Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1994, Blaðsíða 201
BÍLAHÚS OG STÆÐI MEÐ HLIÐBÚNAÐI
Gjaldskrárbreytingar frá 1. janúar 1988.
Nýjar almennar reglur um afslætti af mánaðarkortum í bílahúsum tóku gildi
1. janúar 1994 samkvæmt samþykkt borgarráðs 21. desember 1993. Tekinn var
upp sérstakur langtímaafsláttur þannig að þegar keypt er kort til sex mánaða er
aðeins greitt fyrir fimm. Þetta svarar til 16,67% afsláttar. Ibúar geta að auki fengið
10% afslátt og þegar keypt eru 10 stæði eða fleiri er gefinn 5% afsláttur. Þá er
heimilt að semja við starfsmannafélög o. þ.h. um 5% afslátt. Enginn afsláttur er þó
veittur á Tjamargötustæði (Alþingisreit).
1. Kolaport, Kalkofnsvegi 3.
Gjaldið á efri hæð var 40 kr. pr. klst. frá 1. janúar 1988. Mánaðarkort fyrir neðri
hæð kostaði 4.000 kr., en skilatrygging korts var 1.000 kr. Vikugjald var 1.600
kr., en útkall stæðisvarða kostaði 2.200 kr. Gjöldin breyttust 1. september 1990,
þannig að fyrsta klst. kostaði 30 kr., en hverjar byijaðar 12 mín. eftir það kostuðu
10 kr. Mánaðarkortið kostaði 5.500 og vikugjald var 2.000 kr.
Skilatryggingargjald korta og útkallsgjald héldust óbreytt. Síðan 1 mars 1992 hafa
mánaðarkort verið seld á 2.000 kr., en þau hækkuðu í 2.500 kr. 1. janúar 1993.
Borgarráð samþykkti síðan hækkun mánaðarkorta í krónur 3.500, til samræmingar
við aðra þjónustu Bílastæðasjóðs.
Starfsemi Markaðstorgsins í Kolaportinu hófst laugardaginn 8. apríl 1989.
Leigugjald fyrir hvem laugardag var 25.000 kr., en hækkaði 1. ágúst sama ár í
50.000 kr. 19. janúar 1991 var leigan hækkuð í 55.000 kr. og Markaðstorginu falið
að sjá um hreinsun, sem var áður á vegum borgarinnar. Leigugjaldið var svo tekið
til endurskoðunar í maí 1991 en var haft óbreytt. í maí 1993 var gerður nýr
samningur um húsaleiguna og hækkaði hún í kr. 73.000 fyrir hvem laugardag og kr.
62.000 fyrir hvern sunnudag. I maí 1994 var markaðsstarfsemin flutt í Tollhús.
2. Bergstaðir, Bergstaðastræti 6.
Húsið var tekið í notkun 16. nóvember 1989. Gjaldið var 30 kr. fyrir fyrstu klst.,
en síðan greiddar 10 kr. fyrir hveijar byijaðar 20 mínútur. Hélst svo allt til
l.september 1990. Gjöldin breyttust þá þannig að gjald fyrir fyrstu klst. hélst
óbreytt, en síðan greiddar 10 kr. fyrir hverjar byijaðar 12 mín. Mánaðarkort
kostuðu 4.500 kr. til 1. september 1990, en hækkuðu þá í 5.500 kr. Þau lækkuðu í
3.500 kr. 1. janúar 1993. Á fundi sínum 22. desember 1993 samþykkti borgarráð
enn frekari lækkun, og kosta nú mánaðarkort á 1. og 2. hæð krónur 2.500. Leiga
fyrir stæði í kjallara var hins vegar hækkað í krónur 4.000.
3. Vesturgata 7.
Húsið var tekið í notkun 5. desember 1989. Gjaldið var 30 kr. pr. klst., en síðan
greiddar 10 kr. fyrir hveijar byrjaðar 20 mín. Gjald fyrir fyrstu klst. hefur haldist
óbreytt, en síðan 1. september 1990 eru greiddar 10 kr. fyrir hverjar byrjaðar