Þróttur - 17.01.1940, Side 3

Þróttur - 17.01.1940, Side 3
fcRÓTTUR 3 Reglur um kappgöngu á skíðum. 1. Það er skylda hvers þátt- takanda að kynna sér vel reglur þær, er keppa skal et'tir. 2. Tilkynning um þátttöku í móti, skal koma frá félagi því, er viðkomandi kepp- andi telst til, en ekki frá honum persónulega. 3. Keppandinn ber sjállur á- byrgð á, að þátttökutil- kynning hans sé rétt. T. d. aldur, vinningar hans á fyrri mótum o. s. frv. 4. Bannað er að tilkynna sama mann til keppni á fleiri mótum, sem haldin eru samtímis. 5. Tikynningar um þálttöku, sem koma eftir að til- kynningarfrestur er ut- runninn, skal ekki taka til greina. 0. Aldurstakmörk allra skíða- kappa miðast við 1. janúar það ár, sem keppnin fer fram. 7. Mæli keppandi of seint lil keppendatals eða að starli, má vísa lionum frá keppn- inni. 8. Keppandi verður að ganga ur skugga um að skíði, stalir, skór og föt lians séu í góðu lagi, nokkruin tíma áður en startað er. f). Mæti keppandi of scint að slarli í skíðagöngu, getur viðkomandi leikstjórn leyfl honum þátttöku með þeim hælti, að tími lians reiknast frá þeirri stundu, er hann átti að starta, samkvæmt númeri sínu á leikskránni. 10. 011 vegalengdin skal farin á skíðum, og án nokkurrar hjálpar. 11. í skíðagöngunni má enginn hindra annan fljótari kepp- anda í að komast leiðar sinnar, en verður strax og kallað er »brautina« að ganga úr slóðinni. Eftir sænskum reglum má enginn kalla »brautina«, fyrr en hann gengur á skíðahæla þess, sem á undan fer. 12. I keppninni má keppandi ekki njóta neinnar aðstoðar þeirra, sem ekki keppa. 13. Keppandi hei'ur ekki leyfi til að ganga kappgöngu- brautina, eftir að hún er merkt, til að kynna sér hana. Brot gegn þessu á- kvæði, varðar allt að brott- rekstri af mótinu. 11. Það er leyfilegt að taka til sín mal og drykk á meðan á kappgöngunni stendur, þótt ekki sé það á mat- stöðvum. 15. Það er leyfilegt að bera á skíðin, en ekki að fá aðstoð til þess. 16. Brotni eða bili skíði meðan á keppni stendur má skifta um það. Ekki má þó skifta um bæði skíði. 17. Ef keppandi hefur ekki startað á réttum tíma, en getur sannað að það sé ekki hans sök, geta þeir, sem fyrir mótinu eiga að ráða, leyft honum að starta í annari röð en númer hans á keppendaskránni segir til um. 18. Keppendur skulu á allan hátt haga sér samkvæmt fyrirmælum starfsmanna, og reyna að láta framkomu sína verða þeim sjálfum, félagi þeirra og íþróttinni til sóma. 19. Kærur, vegna skíðakeppni, sem ekki verður skorið úr þegar í stað, skulu sendast skriílegar til viðkomandi íþrótlaráðs, og úrskurðasl al' því. Reglur þessar eru þýðing á norskum l'yrirmælum um kapp- göngu á skíðum 1937. Tryggvi Þorsteinsson. Reglur um skíðamót Vestlirðingafjórð- ungs (fyrir konur og unglinga.) 1. gr. Skíðamót Vestfirðinga- fjórðungs l'er fram á ísafirði síðari hluta vetrar ár liverl og skal auglýst með mánaðar fyrirvara. 2. gr. Mótið fer fram eftir ulþjóðalögum um skíðakeppni eða reglum þeim er Í.S.Í. við urkennir. 3. gr. Keppt skal í eftirfar- andi greinum, sem hér segir: Konur eldri en 16 ára: Svig og flugskrið. Stúlkur 14—16 ára: sama. Piltar 16—19 ára: 10 km. ganga, stökk, svig og flugskrið. Piltar 14—16 ára: 5 km. ganga, stökk og svig. í. R. V. F. í. R. V. F. Kvöldskemmtun til ágóða fyrir Ferðasjóð íþróttamanna verður haldin í Aþýðuhúsinu á ísafirði þ. 28. janúar n. k. Meðal annara skemmtiatriða verður hinn vinsæli söng- og gamanleikur 99Upp til selja“ leikinn af beztu leikurum bæjarins. Matvörur, búsáhöld og hreinlætisvörur. Verzl. Bjttrns Guðmundssonar. Hektors húfur íást allstaðar. NORSKABAKARllÐ. — Stofnsett 1884. Allar algeugar brauðategundir — og kökur í fjölbreyttu úrvali. Iíart brauð í heildsölu og smásölu. Margar sælgætisvörur. Öl. Gosdrykkir. Líkjörar. Norskabakaríiö — Silfurgötu 5. Baldursfundur Alþýöuliús ísfirðinga verður sunnudaginn 21.jan. í Alþýðuhúsinu kl. 1 Va e. h. tilkynnir: Fundarefni: Músik verður fyrst um sinn í veitingasalnum á fimmtu- dögum, laugardögum og sunnudögum kl. 9—HV2e.l1. Allskonar 1. Fétagbmál: a) Jarðræktarlögin og byggðaleyfi (Framh ldsumræður). b) Samningar við Rækjuverksmiðjuna. 2. FinnurJónsson alþingismaður flytur erindi um at- vinnumál og þingmál. 3. Önnurmál. Sýnið skírteini við innganginn. Stjórnin. blikksmíðavörur hjá Walter Knauf. Hefi til sölu: Bakpoka, svefnpoka og tjald. Jónas Tómasson. Lögtak á ógreiddum iðgjöldum til Sjúkrasamlags Isafjarðar fyrir árið 1939 hefir verið úrskurðað af bæjarfógeta. Er því fastlega skorað á samlagsmenn að greiða skuld sína fyrir 1. febrúar næstk. Eftir þann tíma verður lögtak látið fi;am faraT án frekari fyrirvara. ísafirði 17. janúar 1940 Sjúkpasamlag ísafjarðar.

x

Þróttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttur
https://timarit.is/publication/1808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.