Baldur 25 ára - 01.04.1941, Page 3

Baldur 25 ára - 01.04.1941, Page 3
B A L D 0 R 25 ára. 3 E I N I N G E R A F L ! Alþjóðasöngur jafnaðarmanna. Fram þjáðir menn í þúsund lönduin, sem þekkið skortsins glímutök. Nú bárur í'relsis brotna’ á ströndum og boða kúgun ragnarök. Fúnar stoðir burtu vér brjótum bræður fylkjum nú iiði í dag. Yér báruin fjötra en brátt nú bljótum byggja réttlátt þjóðfélag. I>ó að framtíð sé falin, grípum geirinn í liönd, því internationalinn skal tengja strönd við strönd. Hópmynd af kröfugöngum og útifundum verkamanna í Reykjavík. Þess skal getið, að einn al- vinnurekandi hér stóð utan við kauplækluinartilraun þre- menninganna, sem hér að fram- an getur, og var það Nathan & Olsen. Ennfremur er rétt að gela þess, að Jóliann Eyfirðing- ur var sjálfur ekki í bænum, þegar þetta var gert. Deila þessi sannaði atvinnu- rekendum, að ekki þýddi leng- ur að þrjózkast við hinum eðlilega og sjálfsagða gangi kaupgjaldsmálanna, sem sé þeim, að atvinnurekendur og verkafólk hafi sín á milli samn- inga um kaup og kjör verka- lólks. Hafa frá 1926 stöðugt verið Halldór Ólufssoii, múrari, gjaldkeri félagssjóðs og sjúkrasjóðs frá 1925 til þessa dags. samningar milli Baldurs og atvinnurekenda hér í bæ, enda leið nú óðum að því, að verka- fólkið sjálft tók uppbyggingu atvinnuveganna að miklu leyti í eigin hendur, og er það ekki hvað sízt því að þakka, að Baldur getur nú litið um öxl á aldarfjórðungsáfmæli sínu og fagnað glæslum sigrum. Þótt verkfallið 1926 sé sögu- legast [>á er það ekki eina verk- fallið, sem Baldur hefir orðið að lieyja. Sigursæl átök. I llest þau skipti, sem til samninga hefur verið gengið, hefur komið til nokkurra átaka við atvinnurekendur, og ekki er það heldur óþekkt fyrirbæri, að hefja hefur orðið verkfall til að fá samningsbrot leiðrétt eða kaupgreiðslur til verka- fólks inntar af liendi. T. d. varð félagið að heyja verkfall við nokkra atvinnu- rekendur til þess að ná samn- ingum 1930. Sömuleiðis 1931, og stóð það verkfall um þrjár vikur. 1932 varð félagið að beila vinnustöðvun til að fá greiðslu vinnulauna á einni vinnustöð hér. Eélagið náði inn öllum vinnulaununum, og nam sú upphæð um 12000,00 krónum. Beita varð verkfalli, er samn- ingar náðust í fyrsta sinn við Il/f. Fiskimjöl, og var þá gerð lilraun lil að beita lögreglu- valdi gegn félaginu. l>á varð Baldur einnig 1934 að beila verkfalli, lil þess að ná greiðslu á vangreiddum vinnu- launum verkamanna hjá Bein ,- mjölsverksmiðjunni á Stakka- nesi, nam uppbæð sú, er félagið náði þar fyrir meðlimi sína 6500,00 krónum. Á afmælisdegi Baldurs 1935 mynduðu vörubifreiðastjórar deild innan félagsins, og kom til nokkurra átaka um fyrstu samninga þeirra, svo að beita þurfti verkfalli. Auk þess, sem Baldur hefur báð baráttu fyrir réttindamál- um og bættum launakjörum ísíirzks verkafólks, hefur félagið einnig oft rétt »plássunum« hér í kring, hjálparhönd, þegar á hefur legið. Má þar tilnefna hjálp Baldurs við verkafólk í Hnífsdal, er það átti í verkfalli 1927, og atvinnurekendur þar gerðu tilraun með aðstoð banka- valdsins til að svelta verkafólk- ið lil hlýðni við sig. Ennfremur má geta afstöðu Baldurs til Bolungavíkurverk- fallsins 1932 og mótmæla fé- lagsins gegn afskiptum lögreglu- valdsins af deilunni. I>á má og heita, að ílest verkalýðsl'élcjgin á Yestfjörðum séu afkomendur Baldurs. Önnur störf. Afþví, sem hérá undan hefur verið sagt, mættu ýmsirókunn- ugir álykta, að athafnir Baldurs hafi að mestu snúizt um verk- föll á verkföll ofan, en slíkt væri algjörlega rangt mat á störfum lélagsins. Yerkföll eru oflast þau einu vopn, sem verkafólk á yíir að ráða í baráttu sinni við harð- svíraða atvinnurekendur fyrir viðunandi lífskjörum. Ótilneydd leggja verkalýðssamtökin aldrei til verkfalla, en ef þau þurl'a til þeirra að grípa, er verka- fólk nú búið að læra það, að þá þurfa allir að standa sam- einaðir. Og bvað verkalýðssam- tökin hér í bæ snertir, hafa þau allt frá eldskírninni 1926 sýnt þá festu og samheldni, að þau hafa komið út úr öllum þeim deilum, sem þau hafa verið neydd út í, sem sigurvegarar. Yerkalýðsfélagið Baldur, bef- ur aldrei látið sér neitt óvið- komandi, sem mátt hefur verða almenningi til andlegrar eða efnalegrar velmegunar. Fyrir því hefur það beitt sér eða lekið þátt í hinum óskylduslu málum. A félagsfundunum hafa verið llutlir fyrirlestrar um ýms efni. Félagið hélt lengi úli skrifuðu Framhald á 6. síOu,

x

Baldur 25 ára

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Baldur 25 ára
https://timarit.is/publication/1819

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.