Austurland - 14.06.2018, Síða 4

Austurland - 14.06.2018, Síða 4
4 14. júní 2018 Helstu náttúru ger- semar íslands liggja undir skemmdum Hver er framtíð ferðaþjónustu á Íslandi þegar árlega er aukning erlendra ferðamanna til landsins sem fara um náttúru lands- ins frá fjöru til fjalla? Helstu gersemar íslenskrar náttúru liggja undir skemmdum ef ekkert er að gert sem fyrst. Íslensk stjórnvöld og ferðamálayfirvöld tala um að aðgerða sé þörf, en það er ekki nóg, aðgerða er þörf ef ekki á illa að fara. Viljum við sjá Geys- issvæðið eitt drullusvað í votviðri eða umferð um hæsta fjall landsins, Hvannadalshnjúk, eins og Austurstræti á góðviðrisdegi? Ekki er heldur hægt að loka augunum fyrir því að umferð um Fljótsdal er orðin slík að það eru ekki bara vegir sem liggja undir skemmdum, heldur einnig gróður, .t.d. í Hallormsstaðaskógi sem allir vilja vernda en fáir hafast neitt .Alls ekki. Er það ekki verðugt vekefni nýrra sveitarstjórna á Austurlandi að taka höndum saman og gera eitthvað í málinu, sama hvort það er að milli- göngu Austurbrúar eða Sambands austfirskra sveitarfélaga, SSA. Minna má á að SSA vinnur að hagsmunum sveitarfélaganna á Austurlandi og er ætlað að starfa í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga eftir því sem við verður komið. Innanríkisráðuneyti fer með málefni sveitarfé- laga. Er þarna ekki breiðfylking sem lætur allt of lítið til sín taka? Aukin ferðaþjónusta, aukin fjöldi hótela og gististaða krefst aukins starfsmannafjölda sem margir hverjir hafa ekki menntast til þessa starfa. Uppi eru hugmyndir um lýðháskóla sem gæti komið þarna að og eflt ís- lenska ferðaþjónustu og gert hana enn metnaðarfyllri en hún er nú þegar. Þarna hafa Vestfirðingar riðið á vaðið og í haust byrjar starfsemi lýðhá- skóla á Flateyri. Af hverju ekki á Austfjörðum? Að því þarf að stefna. Íslendingar hafa oft aðra sýn á það en útlendingar um það hvað þeir vilja sjá eða heimsækja þegar ferðast um landið, þeir vilja oft sjá eitthvað nýtt og jafnvel áður óþekkt, ósnorta náttúru og fjöll á hálendi lands- ins eða staði eins og Loðmundafjörð þar sem nánast ekkert minnir á nútímaþjóðfélag eins og vegir eða rafmagnslínur, en refir bjóða göngu- menn velkomna. En að upphafi skal hyggja. Menntun á að gefa börnum tækifæri til að þroskast á eigin forsend- um, rækt hæfileika sína, undirbúa þau til að lifa ábygu lífií frjálsu þjóð- félagi. Það skulum við hafa í huga þegar ungviðið er ekki innan skóla- veggja og leikur sér áhyggjulaust í sumarnóttinni sem inann tíðar verður björt allan sólarhringinn. Gleðilegt sumar! Geir A. Guðsteinsson, ritstjóri LEIÐARI 8. tölublað, 7. árgangur Útgefandi: Fótspor ehf., Suðurlandsbraut 54 , 103 Rvk. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason. Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason sími 824-2466, netfang, amundi@fotspor.is. Auglýsingar: Sími: 578-1190 & netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Geir A. Guðsteinsson, sími: 840 9555 & netfang: geirgudsteinsson@simnet.is. Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Dreifing: Íslandspóstur. Vefútgáfa PDF: www. fotspor.is. Fríblaðinu er dreift í 5.500 eintökum á öll heimili og fyrirtæki á Austurlandi. Fyrirtækið Launafl á Reyða- firði er þjónustufyrirtæki sem er með flestar grein- ar iðnaðar og það starfrækir iðnaðarverkstæði, s.s. stálsmiðju, trésmiðju, pípulagningadeild, byggingadeild, vélaverkstæði, raf- magnsverkstæði, vélaverkstæði, blikksmiðju. Auk þess er fyrir- tækið með tæknideild og veitir fullkomna öryggisráðgjöf. ,,Við erum einnig með bíla- verkstæði og erum með lager og verslun til þess að geta afgreitt hratt okkar viðskiptavini þegar þá vant- ar varahluti,“ segir Magnús Helgason framkvæmdastjóri. ,,Öll útseld vinna frá Launafli er frá fyrirtækinu, ekki frá þeim iðnaðarmönnum sem hjá okkur starfa, þ.e. þeir eru á launaskrá hjá okkur en eru ekki sjálfstæðir verktakar. Hjá okk- ur starfar um 100 manns. Við getum því veitt góða, örugga og fljóta þjónustu.“ Kom þetta fyrirtæki til í framhaldi af þjónustu ýmis konar við álverksmiðj- una Alcoa Fjarðaál? ,,Þetta fyrirtæki var stofnað til að þjóna Alcoa Fjarðaáli en fljótlega sáu menn að það var mun hentugra fyrir þá að starfa saman í einu fyrirtæki held- ur en að vera verktakar hver og einn með ákveðnum tilkostnaði. En í dag er Launafl að þjóna mun fleiri fyrirtækj- um en Alcoa Fjarðaáli og sá viðskipta- hópur nær langt út fyrir Reyðarfjörð en við erum að þjóna einstaklingum og fyrirtækjum allt frá Vopnafirði og allt suður á Djúpavog, þ.e. allt gamla Aust- urlandskjördæmi. Í dag er t.d. fiskeldið á Djúpavogi stór viðskiptavinur sem og flest sjávarútvegsfyrirtæki á þessu svæði njóta okkar þjónustu. Við erum reyndar í litlum viðskiptum á Seyðisfirði því þar starfa sjálfstæðir verktakar sem sinna flestum þeim verkefnum á Seyðisfirði sem þarfnast iðnþekkingar og reynslu. Launafl er aðili að samstarfssamn- ingi um stofnun Háskólasetur Aust- urlands í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Undirritunin fór fram í Tón- listarmiðstöð Austurlands. Launafl er styrktaraðili að þessu verkefni, ásamt fjölmörgum öðrum fyrirtækjum og verður spennandi að fylgjast með hvernig þetta verkefni mun þróast og dafna í framtíðinni, segir Magnús Helgason framkvæmdastjóri Launafls. Háskólasetur Austurlands Fyrsta skref í samkomulagi um Há- skólasetur Austurlands, er skipan stýrihóps fyrir háskólaverkefnið, sem fulltrúar atvinnurekenda, rekt- or Háskólans á Akureyri og fram- kvæmdastjóri Austurbrúar eiga sæti í ásamt fleirum. Samkomulagið nær einnig til grunnskólastigsins og framhaldsskólastigsins og byggja þau verkefni aðallega á þeim ár- angri sem fræðsluyfirvöld í Fjarða- byggð hafa þegar náð í samstarfi við atvinnulífið í verknámi, tækninámi og nýsköpun. Framkvæmdastjórar stærstu framleiðslufyrirtækja, verktaka- og þjónustufyrirtækja og stofnana í Fjarðabyggð hafa frá því seint á síð- asta ári hist til að ræða sóknarfæri og áskoranir á Austurlandi. Um 85% af verðmætasköpun í landshlutanum fer fram í Fjarðabyggð og gegnir sveitarfé- lagið að mörgu leyti lykilhlutverki sem miðstöð atvinnulífs Austurlands. Guðný Björg Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri mannauðsmála hjá Alcoa Fjarðaáli segir að til framtíðar litið er mikilvægt að menntastig á Austurlandi haldist í hendur við þarfir atvinnu- lífsins, ekki hvað síst í verk- og tækni- menntun. Þá er ekki síður mikilvægt að ungu fólki gefist kostur á að ljúka menntun sinni í heimabyggð. Fyrirmynd háskólaseturs Austfjarða er sótt til Háskólaseturs Vestfjarða, sem skilað hefur góðum árangri á þeim rúma áratug sem setrið hefur starfað í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Fyrsta verkefni stýrihópsins verður að ráða verkefnastjóra sem fær það verð- uga verkefni að leiða undirbúning að stofnun Háskólaseturs Austfjarða. Ver- kefnið er til tveggja ára og hefur því verið skipt upp í þrjá áfanga. Bjartsýni ríkir um framhald verkefnisins enda um þjóðþrifamál að ræða. Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði hefur tekið á móti liðlega 50 þúsund tonnum af uppsjávar- fiski á þessi ári af erlendum fiskiskip- um auk eigins afla og umtalsvert magn hefur verið fryst áf loðnuhrognum til útflutnings. Arðurinn af því gæti þó verið hagstæðari þar sem gengi ís- lensku krónunnar er hátt, og hefur verið það um langt skeið. Haft er eftir Friðriki Mar Guð- mundssyni, framkvæmdastjóra Loðnuvinnslunnar, í blaðiðinu Sóknarfæri að staða Loðnuvinnslunn- ar sé sterk, eiginfjárhlutfall um 49% og eigið fé 7,4 milljarðar króna. Af- koma félagsins var mun lakari en árið áður, var þá 380 milljónir króna en 1,6 milljarður króna árið 2016. Friðrik Mar segir skýringuna þá að allt síðasta ár var gengi krónunnar 15% sterkara en árið 2016 auk þess sem mjölverðið lækkaði um 40% og lýsisverðið um 30%. Veiðigjald þorski og ýsu er mjög hátt um þessar mundir og ekki líkur á að það lækki neitt á þessu ári þar sem mikið liggur á að hraða þingslitum. Ríkisstjórnin stefndi að afgreiða mál- ið fyrir sumaarið en vegna öflugrar andstöðu stjórnarandstöðunnar og líklegast nú í þeirri stöðu að það verði óbreytt til næstu áramóta enbreytist ekki 1. september nk. þegar fiskveiði- árið 2018 – 2019 hefst. Af hverju kom veiðigjaldafrumvarpið ekki miklu fyrr fram? Maragir útgerðaraðilar telja að veiðigjaldið í núverandi myndmis- muni útgerðarmynstrum og jafnvel stærð þeirra og í því felist hvati til að fullvinna allt í fiskvinnslu í landi en ekki úti á sjó, sem dragi úr hag- kvæmni. Hagkvæmara er að vinna sumar fisktegundir úti á sjó, en aðrar er hagkvæmara að vinna í landi, og það það mismunar útgerðarmunstr- um. Af hverju er þessi mismunur? Stefán Bogi Ssveinsson verður forseti bæjarstjórnar Fljóts- dalshéraðs en hann er odd- viti Framsóknarflokksins. Anna Alexandersdóttir oddviti Héraðs- listans verður formaður bæjarráðs. Björn Ingimarsson verður bæjar- stjóri eins og á síðasta kjörtímabili. Sömu flokkar skipuðu meirihluta á síðasta kjörtímabili. Stefán Bogi verður forseti bæjarstjórnar MIKIL VIÐSKIPTI VIÐ ERLEND UPP- SJÁVARVEIÐISKIP Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði: Norsku uppsjávarveiðiskipin Brennholm og Selvåg Senior við bryggju. Norðmenn gera út mjög stór skip á Íslandsmið. Þjónustusvæði allt frá Vopnafirði til Djúpavogs Launafl á Reyðarfirði: Grunnskólar á Austurlandi munu njóta góðs af starfsemi Háskólaseturs Austurlands. Reyðarfjörður.

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.