Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1994, Blaðsíða 186
170
REGLUGERÐ
Nr. 206 17. aprfl 1984
um gatnagerðargjöld í Reykjavík
með síðari breytingum 30. júlí og 29. október 1985.
1. gr
Af öllum nýbyggingum, svo og stækkunum eldri húsa hvort sem er á eignar- eða
leigulóð í Reykjavík, skal greiða gatnagerðargjald til borgarsjóðs skv. gjaldskrá
þessari.
2. gr.
Af hverjum rúmmetra húss greiðist ákveðinn hundraðshluti
byggingarkostnaðar pr. rúmmetra, eins og hann er hverju sinni á vísitöluhúsinu
skv. útreikningi Hagstofu íslands, að frádregnum kostnaði við gatnagerð pr.
rúmmetra svo sem hér segir:
Einbýlishús með eða án tvíbýlisaðstöðu ............ 14%
Raðhús, tvíbýlishús, keðjuhús ....................... 9%
Fjölbýlishús ........................................ 4%
Iðnaðarhús .......................................... 5%
Verslunar- og skrifstofuhús ......................... 5%
Annað húsnæði ....................................... 5%
Rúmmál húss skal reikna frá neðstu grunnplötu. Næsta nýtanleg hæð undir þaki
skal teljast að rúmmáli flatarmál hennar margfaldað með 3.30 m. Bílgeymslur
og önnur útihús skal telja með við útreikning á rúmmáli húsa. Af kjallararými
foúðarhúsa, sem mydnast þegar hagkvæmara er að grafa út grunn en fylla hann
upp skal greiða 25% af venjulegu rúmmetragjaldi, enda sé aðeins gegnt í
húsrýmið innan frá. Af sameiginlegum bílageymslum, sem byggðar eru skv.
skipulagsskilmálum og koma í stað bifreiðastæða, skal greiða 25% af
rúmmetragjaldi þeirra húsa, er þær skulu þjóna. Af iðnaðarhúsnæði, sem vegna
starfsemi sinnar þarf meira en 5.5 m lofthæð, skal hámarkslofthæð að jafnaði
reiknast 5.5 m við útreikning rúmmetragjalds.
3. gr.
Ef lóðarhafi rífur gamalt hús eða flytur af lóð og byggir stærra hús á sömu lóð
skal gjald skv. 2. gr. vera rúmmetragjald nýja hússins að frádregnum rúmmetrum
þess húss, sem fjarlægt er. Sama gildir ef hús brennur og byggt er að nýju á
sömu lóð.
4. gr.
Gjald skal áætla, þegar lóðarúthlutun fer fram. Gjald þetta skal vera
lágmarksgjald og miðast við nýtingarmöguleika samkvæmt því skipulagi, sem
gildir við lóðarúthlutun, og endurgreiðist ekki, þótt minna sé byggt á lóð.
Sama á við þótt nýtingarmöguleikar á lóð minnki eftir að lóð er úthlutað, eða