Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1980, Síða 19
1
MANNFJÖLDINN
Inngangur
Reykvíkingum fjölgaði um 160 manns á árinu 1979, en hafði áður fækkað
um nálega 1.500 manns á tímabilinu frá 1. desember 1975 til jafnlengdar
1978. Þetta er athyglisverð breyting, en boðar engin þáttaskil. Hún
verður rakin beint til þess, að brottfluttir umfram aðflutta urðu færri
í fyrra en undanfarin ár.
Breytingar á íbúatölu frá einum tíma til annars eiga rætur að rekja til
fæðinga, dauðsfalla og fólksflutninga. Fólksflutningar hafa um langt
skeið haft mest áhrif á íbúatölu einstakra staða á Höfuðborgarsvaéði og
svo er enn, þótt áhrifin á heildarfjölda Reykvíkinga yrðu minni í fyrra
en árin þar á undan. Fólki fækkar í nálega öllum grónum hverfum borgar-
innar og meðalaldur Reykvíkinga hækkar jafnt og þétt. Hann er nú rétt
um 34 ár. Ár hvert flytjast fleiri börn úr borginni en þangað koma í
staðinn og tala fæðinga stendur nánast í stað, þrátt fyrir það, að konur,
sem geta alið börn, hafi ekki fyrr verið jafnmargar í Reykjavík. Rosknu
fólki og öldruðu fjölgar ört. Þessi lýsing gefur það til kynna, að á
næstu árum dregur saman með tölum um fjölda lifandi faaddra barna og fjölda
dauðsfalla í Reykjavík.
Tala Reykvíkinga næði sennilega ekki 90.000 árið 1990, þó að gert væri ráð
fyrir fullkomnum jöfnuði í fólksflutningum, en með því er átt við, að sams-
konar fólk flytti í jafnríkum mæli til og frá borginni á tímabilinu. Hér
skal engum getum að því leitt, hvaða stefnu fólksflutningar taka á næstunni,
innanlands, eða til og frá landinu, en nauðsynlegt er að fylgjast betur með
þeim en gert hefur verið, svo að stjórnvöld og aðrir geti metið áhrif þeirra
fordómalaust.
Athygli skal vakin á því, að niðurstöðutölur um íbúafjölda í einstökum
hverfum ber ekki saman í öllum tilvikum. I>etta á rætur að rekja til ólíkra
aðferða við talningu. Yfirleitt er talið eftir götum, en töflur um fjöl-
skyldustærðir eru miðaðar við staðgreini. Þá er þess að geta, að fjöldi
barna á fyrsta aldursári er vantalinn í fólksfjöldatölunum 1979, þar sem
upplýsingar vantar um fjölda lifandi fæddra tvo síðustu mánuði ársins.