Austurland - 14.06.2018, Síða 2

Austurland - 14.06.2018, Síða 2
2 14. júní 2018 Vatnajökulsþjóðgarður var stofn- aður 7. júní 2008 og var við stofnun rúmir 12.000 km² að stærð sem samsvarar um 12% af yfir- borði Íslands og er stærsti þjóðgarður í Evrópu. Vatnajökull er stærsti jökull Evrópu og þriðji stærsti jökull heims. Ríf- lega helmingur þjóðgarðsins er jökull en innan þjóðgarðsins er að finna samvirkni jarðelds, jarðhita og myndunar jökla, landmótun jökla og vatnsfalla. Vatna- jökulsþjóðgarður hefur mikla sérstöðu í náttúrufarslegu tilliti í heiminum, m.a. vegna þess að þar eru átök elds og ísa enn í fullum gangi. Jarðfræði þeirra svæða sem tilheyra Vatnajökulsþjóðgarðinum er fjölbreytt. Eldvirkni og vatnsrof, m.a. eftir hamfarahlaup, einkenna Jökulsár- gljúfur. Herðubreið og nágrenni teljast menjar eftir eldgos undir ísaldarjökli og þar má sjá ummerki gliðnunar við plöturek. Askja er dæmigert öskjusig í öflugri megineldstöð, Dyngjufjöllum, en þar og í Öskjueldstöðvakerfinu eru fjölbreyttar menjar gliðnunar og eld- virkni. Margar fleiri megineldstöðvar eru í þjóðgarðinum og sumar skarta sérkennilegu samspili jarðelds, jarðhita og eldgosa. Nægir að nefna Kverkfjöll og Grímsvötn. Í fyrstu mun þjóðgarð- urinn ná til alls þjóðgarðsins í Skaftafelli og þjóðgarðsins í Jökulsárgljúfrum auk nánast alls Vatnajökuls og helstu áhrifa- svæða hans að vestan, norðan, austan og sunnan. Vatnajökulsþjóðgarði er skipt í fjögur svæði Norðursvæði, Austur- svæði, Suðursvæði og Vestursvæði. Sex gestastofur og þjónustumiðstöðvar verða í þjóðgarðinum eða nálægt honum. Þar af verður ein staðsett á Kirkjubæjar- klaustri sem tilheyrir vestursvæði Vatna- jökulsþjóðgarðs. Fjölbreytt náttúran er augnlayndi Einkennandi fyrir vesturhluta Vatna- jökulsþjóðgarðs eru framhlaupsjöklar. Innan svæðisins eru tvær megineld- stöðvar, Grímsvötn sem hefur gosið oftast á Íslandi á sögulegum tíma, ca.70 sinnum, og Bárðarbunga sem er ein stærsta eldstöð Íslands. Jarðhiti við Bárðarbungu bræðir jökulinn og vatnið safnast í stöðuvatn undir jökli sem yfirfyllist á nokkurra ára fresti og þá verða Skeiðarárhlaup. Í Skaftárjökli er jarðhiti en brennsluvatnið rennur í Skaftárkatla sem eru tveir en úr þeim koma jökulhlaup í Skaftá. Skaftárhlaup eiga sér ekki langa sögu, fyrst varð þeirra vart um 1955. Heljargjá og eld- virkni á gossprungum einkenna vest- ursvæðið. Þekktastir þeirra eru Laka- gígar. Fjölbreyttan náttúran dregur að sér fjölda fólks á hverju ári, en eldsum- brot og jökulhlaup eru afar varasöm. nýr meirihluti í Fjarðabyggð nýr meirihluti á Vopnafirði Fjarðalistinn í Fjarðabyggð hefur myndað meirihluta í bæjarstjórninni eftir sveit- arstjórnarkosningarnar með Fram- sóknarflokknum. Eydis Ásbjörns- dóttir oddviti Fjarðalistans verður formaður bæjarráðs og Jón Björn Hákonarson oddviiti Framsóknar- flokksins verður forseti bæjarstjórnar. Ákveðið var að auglýsa eftir bæjar- stjóra og var einróma samkomulag um það. Á fyrsta fundi nýrrar bæjrstjórn- ar í byrjun vikunnar var kynntur sam- starfssamningur flokkanna tveggja. ,,Við töluðum við alla flokka og síðan var ákveðið að ræða við Fram- sóknarflokkinn og þær umræður leiddu til þessa nýja meirihluta í bæjarstjórn Fjarðabyggðar,“ segir Eydís Ásbjörnsdóttir. Nýr meirihluti hef- ur verið skipaður í sveitarstjórn Vopna- fjarðarhrepps en hann skipa Betra Sigtún og Framsóknar- menn og óháðir. Samkomu- lag hefur náðst um það að skipta starfi oddvita milli flokkanna þannig að hver um sig fær tvö ár, þ.e. skipti verða vorið 2020. Auglýst verður eftir sveitarstjóra. Djúpivogur Lifandi samfélag hlaut fjóra fulltrúa og hreinan meirihluta á Djjúpavogi. Oddviti er Gauti Jóhannesson. Í Borgarfjarðarhreppi og Fljótsdals- hreppi voru óhlutbundnar kosningar. Seyðisfjarðarlistinn náði hreinum meirihluta Seyðisfjarðarlistinn bætti við sig tveimur bæjarfulltrúum í bæjarstjórnarkosningunum og hlaut hreinan meirihluta í bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar. Hildur Þór- isdóttir, oddviti Seyðisfjarðarlistans segir að talað hafi verið við oddvita Framsóknarflokks og frjálslyndra og Sjálfstæðisfélagsins Skjaldar eftir kosningar og þeim boðið að tilefna formenn í tveimur nefndum bæjarins. ,,Við buðum þeim að koma með sínar óskar til okkar í Seyðisfjarðarlist- anum en Sjálfstæðismenn afþökkuðu boð okkar en svar hefur ekki borist frá Framsóknarmönnum. Ég verð forseti bæjarstjórnar en það er unnið að því að leggja niður bæjarráð en það var eitt af stefnumál- um okkar í kosningabaráttunni. Það er afar ópraktist í stjórnsýslu eins og er hér í ekki stærra bæjarfélagi að vera með bæjarráð, og nú munu málefnin sem rætt er um fara beint inná borð bæjarstjórnar og flýta allri afgreiðslu til muna. Allar boðleiðir styttast. Okk- ur finnst að undanfarin ár hafi bæj- arráð verið of ráðandi í stjórn bæjarins og okkur finnst eðlilega að bæjarstjórn taki milliliðalaust allar ákvarðanir. Við kynntum okkur hvernig þetta fyrirkomulag hefur verið á Djúpavogi og leist vel á það. Þar er bara sveitar- stjórn. Fjölbreytt og kröftugt atvinnu- líf er undirstaða allra samfélaga en við þurfum að vinna markvisst að því að auka fjölbreytni starfa hér í bæ ásamt því að styðja dyggilega við bakiðá ný- sköpun. Það verða einn til tveir fundir í mánuði á komandi kjörtímabili en það er verið að leggja lokahönd á það hversu margir nefndir verði starfandi. Það verður auglýst starf bæjarstjóra en ég var mikið spurð út í það hvort ég yrði bæjarstjóri í ljósi kosningaúrslit- anna, en það var ekki humyndin. Ég er mjög bjartsýn á það að margir hæfir einstaklingar muni sækja um starfið,“ segir Hildur Þórisdóttir. Átök elds og ísa helsta ein- kenni Vatnajökulsþjóðgarðs Hildur Þórisdóttir oddviti Seyðisfjarðarlistans og forseti bæjarstjórnar. Seyðisfjörður er í fallegri umgjörð fjalla. Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is Flott sumarföt, fyrir flottar konur Str. 38-58 Til sölu Notuð pallhýsi verð frá 650.000 kr m/vsk Passar bæði á ameríska og japanska pallbíla Nánari upplýsingar á: pallhysi.is eða í síma 849-2220

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.