Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1984, Page 257
REGLUGERÐ
243
um breytingu á reglugerð nr. 122/1979 um Hitaveitu Reykjavíkur
(Nr. 775/1983)
1. gr.
24. gr. reglugerðarinnar breytist og orðist þannig:
Nú er tenging heimæðar lokið og er þá heimæðargjald gjaldkræft.
Notkunargjöld verða krafin mánaðarlega skv. nánari ákvæðum gjaldskrár
en heimilt er að láta lengri tíma líða milli gjalddaga. Við verð-
breytingar á orku og fasteignagjöldum skal reikningsfæra notkun í
beinu hlutfalli við gildistíma hverrar gjaldskrár á því tímabili, sem
reikningurinn tekur til.
Hitaveitan má byggja orkureininga á áætlun um orkunotkun notenda og
innheimta reglulega skv. slíkri áætlun. Reikningar, sem byggjast á
staðreyndri orkunotkun, nefnast "álestrarreikningar", en reikningar,
sem byggjast á áætlaðri orkunotkun, nefnast "áætlunarreikningar".
Raunverulega orkunotkun skal staðreyna á u.þ.b. 12 mánaða fresti.
Þegar orkunotkun hefur verið staðreynd skal hún reikningsfærð og gerð
upp fyrir tímabilið milli álestra og koma þá áætlunarreikningar til
frádráttar.
Notandi getur jafnan gegn greiðslu aukagjalds krafist aukaálestrar
og uppgjörs miðað við staðreynda notkun. Ennfremur getur hann úskað
eftir breytingu á áætlun um orkunotkun vegna nýrra forsendna.
Reikninga skal senda orkukaupanda á notkunarstað eða annan stað,
sem hann tiltekur.
Gjalddagi er við útgáfu reiknings. Eindagi er 10 dögum síðar og
skal hann tilgreindur á reikningi. Einnig skal tilgreina greiðslustað.
Verði greiðslufali á reikningi, hvort sem um er að ræða áætlunar-
eða álestrarreikning, má hitveitan áskilja sér og innheimta dráttar-
vexti, sem reiknast frá eindaga reiknings hverju sinni.
Hitaveitan hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi
eða íbúð viðskiptamanns, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld skv.
áætlunar- eða álestrarreikningi, eða vanrækir skyldur sínar skv.
reglugerð þessari.
Til slíkra aðgerða má þú fyrst grípa eftir eindaga og að undangeng-
inni skriflegri aðvörun, sem sendist viðskiptamanni með þriggja daga
fyrirvara. Hitaveitan ber ekki ábyrgð á hugsanlegum afleiðingum
slíkrar lokunar.
Sá, sem vanskilum veldur, greiðir allan kostnað af lokun og opnun á
ný skv. gjaldskrá hverju sinni.
2 . gr.
Reglugerðarbreyting þessi, sem samin er og samþykkt af borgarstjúrn
Reykjavíkur, staðfestist hér með samkvæmt 1. gr. laga nr. 38/1940 um
Hitaveitu Reykjavíkur og 29. gr. orkulaga nr. 58/1967 til þess að
öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut
eiga að máli.