Austurland - 14.06.2018, Page 16
8. tölublað
7. árgangur
Auglýsingar: Sími 578 1190 og auglysingar@fotspor.is Ritstjórn: Sími 822 8318 og godsnail@gmail.com
Gæfuspor
að varðveita
Löngubúð
Langabúð er friðað hús og elsta húsið
á Djúpavogi ásamt Verslunarstjóra-
húsinu og eru hvortveggja reist árið
1790. Bæði húsin standa á grunnum
eldri húsa og eru staðsett þar sem
verslunarstaður hefur verið frá árinu
1589, en þá hófu þýskir kaupmenn
verslunarrekstur á Djúpavogi.
Fyrir tveimur áratugum leit út fyrir
að dagar Löngubúðar væru taldir. Af
breyttum atvinnuþáttum leiddi nauðsyn
á nútímalegra atvinnuhúsnæði. Þá risu
upp einstaklingar sem vildu að Langa-
búð yrði varðveitt. Nú hefur hún verið
endurbætt og henni fengið nýtt hlutverk
sem hæfir sögu hennar og mikilvægi
fyrir staðinn. Langabúð er orðin ómis-
sandi þáttur í menningarlífi Djúpavogs.
Í norðurenda hússins er sýning um líf
og starf Ríkarðs Jónssonar myndhöggv-
ara og myndskera. Um miðbik hússins
er minningarstofa um Eystein Jónsson
stjórnmálamann frá Djúpavogi og konu
hans; Sólveigu Eyjólfsdóttur. Kvenna-
smiðjan á Djúpavogi sér um rekstur
Löngubúðar auk kaffistofu í suðurenda
hússins. Á Löngubúðarloftinu hefur nú
verið komið fyrir minjasafni.
Listaverk Sigurðar Guðmundssonar,
„Egg in í Gleðivík“ stendur við höfnina
í Djúoavogi og vekur athygli ferða-
manna, innlendra sem erlendra. Verkið
er þrjátíu og fjögur steinegg sem sýna
egg helstu varpfugla svæðisins. Eitt
eggið er stærra, það tilheyrir lóminum
sem er einkennisfugl Djúpavogs.
Löngubúð hefur verið haldið vel við
og er íbúum til mikils sóma. Verið er að
gera upp Verslunarstjórahúsið.
C M Y CM MY CY CMY K
Nýr miði!
LANDSMÓT
HESTAMANNA
REYKJAVÍK
1.7.-8.7. 2018
#landsmot2018 • www.landsmot.is
facebook.com/landsmothestamanna
P
i
p
a
r
\
T
B
W
A
\
S
Í
A
TIL 15. JÚNÍ
TRYGGIÐ YKKUR MIÐA Í TÍMA!
18.900
LANDSMÓT
HESTAMANNA
REYKJAVÍK
1.7.-8.7. 2018
#landsmot2018 • www.landsmot.is
facebook.com/landsmothestamanna
P
ip
a
r\
TB
W
A
\
S
ÍA
TIL 15. JÚNÍ
TRYGGIÐ YKKUR MIÐA Í TÍMA!
18.900