sér fylgi
andstöðuarmsins því dýra verði,
að sjálfur borgarstjórinn þokaði
í vönlítið sæti fyrir einum and-
stæðingi stjórnarsamstarfsins.
Á kosningamáli Morgunblaðsins
og erindreka Sjálfstæðisflokks-
ins heitir þetta eining. En það er
að minnsta kosti eining um eitt-
hvað annað en málefni i venju-
legum skilningi. Það væri þá
helzt eining um hag heildsal-
anna. Hingað til hefir það
þótt farsælast, að stjórn-
málabaráttan væri málefna-
barátta. í því bandaríki
allra stétta, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn læzt vera virðist
annað þykja mikilvægara en
heilsteypt afstaða í málum al-
mennings.
Þrátt fyrir þennan mikla
skoðanamun um tilverurétt rík-
isstjórnarinnar innan tveggja
stuðningsflokka hennar, hefir
það verið mjög lagt Framsókn-
arflokknum til lasts, að hann
gat ekki tekið þátt i stjórnar-
mynduninni. En sé afstaða hans
álasverð, þá eru þó fleiri undir
sömu sök seldir, eins og ég hefi
þegar gert grein fyrir. En að
minu viti er hér ekki um sök að
ræða, heldur þá einu afstöðu,
s_m staðreyndanna sjálfra
vegna er skylt að taka, og' sönn-
unargagn mitt í þvi máli er ein-
mitt ferill ríkisstjórnarinnar
sjálfrar. Okkur Framsóknar-
mönnum virtist af glapræði tíl
hennar stofnað, og þann sama
ógæfusvip beri öll hennar ganga
fram á þennan dag. Mun ég nú
rökstyðja þetta nánar.
III.
Meginorsök þess, að Fram-
sóknarmenn gátu ekki gengið til
þessarar stjórnarmyndunar, var
sú, að hinir flokkarnir vildu ekki
gera neitt til þess að skapa þann
grundyöll, sem heilbrigt fjár-
mála- og athafnalíf í landinu
verður að hvila á, enda þótt þeir
hefðu áður haft stór orð um
bölvun verðbólgunnar. Þeir
vildu ekki neinar ráðstafanir
gera til þess að vinna bug á dýr-
tíðinni og verðþenslunni í land-
inu, sem þá þegar var orðin
ískyggilega mikil — hafði hækk-
að um 89 stig í átta mánaða
stjórnartíð Ólafs Thors sumarið
1942, er núverandi stjórnar-
flokkar voru að knýja fram
kjördæmabreytinguna. Það var
sá skattur, er athafnalífið og al-
menningur i landinu hafði orðið
að greiða fyrír þær aðgerðir,
sem þó virtist að hefðu að skað-
lausu mátt blða, þar til fram
fer sú allsherjarendurskoðun
stjórnarskrárínnar, er nú stend-
ur fyrir dyrum. Siðan núverandi
stjórn var mynduð hefir svo
vísitalan enn hækkað um 19
stig, og taldi þó í vetur einn af
fremstu mönnum Alþýðuflokks-
ins og bæjarfulltrúi hans í
Reykjavík, Jón Blöndal hag-
fræðingur, sem sjálfur á sæti í
kauplagsnefnd, að hún væri
fölsuð um 30—40 stig. Hjá utan-
þingsstjórninni, er samt þótti
aðgerðalítil, hækkaði hún aðeins
um eitt stig.
Framsóknarmenn álitu, að
heilbrigt fjármálaástand í land-
inu væri frumskilyrði þess, að
auður sá, sem hér hefir borizt á
land á stríðsárunum og berst
sennilega enn um stund meðan
hungraðar þjóðir vilja kaupa
framleiðslu okkar afarverði sér
til lífsbjargar, nýttist landi og
þjóð til blessunar. Það væri
grundvöllurinn, sem allar fram-
farir yrðu að byggjast á, og þá
væri líka hægt að gera miklu
meira fyrir sömu fjárhæð. Ella
ræki að því áður en langir tímar
liðu, að við yrðum ekki sam-
kepnisfærir á erlendum mark-
aði, aðrir boluðu okkur út, at-
vinnulífið í landinu drægist
saman, þegar hallarekstur blasti
við, og það bitnaði siðan vita-
skuld á þjóðinni allri og hverj-
um þjóðfélagsþegni sérstaklega.
Án blómlega atvinnulífs getur
engin þjóð komizt vel af. Fram-
leiðslan er sú auðsuppspretta,
sem allir njóta af, hvaða störf
sem þeir annars vinna.
Á þessum misserum, sem liðin
eru siðan stjórnin var mynduð,
hafa svo ýmsir, þvert ofan i fyrri
ummæli, reynt að blekkja
launastéttir landsins með þeim
falsrökum, að verðbólgan sé ekki
óæskileg, því að hún dreifi
stríðsgróðanum. Þótt þessi
kenning væri rétt, sem ekki er,
þá hefðu verið margar giftu-
drýgri leiðir til þess. Það, sem
hér ber á milli, er ekki það,
hvort almenningur í landinu
eigi að fá þau laun fyrir vinnu
sina, er hæst verða goldin, án
þess að gengið sé of nærri þeim,
sem greiðslurnar inna af
höndum, og þeirra tekjustofn-
um. Það er rangt, ef einhver ber
það fram. Framsóknarflokkur-
inn ann hinum starfandi mönn-
um góðra launa. Það er eitt af
meginstefnuskráratriðum hans.
að þegnarnir eigi við sem jöfn-
ust kjör að búa og hið vinnandi
fólk, hvort heldur er við erfið-
isvinnu eða í opinberri þjón-
ustu, beri ekki skarðan hlut frá
borði. Með því að halda verð-
bólgunni í skefjum og nýta til
almennra og raunverulegra
kjarabóta þann óhófsgróða, er
nú gengur til einstakra manna,
var hægt að gera hvort tveggja,
að skapa alþýðlega velmegun í
bráð og tryggja afkomu þjóðar-
innar í lengd.
Það, sem hér hefir gerzt, er
einfaldlega það, að stjórnarliðið
hefir gripið til þess örþrifaráðs,
að telja verðbólguna í landinu
til happa, til þess að leiða at-
hygli fólksins frá þeirri hættu,
er af verðþenslunni stafar, og al-
gerðum skorti á raunhæfum að-
gerðum af hálfu stjórnarinnar.
Kaupmáttur krónunnar hefir
rýrnað jafnt og þétt, en það átti
að blekkja fólk með tölum,
sem alltaf hafa verið að hækka.
Það var skýið, sem það átti að
svífa á í hæðirnar.
En þessí gerningaþoka hefir
ekki villt nema fáa. Það er
staðreynd, sem yfirleitt er mjög
augljós og fólk finnur glöggt og
sér, að það eru aðeins fáir menn,
sem hafa grætt á verðbólgunni,
og þá fyrst og fremst heildsala-
stétt landsins, er hefir getað
margfaldað gróða sinn í skjóli
hennar. Gylfi Þ. Gíslason, efsti
maður á lista Alþýðuflokksins í
Reykjavík, gat þess í útvarps-
umræðum nýlega, að fyrir dreif-
ingu fata, matvöru og skófatn-
aðar aðeins gyldi hver fjölskylda
milliliðastéttinni skatt, er nem-
ur 2500 krónum á ári, en þó
heimta helldsalarnir mun þyngri
skatta á öðrum sviðum. Fulltrú-
ar og ráðherrar Alþýðuflokksins
og kommúnista hafa ekki aðhafzt
neitt raunhæft til þess að bæta
úr þessu. í annan stað eru svo
þeir, sem rekið hafa ýmis konar
braskstarfsemi, kaup og sölur
verðmætra eigna. Hin sífellda
verðhækkun, húsnæðisskortur
og fleira, hefir fært þeim ó-
mældan gróða, sem meiri er en
komið hefir fram í dagsljósið.
Verkamenn og launamenn
haaf hins vegar borið skarðan
hlut frá borði, og þýðingar-
mestu atvinnugreinarnar hafa
átt við vaxandi erfiðleika að
stríða. Þetta hefir oft og víða
komið fram. Nægir í því sam-
bandi að minna á lýsingu Dags-
brúnarverkamanna á aðstöðu
sinni í vetur, samþykktir verka-
mannafélagsins Baldurs á ísa-
firði og ályktanir síðasta Fiski-
þings, og ýmsra samtaka út-
vegsmanna. ,,Kjarabæturnar“,
sem kommúnistar kalla svo,
hafa reynzt ærið snubbóttar,
þegar öll kurl komu til grafar
— „dreifing stríðsgróðans“ ekki
verið það, sem látið var í veðri
vaka. Hinar köldu staðreyndir
töluðu skýru máli, og tala enn.
Þær segja, að sú kauphækkun,
sem orðið hefir, renni jafnóð-
um í súginn vegna síaukinnar
verðbólgu. Þær segja, að at-
vinnuvegirnir, undirstaða allrar
velmegunar i landinu, séu einn-
ig lamaðir af hennar völdum —
og þó stórum meiri vá fyrir
dyrum. 1
IV.
Auglýsingaskrum það, sem
ríkisstjórnin viðhafði, þegar hún
settist að völdum, var svo mik-
ið, að slíkt var áður óheyrt á
þessu landi. Hér átti að skapa
nýjan himin og nýja jörð næst-
um því. Enn bergmálar þessi
hallelújasöngur af og til, þegar
mikils þykir við þurfa. Gætnum
mönnum og hófsömum þykir
hér lítt af setningi slegið. Al-
mennt munu íslendingar telja
það betri reglu að lofa ekki of
miklu, en efna nokkurn veginn
það, sem heitið var, heldur en
að lofa gulli og grænum skógum,
meðan vanséð er um allar efnd-
ir. Þeim finnst, að sú regla eigi
einnig að gilda í stjórnmálum.
Framsóknarmenn gátu ekki
tekið þátt í þessu skrumi.
Þeir vildu ekki byggja á
sandi verðbólgunnar. Þeir vildu
ekki bera ábyrgð á því, að allt
ræki á reiðanum. Fyrir þá af-
stöðu hafa fylgismenn stjórnar-
innar sýknt og heilagt borið þá
þeim brigzlum, að þeir væru aft-
urhaldsmenn, er vildu keyra allt
í kút eymdar og örbirgðar. Slík-
um brigzlum ætti raunar ekki
að þurfa að svara, því að þau
falla um sig sjálf, en vegna
þeirra, sem beittir hafa verið
einhliða áróðri um langa stund,
skal það þó gert.
Ég vil fyrst benda á sögu
flokksins og fortíð. Verkin bera
jafnan raunhæfastan vitnis-
burð. Framsóknarflokkurinn
hófst fyrst til valda eftir kosn-
ingarnar sumarið 1927. Ég hygg,
að því verði ekki með rökum
hnekkt, að þá hefst mesta fram-
faratímabil í sögu íslands, ein-
mitt fyrir forgöngu Framsókn-
arflokksins, þótt þess sé skylt að
geta, að Alþýðuflokkurinn
studdí hann eftir þvi sem geta
var tif. Hverju stórvirkinu af
(Framhald af 3. tlðu)
Kosningarnar
30. júní
í flestum kjördæmum lands-
ins hafa allir stjórnmálaflokk-
arnir menn í kjöri við þess-
ar kosningar, stjórnarflokkarnir
þrír og andstöðuflokkur stjórn-
arinnar, Framsóknarflokkurinn.
í kosningunum verður úr því
skorið, hvort sú ríkisstjórn, sem
hér hefir setið síðan haustið
1944, skuli fara með völd áfram,
eða breyta skuli um stefnu og
stjórnarhætti.
Á valdatíma núverandi ríkis-
stjórnar hefir verðbólgan aukizt
til stórra muna. Vísitala fram-
færslukostnaðar er nú 20 stig-
um hærri en í byrjun stjórnar-
tímabilsins, og þó hafa verið
greiddir miljónatugir af ríkisfé
til þess að halda henni niðri.
Dýrtíðin hefir valdið því m. a.,
að bátaútvegurinn hefði stöðv-
ast á s.l. vetri, ef ekki hefði ver-
ið veitt ríkistrygging fyrir verði
á nokkrum hluta af sjávaraf-
urðunum, og er þó enn geysi-
hátt verð á þeim vegna mat-
vælaskortsins í heiminum. —
Landssamband ísl. útvegsmanna
lýsti því í bréfi til stjórnmála-
flokkanna í nóvembermánuði s.
1., að hagur smáútgerðarinnar
hefði sífellt farið versnandi síð-
an árið 1942. Af völdum dýrtíð-
arinnar, og einnig vegna mikill-
ar eyðslu á ríkisfé, er hagur
ríkissjóös nú þannig, að fjárlög
eru áfgreidd með nær 18 milj. kr.
greiðsluhalla. Dýrtíðin hefir
leikið verkamenn þannig, sam-
kvæmt áliti trúnaðarráðs Dags-
brúnar í Reykjavík, að þrátt
fyrir þær grunnkaupshækkanir,
sem orðið hafa, veitist verka-
mönnum, sem eiga við lægsta
grunnkaupið að búa, æ erfiðara
að framfæra fjölskyldur sínar.
Og forseti Alþýðusambandsins,
sem nú er frambjóðandi í Hafn-
arfirði fyrir einn af stjórnar-
flokkunum, sagði í ávarpi sínu
í tímariti Alþýðusambands i
vetur á þessa leið:
„Fyrir vanmátt og úrræða-
leysi valdhafanna hefir ósam-
ræmið milli verðlags og kaup-
gjalds verið svo launþegun-
um í óhag vegna falskrar
vísitölu og svikins verðlags-
eftirlits, að kauphækkanir
þær, sem verkalýðurinn náði
1942 og síðar 1944 eru að
engu orðnar“.
Það er vissulega ekki glæsí-
legt að kjósa þennan frambjóð-
anda eða aðra frambjóðendur
stjórnarflokkanna, sem að hans
eigin dómi eru vanmáttugir og
úrræðalausir í stærstu viðfangs-
efnum á sviði stjórnmálanna.
En það eru líka fleiri en for-
seti Alþýðusambandsins, sem
hafa vitnað í svipuðum tón um
stefnu stjórnarinnar. Einn af
forystumönnum Alþýðuflo'kks-
ins, Jón Blöndal hagfræðingur,
hefir réttilega lýst henni sem
hreinni fjárglæfrastefnu. Með
stefnu sinni hefir stjórnin unn-
ið að því að gera þá ríku ríkari
en þá snauðu snauðari, en þetta
sagði Haraldur Guðmundsson
alþm., í þingræðu í marz 1942,
að myndi verða afleiðing af
vextj dýrtíðarinnar. Hann
reyndist sannspár um það at-
riði.
Forvígismenn Sjálfstæðis-
flokksins hafa líka oft og mörg-
um sinnum sagt sitt álit á dýr-
tíðarstefnu stjórnarinnar. Ann-
að aðalblað flokksins, Vlsir,
segir 20. maí í vor:
„Sú stefna, sem nú er ráð-
andi í fjármálum landsins,
leiðir til stórkostlega aukinn-
ar verðþenslu og stofnar öllu
fjármálakerfi þjóðarinnar í
hættu“.
Ennfremur:
„Allir atvinnuvegir þjóðar-
innar eru byggðir á sandi,
meðan hún hefir ekkert fast
undir fótum í dýrtiðarmál-
unum“.
Og sjálfur forsætisráðherr-
ann hefir sagt, að sá, sem
stuðlaði að aukinni dýrtið, væri
„böðull framleiðenda, launa-
manna og raunar alþjóðar".
Ekki ófögur lýsing á stjórninní,
sem hann sjálfur hefir myndað.
Það er raunar óþarft að visa
(Framhald d 4. ttOuf.
í Hafnarflrði við alþingiskosningarnar 30. júní 1946.
Emil Jónsson
frambjóðandi Alþýðuflokksins.
X Jón Helgason
frambjóðandi Framsóknarflokksins.
Hermann Guðniundsson
frambjóðandi Sósíalistaflokksins.
Þorleifur Jónsson
frambjóðandi Sjáifstæðisflokksins.
A. Landlisti Alþýðuflokksins
B. Landlisti Framsóknarflokksins
€. Landlisti Sósialistaflokksins
1). Landlisti Sjálfstæðisflokksins
Þannig lítur kjörseðillinn út, þegar frambjóðandi Framsókn-
arfíokksins, Jón Helgason, hefir verið kosinn.
LAHDSBÍIASAFN
202622
ÍSLANGS