Súgandi - 01.03.1979, Qupperneq 3
2
Að loknum fundi var sest að kaffi og síðan spiluð
félagsvist»
Árshátíð er haldin einu sinni á ári, yfirleitt í
mars, nú í ár 10. mars. Þar er leitast við að
gera sem flestum til hæfis í mat og skemmtan.
Margir eru að vonuro óhressir yfir miðaverðinu sem
nú er kr. 8.500, en því miður er ekkert við því
aö gera að óbreyttu, og er það miðað við að upp-
gjör standi í járnum eða að tap verði ekki mikið.
Tilgangur félagsins er:
Að efla og viðhalda kynningu Súgfirðinga á
félagssvæðinu.
Að efla og viðhalda sambandi við heima-
héraðið.
Félagið var stofnað 29. nóv. 1950 og'er því 29 ára
á þessu ári. Félagafjöldi er nú um 200. Gjald-
fríir eru félagar 65 ára og eldri og fái þeir
sendan gíróseðil, þá endursendið hann ógreiddan.
Það eru vinsamleg tilmæli og reyndar áskorun til
allra félagsmanna að láta stjórnarmenn vita um
mögulega nýja félaga.
Jafnframt að hvetja alla brottflutta Súgfirðinga
og niðja þeirra 16 ára og eldri til að ganga í
Súgfirðingafélagið: svo viljum við geta þéss sér-
staklega að Súgfirðingar búsettir vestra eru vel-
komnir í félagið.