Súgandi - 01.12.1999, Blaðsíða 4

Súgandi - 01.12.1999, Blaðsíða 4
Fréttapistill að heiman Það féll hér þó nokkur snjór um mánaða- mótin okt—nóv. En hann tók allan upp aftur nema efst í fjöllum. Tíðar- far að undan- förnu hefur verið gott til landsins en rysjóttara til hafsins eins og oft vill vera á haustin. Gæftir sæmilegar og afli þokkalegur og stundum góður þá gefið hefur. Með aðventunni hefur hann sótt í sig veðrið, frá því hún byrjaði má segja að hafi kyngt niður snjó og verið leiðindaveður með frosti snjókomu og endalausum skafrenningi. Það er nú kannske heldur sterkt að orði kveðið að segja að hér sé allt komið á kaf í snjó. En áhrifin á sálina eru þau að allt sé á kafi, það hefur vart sést á milli húsa, hvað þá að hafi orðið fjallabjart. En þetta er engin ný bóla hér um slóðir þegar vetur konungur heldur hér innreið sína og við höfum það fyrir satt að hann sé kominn. Veturinn er kominn og það hressir mann upp að jólin eru á næsta leiti. Það var Aðventukvöld í Suðureyrar- kirkju, fyrsta sunnudag í aðventu, þar voru ellefu dagskrárliðir í prentaðri dagskrá, söngur, hljóðfæraleikur og talað mál. Séra Valdemar flutti hugvekju og stjórnaði dagskránni en hiti og þungi dagsins hvíldi á organistanum og kórstjóranum, frú, Margréti Gunrtarsdóttur. Fermingarbörnin, 2000, báru ljósið í bæinn og lásu síðan jólaguðspjallið. Yngstu börnin sungu jólalög, sönghópur unglinga í sama máta, Adda Bjarnadóttir lék einleik, jólalög á flautu, konur úr kirkju- kórnum sungu, kirkjukórinn söng, karlakvartett úr kirkjukórnum lét í sér heyra. Barnakórinn, unglingakórinn og kirkjukórinn sungu allir saman og að síðustu sungu allir viðstaddir „Bjart er yfir Betlehem". Það var bannað að klappa en ég veit að kirkjugestir hefðu gjarnan viljað láta þakklæti sitt og hrifningu í ljós með því að klappa ekki bara einu sinni heldur oft. Lagaval, flutningur og framgangur dagskrár, var hátíðlegt, einfalt og látlaust, ég tel að maður hafi komið betri og bjartsýnni úr kirkjunni í þetta skipti. Það liggur mikil vinna að baki svona athöfn og þeir sem komu þessu í framkvæmd eiga þakkir skyldar. Eg greindi frá því í haust að Súðavík og Vatnsfjörður, við Djúp, ættu að falla undir Staðarprestakall í framtíðinni og mun svo verða innan tíðar. En þótt prestur hér eigi að sinna Súðavík og Vatnsfirði falla ekki til hans þau hlunnindi er fylgja eiga og fylgt hafa þessum embættum gegnum aldirnar. I þessum áformum er þó eitt sýnu verst fyrir okkur Súgfirðinga, ef fram nær að ganga. Á ég þar við áformin um að prestur skuli ei lengur sitja á Suðureyri, heldur skuli Staðarprestur sitja í Súðavík. Mínar heimildir hljóða upp á að sveitar- stjórnin í Súðavíkurhreppi sæki þetta mjög fast og því er full ástæða til að óttast. Því allir muna hvernig þeir fengu kirkjuna og í þessu máli láta þeir sjálfsagt kné fylgja kviði líkt og í kirkjumálinu forðum. En Guð forði því að þeim takist að stela af okkur prestssetrinu. Sóknarnefnd Staðarprestakalls mun vera að snúast til varnar í máli þessu og prestur segir mér að hann trúi því ekki að þetta mál nái fram að ganga ef Súgfirðingar fylki sér um prestssetrið, að það verði hér áfram. Það verður að segjast eins og er að óáran virðist vera í kirkju og kristni hér vestra um þessar mundir, nágrannar okkar standa í ófriðareldi og glóðum elds er safnað að höfðum okkar í prestssetursmálinu, vonandi linnir. Atvinnulífið er í fullum gangi og ekki hefur fallið úr dagur lengi. Hausaþurrkunin hjá Klofningi gengur vel og eru þeir að þróa og markaðssetja afurðir sínar í nýju formi sem kaupendum ku lítast bara vel á. Til allrar guðslukku sluppum við með skrekkinn þegar Básafell sagði upp starfsliði sínu á Flateyri og Suðureyri um daginn. Vinnustaðar fundur var boðaður hjá Básafelli hér til að kynna og framkvæma uppsagnir starfsfólks, rétt í þann mund er honum var að ljúka náðist samkomulag um að Guðni Einars, Óðinn og einhverjir fleiri keyptu Básafell á Suðureyri og áður en fundi lauk voru allar uppsagnir dregnar til baka. Mánudaginn 6. des. kl. 10 að morgni var starfsliði Básafells á Suðureyri boðið í kaffi og tertu í kaffistofunni, þar kvaddi sér hljóðs Óðinn Gestsson og greindi frá eftir farandi : Frá og með deginum í dag tekur nýtt félag við rekstri á frystihúsinu hér, félagið heitir „Fiskvinnslan Saga ehf‘ og er í eigu þessara aðila. Guðmundur Kristjáns- son og Básafell, Guðni Einarsson og Bræðraverk, Óðinn Gestsson, hver aðili fyrir sig á þriðjung. Bestur jóla og nýársóskir. Gestur Kristinnsson

x

Súgandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Súgandi
https://timarit.is/publication/1797

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.