Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1980, Page 257
- 239
af þessari þörf verði unnt að fullnægja annars staðar. Þá er m.a. átt
við,að samþykkt hefur verið tillaga um þéttingu byggðar á nokkrum stöðum
í borginni, og er unnið að deiliskipulagningu og stefnt að því að úthluta
megi lóðum þar á næsta ári. Ennfremur má benda á að vegna mikillar upp-
byggingar atvinnuhúsnæðis í Ártúnshöfða og Borgarmýri, sem nú fer fram og
fyrirsjáanleg er,má ætla, að nokkurt atvinnuhúsnæði á öðrum stöðum í borg-
inni muni losna, eftir því sem uppbyggingunni miðar áfram.
Til frekari skýringar á tillögunum þykir rétt að birta hér þau skipulags-
markmið, sem sett eru í greinagerðinni og eru á þessa leið:
ItMarkmið þessarar skipulagsvinnu er að leitast við að stýra þróun og upp-
byggingu á hinum svonefndu Austursvæðum með þeim hætti, sem æskilegur er
talinn frá sjónarmiði borgarinnar í heild og þá ekki síður þeirra, sem þar
eiga eftir að lifa og starfa.
Að sjálfsögðu vilja menn stefna að því, að vegur Reykjavíkur verði sem
mestur, umhverfið sem geðfeldast og möguleikarnir sem fjölbreytilegastir
á öllum sviðum, en öllu þessu eru þó viss takmörk sett. Pólitísk, stjórnar-
farsleg og fjárhagsleg geta Reykjavíkur, þótt höfuðborg sé, er takmörkuð,
og það er vita tilgangslaust og raunar skaðlegt að setja sér markmið umfram
fyrirsjáanlega getu.
Akvörðun um uppbyggingu á þeim hluta Austursvæðanna, sem fjærst liggur
(Úlfarsfellssvæði) þýðir uppbyggingu nýrrar útborgar alveg frá grunni, ásamt
tilheyrandi rekstri, sem yrði hvort tveggja í takmörkuðu samhengi við það,
sem nú er til í borginni. Vaxandi orkukreppa með afleiðingum sínum, er nú
orðin svo mikilvægur þáttur þessa máls, að hann hlýtur að hafa áhrif á val-
kosti við skipulagsgerð. Þá ber og að hafa í huga hina breyttu aldursskipt-
ingu íbúa Reykjavíkur, sem nú þegar er orðin og virðist þróast í þá átt, að
þeim, sem þarfnast félagslegrar þjónustu að hálfu samfélagsins, fjölgar hlut-
fallslega jafnt og þétt.
Skv. nýjustu spám er ekki fyrirsjáanlegt, að umtalsverð fólksfjölgun verði
í Reykjavík á næstu árum. Allt eru þetta atriði, sem borgaryfirvöld þurfa
að vega og meta og draga síðan ályktanir af.
í fyrsta áfanga virðist rétt að stefna að því að byggja upp þau svæði, sem
liggja að núverandi byggð. Þegar hins vegar að því kemur að taka verður