Austurland - 14.06.2018, Side 16

Austurland - 14.06.2018, Side 16
8. tölublað 7. árgangur Auglýsingar: Sími 578 1190 og auglysingar@fotspor.is Ritstjórn: Sími 822 8318 og godsnail@gmail.com Gæfuspor að varðveita Löngubúð Langabúð er friðað hús og elsta húsið á Djúpavogi ásamt Verslunarstjóra- húsinu og eru hvortveggja reist árið 1790. Bæði húsin standa á grunnum eldri húsa og eru staðsett þar sem verslunarstaður hefur verið frá árinu 1589, en þá hófu þýskir kaupmenn verslunarrekstur á Djúpavogi. Fyrir tveimur áratugum leit út fyrir að dagar Löngubúðar væru taldir. Af breyttum atvinnuþáttum leiddi nauðsyn á nútímalegra atvinnuhúsnæði. Þá risu upp einstaklingar sem vildu að Langa- búð yrði varðveitt. Nú hefur hún verið endurbætt og henni fengið nýtt hlutverk sem hæfir sögu hennar og mikilvægi fyrir staðinn. Langabúð er orðin ómis- sandi þáttur í menningarlífi Djúpavogs. Í norðurenda hússins er sýning um líf og starf Ríkarðs Jónssonar myndhöggv- ara og myndskera. Um miðbik hússins er minningarstofa um Eystein Jónsson stjórnmálamann frá Djúpavogi og konu hans; Sólveigu Eyjólfsdóttur. Kvenna- smiðjan á Djúpavogi sér um rekstur Löngubúðar auk kaffistofu í suðurenda hússins. Á Löngubúðarloftinu hefur nú verið komið fyrir minjasafni. Listaverk Sigurðar Guðmundssonar, „Egg in í Gleðivík“ stendur við höfnina í Djúoavogi og vekur athygli ferða- manna, innlendra sem erlendra. Verkið er þrjátíu og fjögur steinegg sem sýna egg helstu varpfugla svæðisins. Eitt eggið er stærra, það tilheyrir lóminum sem er einkennisfugl Djúpavogs. Löngubúð hefur verið haldið vel við og er íbúum til mikils sóma. Verið er að gera upp Verslunarstjórahúsið. C M Y CM MY CY CMY K         Nýr miði! LANDSMÓT HESTAMANNA REYKJAVÍK 1.7.-8.7. 2018 #landsmot2018 • www.landsmot.is facebook.com/landsmothestamanna P i p a r \ T B W A \ S Í A TIL 15. JÚNÍ TRYGGIÐ YKKUR MIÐA Í TÍMA! 18.900 LANDSMÓT HESTAMANNA REYKJAVÍK 1.7.-8.7. 2018 #landsmot2018 • www.landsmot.is facebook.com/landsmothestamanna P ip a r\ TB W A \ S ÍA TIL 15. JÚNÍ TRYGGIÐ YKKUR MIÐA Í TÍMA! 18.900

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.