Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1984, Blaðsíða 85
FORKAUPSRÉTTARIBÚÐIR
BORGARSJÓÐS
Gata Hús- númer Húsagerð Fjöldi- íbúða Þar af a forkaups
Hringbraut 37-47 (fjölbýli) 48 48
Langahlíð 19-25 ( " ) 32 32
Asgarður 1- -71, 95-165 (raðhús) 71 42
Tunguvegur 30-100 ( " ) 36 27
Réttarholtsvegur 27-97 ( " ) 36 19
Bústaðavegur 49- -79, 83-109 (tvíbýli) 59 39
Hæðargarður 2-52 ( " ) 52 35
Hólmgarður 1' -51, 2-66 ( " ) 111 79
Grensásvegur 45-47 ( " ) 4 4
Gnoðarvogur 14-42 (fjölbýli) 120 42
Grensásvegur 52-60 ( " ) 61 10
Skálagerði 3-17 ( " ) 48 17
Álftamýri 16 -30, 38-52 ( " ) 127 30
805 424
Forkaupsréttarákvæði.
1 ^301111 afsölum, sem borgarsjóður gaf út við afhendingu íbúðanna, er ákvæði um
forkaups- og forleigurétt borgarsjóðs.
Ef kaupandi vill selja íbúð sína, á borgarsjóður forkaupsrétt að henni fyrir
áðurgreint verð (upphaflegt söluverð), að viðbættri verðhækkun, sem samkvæmt
vísitölu byggingarkostnaðar hefur orðið á þeim hluta verðs íbúðarinnar, sem
fallið hefur í gjalddaga og greiddur hefur verið, þegar sala fer fram. Bæta
skal við verðmæti þess, sem kaupandi hefur lagt fram til að fullgera íbúðina
og endurbæta og draga frá hæfilega fyrningu allt eftir mati borgarráðs.
Með samþykkt í borgarráði 19.3. 1974 voru reglurnar rýmkaðar að mun.
Samkvæmt samþykktinni er íbúðareigendum heimilað að greiða eftirstandandi
lán að hluta eða að fullu miðað við eignatíma viðkomandi aðila og fá greiðslu
verðbætta miðað við byggingarvísitölu. Eignarheimild í 5 ár heimilar greiðslu
á 1/4 láns, eignarheimild í 10 ár helmingur og í 15 ár 3/4 og eftir 20 ára
eignarheimild er heimilt að endurgreiða lán að fullu, sem boðar fullar vísitölu-
bætur á alla íbúðina.
Á fundi borgarstjórnar 18. maí 1978 var eftirfarandi tillaga frá fundi borgar-
ráðs 16. s.m. staðfest:
Borgarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti borgarsjóðs á söluxbúðum þeim,
sem Reykjavíkurborg hefur byggt og selt, þegar liðin eru a.m.k. 20 ár frá upp-
haflegri afhendingu íbúðar, enda hafi verið um samfellt eignarhald sama manns
að ræða í a.m.k. 15 ár.
Af töflunni hér að ofan sést að forkaupsrétti er formlega aflétt af 424 íbúðum.
Fleiri eiga rétt til að fá forkaupsrétti aflétt nú þegar, þó frá því hafi ekki
verið formlega gengið.