Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1980, Side 16
XII
F o r m á 1 i
Árbók Reykjavíkurborgar kemur nú út 1 áttunda sinn frá því að
útgáfu hennar var hafin að nýju árið 1973. Bókin er enn í mótun,
þótt hún taki ekki langur örum breytingum frá ári til árs. Að þessu
sinni ber sérstaklega að geta fyllri upplýsinga um landnotkun í
Reykjavík en áður hafa verið birtar í kaflanum um byggingarstarfsemi.
Jafnframt hefur nokkru efni verið aukið við kaflann um atvinnumál, en
horfið var frá því að birta sérstakan kafla um orkumál, þar sem ekki
vannst tími til þess að endurnýja efni hans eins og þurfti.
Upplýsingar um Reykvíkinga, aldur þeirra og kyn, sambýlishætti,
atvinnu, tekjur og húsnæði, skipa að vonum mikið rúm í þessari bók,
enda eru þær helsti grundvöllur viðmiðunar, þegar mat er lagt á stöðu,
eða kjör, borgarbúa, hvort heldur innbyrðis, eða í samanburði við þá
sem búa annarsstaðar.
Þessar upplýsingar eru sóttar í nokkrar heildarskrár gagna, sem
reynt er að endurnýja árlega, eða oftar, með því að beita almennum
ákvæðum um tilkynningaskyldu. Engu að síður er hætt við því, að gildi
skránna dvíni með tímanum, sé aldrei gerð tilraun til þess að afla
gagna frá fyrstu hendi, ef svo má að orði komast.
Nú mun fyrirhugað að ráðast í slíka tilraun með töku aðalmanntals
hérlendis hinn 1. febrúar 1981. Frá þessu er skýrt í dreifibréfi
Hagstofu íslands, sem sent var sveitarstjórnum í október 1980. Þar er
sveitarstjórnum jafnframt gefinn kostur á því að koma tillögum um til-
högun manntalsins á framfæri við Hagstofustjóra og hafa stjórnendur
borgarinnar þegar gert það.
Árbókin hefur verið gefin út í 300 til 400 eintökum árlega síðan
1973. Nærri lætur, að helmingi upplagsins sé dreift strax til þeirra
sem bókin er talin eiga sérstakt erindi við, en eintök eru síðan afhent
þeim, sem eftir leita hjá Hagfræðideild Reykjavíkurborgar, meðan upplag
endist. Bókin hefur yfirleytt hlotið góðar viðtökur, og reynst svo
eftirsótt, að upplag hennar hefur þrotið oftar en einu sinni. Engu að
síður er ljóst, að hana þarf að bæta til muna og eru allar ábendingar
í því efni vel þegnar. 1 þessu sambandi er rétt að hafa í huga, að
takist aðalmanntal vel, verður væntanlega innan skamms völ á traustum
upplýsingum um ýmsar breytingar, sem vitað er að átt hafa sér stað á
síðustu árum, en ekki hefur tekist að henda nákvæmar reiður á. Þar