Árbók íþróttamanna - 01.12.1948, Blaðsíða 131
SUND
Sundmótin í Reykjavík 1947
Arið 1947 var hið sögulegasta hvað sundíþróttina snerti. Heimsfrægur
erlendur sundgarpur, Per Oiof Olsson, keppti hér í höfuðstaðnum, varð
hrifinn af getu íslendinga og bauð einum þeirra, Ara Guðmundssyni, til
Svíþjóðar um sumarið. Loks tóku 3 íslenzkir sundmenn þátt í Evrópu-
TOeistaramótinu í Monte Carlo (Monacco) með þeim árangri að einn þeirra,
Sigurður Jónsson, K.R., komst í úrslit í 200 metra bringusundi og vaun
Islandi 1 stig. Er hann fyrsti íslendingurinn, sem kemst í úrslit á al-
Þjóðasundmóti, sé ekki reiknað með alþjóðaíþróttamóti K.F.U.M. í Kaup-
Wannahöfn 1927, sem hafði nokkra sérstöðu.
A árinu voru a'Is sett 8 Islandsmet, þar af eitt hjá konum, en auk þess
' w jafnað eitt met. I Reykjavík fóru fram 4 opinber sundmót, 2 skólamót
°g 2 sundknattleiksmót. Hér fara á eftir skýrslur um mótin.
20 ára aímælismót Ægis
Hið árlegu sundmót Ægis fór fram 17. febrúar í Sundhöll Reykjavík-
Ur- Skráðir keppendur voru 61 frá 6 félögum. Forseti I.S.I., Ben. G.
IVaage, setti mótið með ræðu og minntist stofnunar og starfsemi Sundfé-
'agsins Ægis, sem verið hefur forystufélag í sundíþróttinni hér á landi s.l.
20 ár. Hylltu áhorfendur Ægi með ferloldu húrrahrópi, en að því loknu
bófst sjálft mótið. TJrðu úrslit þessi: 50 metra skriðsund lcarla: 1. Ari Guð-
'•'iindsson, Æ., 27,3 sek. 2. Rafn Sigurvinsson, K.R., 28,9 sek. 3. Óskar
Jensen, Á., 29,5 sek. Þetta var í þriðja sinn í röð, sem Ari vann hrað-
sundsbikarinn og hlaut hann því til fullrar eignar. — b00 metra bringusund
karla: 1. Sigurður Jónsson, H.S.Þ., 6:07,6 mín. 2. Sigurður Jónsson, K.R.,
mín. 3. Ólafur Guðmundsson, Í.R., 6:28,1 mín. Sigurður Þingeying-
Ur bætti sitt gamla met um rúmar 10 sek. og var Sigurður K.R.-ingur
einnig undir gamla metinu. ■— 300 metra baksund karla: 1. Ari Guðmunds-
s°n, Æ., 2:56,0 mín. 2. Guðmundur Ingólfsson, Í.R., 2:58,4 sek. 3. Halldór
Bachmann, Æ., 3:21,3 mín. — 100 metra bringusund drengja: 1. Georg
Arbók íþróttamanna
129
9