Árbók Reykjavíkurborgar - 01.11.1991, Blaðsíða 167
151
GJALDSKRÁRMÁL
Tillögur um nýjar gjaldskrár eða breytingar á þeim berast borgarráði að
jafnaði frá forstjórum hlutaðeigandi fyrirtækja eða stofnana, eða
stjórnum þeirra. Gjaldskrártillögur Vatnsveitu, Rafmagnsveitu og
Hitaveitu Reykjavikur eru yfirleitt fyrst bornar upp i stjórn
Veitustofnana Reykjavikur og gjaldskrártillögur annarra stofnana, sem
hér eru nefndar, eru sömuleiðis lagðar fyrir hlutaðeigandi stjórnir.
Hinsvegar er rétt að vekja athygli á þvi, að það er ekki nauðsynlegt að
hafa þennan hátt á, nema i tilviki Reykjavikurhafnar, sbr. lög nr.
69/1984. Borgarráð getur með samhljóða afgreiðslu ákveðið einhliða
gjaldskrárhækkun og i borgarstjórn nægir einfaldur meirihluti til hins
sama.
Með samhljóða afgreiðslu getur borgarráð því tekið einhliða ákvörðun um
gj aldskrá, en verði ágreiningur, fer málið til afgreiðslu i
borgarstjórn við eina umræðu. í sumtim tilvikum þarf samkvæmt
lagaákvæðum að leita staðfestingar ráðherra.
Verður nú vikið stuttlega að einstökum fyrirtækjum og stofnunum
borgarinnar.
Vatnsveita Reykjavíkur hefur nokkra sérstöðu meðal veitustofnana i
gjaldskrármálum, þar sem gjaldskrá hennar miðast ekki við vatnsnotkun
nema að litlu leyti. Almennur vatnsskattur er árlega greiddur af öllum
fasteignum i lögsagnarumdæmi Reykjavikurborgar, sem liggja við vegi eða
opin svæði, þar sem vatnsæðar liggja. Hið sama gildir um aðrar
fasteignir, sem fá vatn úr veitukerfi Reykjavikur.
Hitaveita Reykjavikur. Heimilt er að hækka eða lækka hitaveitugjöld i
sama hlutfalli og visitala byggingarkostnaðar breytist. Þó skal
heildarkostnaður við hitun húsa með hitaveitu að meðaltali ekki fara
fram úr 80% af kostnaði við hitun húsa með oliukyndingu.
Rafmagnsveita Reykjavikur. Gjaldskráin miðast við það, að tekjur
Rafmagnsveitunnar standi undir rekstargjöldum hennar svo og aukningu
veitukerfisins.
Reykj avíkurhöfn. Gjaldskrá Reykjavikurhafnar er i meginatriðum byggð á
skipagjöldum, skipaþjónustugjöldum og vörugjöldum, auk þess sem gjöld
eru greidd fyrir ymiss konar þjónustu, sem veitt er á vegum
hafnarinnar. Gjaldskráin er birt með hafnarreglugerð fyrir
Reykjavikurhöfn, sem staðfest er af samgönguráðherra.
Strætisvagnar Reykiavíkur. Gjaldskrá S.V.R.
fjármagnskostnaður fyrirtækisins greiðist
undanfarin ár hefur borgarsjóður þó orðið
reksturs, þar sem fargjaldatekjur S.V.R.
rekstrarútgj öldum.
er miðuð við það, að allur
úr borgarsjóði. Mörg
að leggja fram fé til
hafa ekki hrokkið fyrir