Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1980, Page 85
67
í heild er ekki jafnvægi í flutningamagni til og frá landinu. Þar
ræður mestu stórflutningur á jarðolíu og hráefni til stóriðju. Jarð-
olía og málmgrýti er flutt til landsins í stórum heilum förmum. Skip,
sem notuð eru til þessara flutninga eru það stór að þau henta ekki til
flutninga með útflutningsvöru. Ef þessir vöruflokkar eru dregnir frá
heildarinnflutningi kemur fram nokkuð jafnvægi í magni milli inn- og
útflurnings. Slíkt jafnvægi mundi leiða til hagkvasmari flutninga en
raun verður á ef ekki kæmi til misræmi milli markaðssvæða og flutninga-
aðferða.
Útflutningur er aðallega fiskur og fiskafurðir. Algengt er, að þessar
afurðir séu fluttar út í heilum förmum á einn áfangastað. Afskipanir
taka mið af sveiflum í framleiðslu, birgðahaldi og þörfum markaðarins.
Flutningur afurða eins og skreiðar, saltfisks, mjöls, lýsis, og jarðefna
er yfirleitt stórflutningur, sem samið er um í heilum skipsförmum og
vörunni skipað út í framleiðsluhöfnum. Ötflutningur frystra fiskafurða
er á svipaðan hátt aðallega í heilum förmum, en tengist þó frekar föstum
áætlunarferðum.
Um innflutning gildir nokkuð öðru máli. Ýmsar vörutegundir svo sem salt,
korn, timbur eru oft fluttar í heilum förmum. Sama gildir um jarðolíu og
málmgrýti eins og áður er getið. Stykkjavara er hins vegar að verulegu
leiti flutt í áætlunarferðum skipafélaganna. Vöru er safnað saman á
ákveðnum höfnum erlendis og skipin sigla á föstum tímum óháð því hvort
þau hafi náð fullfermi.
Auk þessa mismunar, sem liggur í viðskiptaháttum á leigu á flutningarými
er ekki jafnvægi í magni til og frá markaðssvæðum. Afurðir eru seldar til
eins markaðssvæðis á meðan aðföng eru keypt á öðru svæði.
Tafla 2. Árið 1979 voru aðfanga- og áfangasvæði eftirfarandi.
Flutningar til og frá helstu markaðssvæðum 1979 (þús. tonn)
Norð-vestur
Evrópa
Sovétríkin,
Austur Evrópa
Spánn, Portúgal,
Miðjarðarhafsl
U.S.A og
Kanada
Önnur lönd
Innflutningur
Útflutningur
1jótandi ldsneyti Aloxið Annar innf1. Alls Alls
178.4 - 484.8 663.8 447.4
374.7 - 43.3 418.6 88.6
’ 71.1 - 32.8 103.9 76.9
- - 38.9 38.9 87.5
6.5 142.5 40.1 189.1 33.0
630.7 142.5 639.9 1.413.1 733.0
Alls