Nesfréttir - 01.03.2022, Blaðsíða 8
8 Nesfrétt ir
Leikskóli Seltjarnarness
Innritun fyrir skólaárið 2022-2023
Innritun barna fyrir skólaárið 2022-2023 fer fram í aprílmánuði nk. Til að eiga rétt á
leikskóladvöl þarf barn að eiga lögheimili á Seltjarnarnesi. Sækja skal um leikskóladvöl á
heimasíðu Seltjarnarnesbæjar www.seltjarnarnes.is gegnum Mínar síður. Mikilvægt er að
umsóknir hafi borist fyrir 31. mars nk. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða afgreiddar
eftir því sem leikskólapláss losnar.
Nánari upplýsingar og aðstoð við innritun veitir Sonja Jónasdóttir sonja@seltjarnarnes.is
Skólaskrifstofa Seltjarnarnesbæjar
Ungbarnaleikskóli Seltjarnarness
Innritun fyrir skólaárið 2022-2023
Innritun barna fyrir skólaárið 2022-2023 fer fram í aprílmánuði nk. Til að eiga rétt á
leikskóladvöl þarf barn að eiga lögheimili á Seltjarnarnesi. Sækja skal um leikskóladvöl á
heimasíðu Seltjarnarnesbæjar www.seltjarnarnes.is gegnum Mínar síður. Mikilvægt er að
umsóknir hafi borist fyrir 31. mars nk. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða afgreiddar
eftir því sem leikskólapláss losnar.
Nánari upplýsingar og aðstoð við innritun veitir Harpa Frímannsdóttir,
harpa.frimannsdottir@seltjarnarnes.is.
Skólaskrifstofa Seltjarnarnesbæjar
Ráðherra heimsækir Náttúruhúsið í Nesi
Lilja Alfreðsdóttir mennta-
og menningarmálaráðherra
heim sótti nýlega Náttúruhúsið á
Seltjarnarnesi, þar sem framtíðar-
aðsetur Náttúruminjasafns Íslands
verður til húsa, og heilsaði
upp á starfsfólk safnsins. Með
ráðherra voru í för Rúnar Leifsson
sérfræðingur hjá ráðuneytinu,
Auður B. Árnadóttir fjármálastjóri
og Ásta Sigrún Magnúsdóttir
upplýsingafulltrúi.
Forstöðumaður safnsins, Hilmar J.
Malmquist, kynnti bygginguna, starf-
semi safnsins og þau við fangsefni sem
unnið verður með í sýningarhaldi á
nýja staðnum, en stefnt er að því
að vígja nýju höfuðstöðvarnar á
árinu 2023.
Hilmar færði ráðherranum að
gjöf vandaða ljósmynd af hvalablaði
Jóns Guðmundssonar lærða sem
var uppi 1574 til 1658, en það
er blað með teikningum af 19
nafngreindum hvölum og rostungi,
og eru sumar teikningar líklega þær
elstu sem vitað er um af viðkomandi
hvalategund. Ekki er loku fyrir það
skotið að beinagrind af stórhveli
verði á meðal sýningargripa, en
inntak sýningarinnar í Náttúruhúsi í
Nesi verður hafið og sú líffræðilega
fjölbreytni sem þar er að finna.
Hilmar J. Malmquist kynnir starfsfólk safnsins fyrir ráðherra.
Hilmar J. Malmquist og Lilja Alfreðsdóttir með innrammaða ljósmynd
af hvalablaði Jóns lærða.
Leikskóli Selt rne s
Innritun fyrir skólaárið 2022-2023
Innritun barna fyrir skólaárið 2022-2023 fer fram í aprílmánuði nk. Til að
eiga rétt á leikskóladvöl þarf barn að eiga löghei ili á Seltjarnarnesi. Sækj
skal um leikskóladvöl á heimasíðu Seltjarnarnesbæjar www.seltjarnarnes.is
gegnum Mínar síður. Mikilvægt er að umsóknir hafi borist fyrir 31. mars nk.
Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða afgreiddar eftir því sem
leikskólapláss losnar.
Nánari upplýsingar og aðstoð við innritun veitir Sonja Jónasdóttir
sonja@seltjarnarnes.is
Skólaskrifstofa Seltjarnarnesbæjar
Ungbarnalei s óli Seltjarnarness
Innritun fyrir skólaárið 2022-2023
Innritun barna fyrir skólaárið 2022-2023 fer fram í aprílmánuði nk. Til að
eiga rétt á leikskóladvöl þarf barn að eiga lögheimili á Seltjarnarnesi. Sækja
skal um leikskóladvöl á heimasíðu Seltjarnarnesbæjar www.seltjarnarnes.is
gegnum Mínar síðu . Mikilvægt er að um óknir hafi borist fyrir 31. ma s nk.