Austurland - 14.06.2018, Blaðsíða 12

Austurland - 14.06.2018, Blaðsíða 12
12 14. júní 2018 Hér verður enginn stóridómur felldur um það hvert er feg- ursta fjall landsins en nokkr- ir viðmælendur voru fengnir til til að svara spurningunni. Auðvitað ræður tilfinningasemi þarna hjá allnokkrum vegna þess að gengið hefur verið á við- komandi fjall eða búið í nágrenni þess. Gaman væri að hvetja lesendur til að ganga á öll þessi fjöll í sumar og lýsa þeim tilfinningum sem um þá fór þegar staðið var á tindinum og útsýnið blasti við. Hér koma koma nokkur þessara fjalla í starfrófsröð og rökin með valinu. Væntanleg finnst einhverjum að í þessa upptalningu vanti einhver fjöll, en þau voru einfaldlega ekki nefnd, þó eflaust hefðu þau sómt sér vel í þessum hópi. Fjöllin sem nefnd voru en eru ekki nefnd eru á Suðurlandi eða Vesturlandi. n Búlandstindur. Basaltfjall við Djúpa- vog sem þykir almennt vera í hópi formfegurstu fjalla á Íslandi og sumir trúa því að Búlandstindur sé orkustöð. n Eiríksjökull. Spurning hvaða lands- hluta jökullinn tilheyrir. Ósjálfrátt koma í hugann upphafsorðin í skáld- sögu Halldórs Laxness, Fegurð himins- ins: ,,Þar sem jökulinn ber við loft, hætt- ir landið að vera jarðneskt en jörðin fær hlutdeild í himninum, þar búa ekki framan neinar sorgir og þessvegna er gleðin ekki nauðsynleg, þar ríkir feg- urðin ein ofar hverri kröfu.“ n Helgafell. Við Kaldárbotna. Ber af öðrum fjöllum á björtum degi. n Herðubreið. Fjallið var kosið þjóðarfjall, þarf varla að koma á óvart. n Hverfjall. Form þess ber af. Er ein- faldlega er í röð fegurstu og reglu- bundnustu öskugígamyndana sem gefur að líta á Íslandi. n Kerling í Eyjafjarðarsveit. Rís tignarleg nánast frá sjávarmáli og upp í 1538 metra hæð. Er auk þess kór- ónan í fallegasta fjallahring landsins. Þetta er bara svona. n Kirkjufell. Fegursta fjall landsins að mati margra. Bakgrunnur þess séð af hafi er fallegur og fjallið er svo margbreytilegt eftir því frá hvaða átt þú lítur til þess. n Kistufell í Grundarfirði. Þarf ekki rökstuðning. n Snæfell. Hæsta fjall Íslands utan jökla, 1833 metra hátt, og er fjallið sjálft og svæðið umhverfis það innan marka Vatnajökulsþjóðgarðs. Snæfell er nokk- uð keilulaga, enda forn megineldstöð sem hefur ekki rumskað í 10 þúsund ár. Mun það hafa myndast síðla á ísöld og er því yngsta eldstöð Austurlands. Vegna þess, hve hátt Snæfell rís hverfa efstu fannir þess ekki á sumrin og í því eru stuttir brattir skriðjöklar. n Stóllinn í Svarfaðardal. Tignarlegur og kyngimagnaður, magnað útsýni. n Þorfinnur. Drottnar yfir Önundarf- irði gegnt Flateyri, ógleymanlegt! Á vormánuðum 2017 fól Seyðisfjarðarkaupstaður Fornleifastofnun Íslands ses að vinna deiliskráningu á Vest- dalseyri við Seyðisfjörð. Svæðið sem skráningin náði til var um 26 ha stórt. Innan þess er þorpið Vestdals- eyri en svæðið náði talsvert norð- austur fyrir sjálft þorpið og yfir stór- an hluta gamla heimatúns lögbýlisins Vestdals. Við úttektina voru margvíslegar heimildir kannaðar, loftmyndir skoð- aðar og sömuleiðis gamlar ljósmynd- ir. Einnig var rætt við heimildamenn um svæðið. Við vettvangsúttekt var gengið kerfisbundið um allt svæðið í leit að minjum. Svæðið var skráð í júlí 2017 og skráðar voru 229 minjar en 10 þeirra reyndust skammt utan marka reitsins. Er það gríðarlegur fjöldi minja á ekki stærra svæði og endurspeglar það að hluta til hversu margir bjuggu á svæðinu allt frá miðri 19. öld og fram yfir hernáms- árin. Nú liggja drög að skýrslunni fyrir og er frestur til 1. júlí nk. að senda innathugasemdir. Fornleifarannsóknir á Vestdalseyri Á Vestdalseyri. HVERT ER FEGURSTA FJALL LANDSINS? Snæfell og hreindýr í forgrunni. Yngrsta eldstöð Austurlands þó 10 þúsund ár séu síðan fjallið bærði síðast á sér. Húseining ehf. Hraunholti 1, 190 Vogum. Símar 770-5144 og 787-5144. www.huseining.is kjartan@huseining.is soffia@huseining.is Láttu drauminn um nýtt heimili verða að veruleika með vönduðu og hagstæðu húsi frá Húseiningu. Twin Wall Húseining framleiðir smáhýsi, sumarhús og einbýlishús í nýrri verksmiðju að Hraunholti 1. Vogum. Húseining bíður upp á gott úrval af húsagerðum, þar sem allir eiga að geta fundið heimili sem hentar. Kynnið ykkur framleiðsluvörur okkar á vef fyrirtækisins: www.huseining.is SMART - einbýli KLASSIK - einbýli SÓL - sumarhús KÓSÝ - smáhýsi Lóð og hús Húseining hefur fengið leyfi til að kynna lausar lóðir í hinum ýmsu bæjarfélögum sem henta vela okkar húsum. Þetta er nýr kostur á íslenskum markaði og hafa viðskiptavinir Húseiningu fagnað þessari nýjung. Þær lóðir sem viðskiptavinum bíðst ma sjá í tenglum á vef okkar. Viðskiptavinurinn getur valið þá lóð sem hentar honum ásamt því að velja þá hústegund sem hentar. Ákveðnar takmarkanir þarf að hafa í huga þegar slíkur heildarpakki er valin, þ.e. lóð hús þegar kemur að því að velja hús á lóðina þar sem deiliskipulag tiltekur hvaða hvaðir fylgja húsagerðinni, þegar kemur að stærð og hæð hússins. Kíkið á vef okkar: www.huseining.is og sjáið lóðaframboðið!

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.