Sókn - 01.02.1940, Blaðsíða 4
4
SÓKN
íslenzkt smjör!
Nei, vinur minn, en það eru fleiri en þú, sem
halda, að þeir séu að borða íslenzkt rjómabússmjör,
þegar þeir borða
Stj örnu- eöa Sólar-smj örlíki.
Og Sólarj nrtafeitin er bezta bökun-
arfeitin. — Það vita allar húsmæðurnar af
reynshmni.
Húfurnar frá „Hektor66
fást allstaðar.
Vasa- og armbands-úr
meö fyrsta llokks ankerverki, þar á meðal slálúr, ryk-
oy vatnsheld, magnast ekki, þola byltur.
Smekklegt úrval hjá
Þórði úrsmið.
*
4
\
4
\
4
\
4
Gefjunardúkar
Iðunnarskór
KAUPFELAGIÐ
4
s
t
\
4
\
4
Verzlun Guðmundar Br. Guðmundssonar
er venjulega birg af flestum matvörutegundum.
Einnig margskonar smávörur, metravörur, hrein-
lætisvörur og snyrtivörur.
Páll Jónsson.
NORSK ABAKARÍIÐ. — Stofnsett 1884.
Allar algengar brauðategundir — og kökur í fjölhreytlu úrvali.
Hart brauð í heildsölu og smásölu.
Margar sælgætisvörur. 01. Gosdrykkir. Líkjörar.
Norskabakaríið — Silfurgötu 5.
Bökunarfélag Isfirðinga h. f.
Silfurgötu 11.
íþróttir og bindindi.
Sagan segir að höfðingi nokk-
ur, er varð fyrir sviksemi í
hallarsmíði, hafi sagt við bygg-
ingameistarann: »Njóttu nú
verka þinna, meistari góður —
höllin er þín eign«. En hinn
óhamingjusami meistari hróp-
aði í örvæntingu: »Illa fór ég
að ráði mínu, að vanda ekki
meir til hallarinnar«.
Allir, sem íþróttir stunda,
eru hallarsmiðir. — Að hyggja
upp sinn eigin mann, vaxa að
þroska og göfgi, er sú skylda
sem þeim er lögð á lierðar.
Góður smiður hyggir á trausl-
an grunn. Slcrk heilsa er sá
grunnur, sem ber uppi liina
veglegu liallarsmíði íþrótta-
mannsins. Hann gætir sín því
vel gegn áfenginu og öllum
naulnalyfjum — öllu, sem skað-
ar hann eða veikir. í stað þess
að silja við vínl)orðið »aftan-
inn vetrarlangan«, leiður á
sjálfum sér — þreyttur á líf-
inu, styrkir hann höll sína og
fegrar með íþróttum og úti-
vist. Gætileg þjálfun, hollir
hættir í hvívetna, er sá efni-
viður, sem liinn góði hall-
arsmiður h}rggir úr sterkan og
fagran mann — andlega og
líkamlega reiðubúinn í hverja
raun. — Hann er sannur
íþróttamaður.
Til að ná þeirn þroska, þarf
liann að öðlast andlegt þrek,
svo að því sé hafnað í mat og
drykk.sem fánýtt er ogskaðlegt,
en það eitt valið, sem gildi hef-
ur. íþróttamönnum er nauðsyn
að kunna til hlítar aðalatriði
heilsufræðinnar og geta hagað
daglegum lifnaðarháttum í sam-
ræmi við hið háleita takmark
sitt: Sannur íþróttamaður.
Sá er keppir að því marki,
er svarinn fjandmaður áfengis-
ins. Hekking hans á skaðsemi
þess og samvizkusemi við sína
eigin uppbyggingu, er honum
hjálp móti áfengisnautninni.
Sannur íþróttamaður hefir
ýms skilyrði fram yfir aðra á
þeirri vandrötuðu leið, er til
sannrar menningar liggur —
það eru lians laun fyrir trú-
lega unnar skyldur.
Sú hjátrú, að áfengi væri
sjálfsagt allstaðar þar sem til
karlmennsku þyrfti að taka, er
nú horfin fyrir þeirri stað-
reynd, að áfengi lamar og
deyfir í stað þess að styrkja.
Hiti sá og hressing, er ferða-
menn þóttust finna í fórum
ferðapelans, var aðeins deyfing,
er stutta stund örfaði blóðrás-
iua, og þreytutilfinningin veik
fyrir í hili. Sorglegir athurðir
segja sögu ferðapelans — marg-
ir hal'a orðið úti vegna stærri
og stærri áfengisskammta, er
teknir voru í góðri trú, en
reyndust tóm hlekking.
Hjartað er fjöregg hvers
íþróttamanns. Truflun í starf-
semi þess er honum skaðræði,
sem oft veldur honum erfið-
leikurn, eða neyðir hann til að
leggja árar í bát. Áfengið leiðir
af sér óreglu í starfi hjarta
og laugakerfis.
Því má segja, að áfengið sé
hanvænt fyrir þá, sem þjálfa
sig undir kappleiki. Forðist
þeir ekki vínglasið eins og
banvænt eitur, eiga þeir ekki
langt líf fyrir höndum meðal
keppenda. Á undan kappmót-
um verður íþróttamaðurinn að
lifa eftir ströngustu heilhrigð-
isreglum, því að á þeim hólmi
dugar ekkerl annað en eðlileg
alhliða þjálfun, vel undirljúins
keppanda.
Hinn kærulitli íþróltamaður
stundar vínguðinn í fríslund-
um sínum — rffur niður höll
sína, er lionum har að vanda
— ef til vill verður hún hreysi
áður en varir.
Allir íþróttamenn — kepp-
endur og aðrir, er íþrótl stunda
sér til gagns og gleði, hafi hug-
fast, að með áfengi veikja þeir
líkama og sál. Hin góða við-
leitni þeirra er því aðeins hálft
skref.
Iþróttamenn! Það er fjarri
eðli íþróttanna, er þið stund-
ið, að ganga hálf skref. Ef í
pokahorni ykkar skyldi leynast
lítill vasapeli, eða verði ykkur
á að hverfa til Bakkusar, að
afloknum fimleikaæfingum, þá
vil ég segja þetta: Legðu frá
þér vínglasið, svo að höll þín
verði traustara hús, þegar sam-
vizkan kemur til þín og segir:
»Njóttu verka þinna, höllin er
þín eign«.
Burt með áfengið!
Friðrik Jónasson.
Undirskriftasöfnunin.
Eins og öllum er kunnugt
fór fram undirskriftasöfnim í
öllum kaupstöðum landsins, og
stærstu kauptúnum, í desember
í haust, undir áskorun til rík-
isstjórnarinnar um að loka Á-
fengisverzlun ríkisins meðan
á ófriðnum stæði. Árangur und-
irskriftasöfnunarinnar varð í
hverjum kaupstað eins og hér
segir:
Beykjavík 13000
Akureyri 2010
Hafnarfjörðúr 1531
Vestmannaeyjar 1395
ísafjörður 1112
Siglufjörður 1100
Seyðisfjörður 258
Samtals 20412
í kauptúnum þeim, sem safn-
að var undirskriftum í, skrifuðu
samtals 1970 kjósendur undir
áskorunina. Á öllu landinu
voru það samtals 22388 kjós-
endur, sem óskuðu að stöðva
áfengissöluna, en þing og stjórn
brá fyrir sig utanríkissamningi,
og sakaði áfengisverzlunina eigi.
Qefið út af Bindindisfélagi Qagnfræða-
skólans og Qóðteinplarastúkunum
á ísafirði.
Ábyrgðann.: Þórleifur Bjarnason.
Prentstofan tsrún.
Dansleikur verður haldinn í I. O. G. T.-húsinu í kvöld kl. 11 til ágóða fyrir útbreiðslustarfsemi bindindisfélaganna.