Austurland - 21.02.2019, Síða 2
2 21. febrúar 2019
Steinar Gunnarsson Austfirðingur ársins 2018
Gaf lögreglunni fullþjálfaðan
fíkniefnaleitarhund
Steinar Gunnars son, lög reglu
full trúi á Sauð ár króki, er Aust
firðingur ársins að mati les
enda Austur gluggans/Austur fréttar.
Steinar, sem er upp alinn Norð
firðingur, gaf lög reglunni á Austur
landi fíkni efna leitar hundinn Byl í
fyrra.
,,Á stæðan fyrir gjöfinni er að ég
hef miklar taugar austur. Þar eru
mínar heima slóðir og ég er alinn
upp í lög reglunni þar,“ segir Steinar.
Bylur er labrador á þriðja ári, undan
tík í eigu Steinars og Win kel, hundi
Fangelsis mála stofnunar. Bylur rekur
ættir sínar til vinnu hunda langt
aftur í ættir og sýndi snemma hæfi
leika. Hann er alinn upp af Steinari
og fjöl skyldu en var einnig þjálfaður
í fangelsinu á LitlaHrauni. „Ég byrja
fljótt að búa hvolpana undir það
sem koma skal. Það kom fljótt í ljós
að Bylur væri mjög efni legur og ég
hóf fulla þjálfun þegar hann var 45
mánaða.“
Blur kom austur í nóvember og er
í um sjón Snjó laugar Ey rúnar Guð
munds dóttur, lög reglu þjóns á Egils
stöðum. „Mér skilst að hann sé þegar
farinn að skila árangri og hann og
Snjó laug nái vel saman. Það er ekki
sjálf gefið, en skiptir miklu máli.“
Full þjálfaðir fíkni efna leitar
hundar eru metnir á milljónir króna.
„Þeir eru býsna dýrir en ég veit að
þessum tíma er vel varið. Ég hef
mikla trú á lög reglunni á Austur landi
og svona við bót gerir hana enn betri.“
Kynntist hundum í sveitinni
Steinar er alinn upp á Norð firði
og starfaði í lög reglunni eystra þar
til hann fluttist norður á Sauð ár krók
fyrir tæpum tíu árum. Hann starfar í
lög reglunni þar auk þess að vera yfir
maður hunda þjálfunar lög reglunnar
á lands vísu eftir að lög reglu stjóra
em bættinu á Norður landi vestra var
falið það hlut verk af dóms mála ráðu
neytinu í fyrra.
Steinar segist löngum hafa haft
á huga á hundum en hann byrjaði á
að þjálfa björgunar sveita hunda um
tví tugt áður en hann færði sig yfir í
lög reglu hundana. Hann hefur sagt
frá því í við tölum að hunda á huginn
hafi kviknað á Egils stöðum í Fljóts dal
þar sem hann var í sveit sem strákur
hjá syst kinum ömmu hans.
Steinar með viðurkenninguna. /Mynd: Austurfrétt.
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími • 552-2002
ÓDÝR
Margskipt gleraugu
Verð 39.900 kr
Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur)
Marg i t l augu
Umgjörð og gler
HOLLVINASAMTÖKIN HSFS 10 ÁRA
- vilja netvæða húsnæði Fossahlíðar
Stofnfundur Hollvinasamtaka
H e i l b r i g ð i s s t o f n u n a r
Fossahlíðar Seyðisfirði var
24. janúar 2008 og voru stofnfélagar
152. Á aðalfundi 12.október
sl., á 10 ára á afmælisári, fór
formaður stjórnar yfir farinn veg.
Sömu einstaklingar hafa verið í
stjórn,utan tveir , frá stofnfundinum.
Samtökin og velunnarar hafa fært
Hjúkrunarheimilinu á Seyðisfirði
tæki og tól fyrir andvirði um
30.milljónir króna, eða eða að
meðaltali um 3 milljónir króna ár
hvert. Heiðursfélagar samtakanna eru
tveir, þeir Vilhjálmur Hjálmarsson frá
Brekku Mjóafirði, fyrrv. þingmaður og
ráðherra ( lést 99 ára 14.júli 2014) og
Magnús Pálsson á Egilsstöðum, fyrrv.
form. Verslunarfélags Austurlands.
Fyrsta „stóra verkefnið“ var að safna
fyrir stafrænum röntgenbúnaði sem
sárvantaði. Hrint var af stað söfnun í
bænum og á rúmum mánuði söfnuðust
6 milljónir króna. Annað verkefni sem
nefna má er þegar samþykkt var að
skipta út öllum rúmum heimilisins
fyrir fullkomin ný rafdrifin rúm með
hjálpartækjum. Keypt hafa verið alls
12 slík og eit í viðbót er nú á leiðinni
og er heildarkostnaður um 8 milljónir
króna.
Minnisstætt er haustið 2010
þegar stjórnvöld boðuðu mikinn
niðurskurð til heilbrigðisstofnana í
landinu. HSA (Heilsbrig‘isstofnun
Austurlands) og starfseminni á
Seyðisfirði var gert að draga saman og
spara í rekstri háar upphæðir. Hrun
blasti við starfseminni. Þá brugðust
Hollvinir á Seyðisfirði til varnar með
samstöðusamkomu þar sem þeir
vöfðu sjúkrahúsið sitt þéttu faðmlagi
,hönd í hönd“ allir sem einn, og náði
handtakið allan hringinn um húsið
utan dyra. Eftir gjörningi þessum var
tekið víða um land. Í framhaldinu var
síðan haldinn öflugur stuðningsfundur
í félagsheimilinu Herðubreið á
Seyðisfirði undir kjörorðinu ,,Verjum
okkar heimabyggð,“ og ffylltu
Hollvinir húsið. Í tali og tónum
var áformum stjórnvalda harðlega
mótmælt og kröftug skilaboð send
út. Stuðningsfundinum lauk svo
með tónverkinu ,,Úr Valdastóli“ sem
samið var og flutt m.a. af Bj. Hafþór
Guðmundssyni, Stefáni Bragasyni og
Jónasi Þ.Jóhannssyni.
Árlegt fréttabréf
Árlegt fréttabréf HSFS hefur verið
sent út í upphafi árs til félagsmanna
og borið í öll hús á Seyðisfirði. Þar er
sagt frá því helsta sem samtökin vinna
að hverju sinni. Minningarspjöld
/ áheit með kennitölu og
reikningsnúmeri HSFS (620208
1750 b.017615380032) eru til í
afgreiðslu Heilsugæslunnar og hefur
reynst góður stuðningur við starf
samtakanna. Á afmælisaðalfundinum
12.október sl. var Rúnar Reynisson
yfirlæknir, sem hefur verið gjaldkeri
HSFS frá upphafi, kvaddur þar sem
hann er að flytja burt úr bænum og
honum þökkuð frábær störf.
Óskir um netvæðingu
Eindregnar óskir höfðu borist
stjórn frá starfsfólki og fagráði um að
þrýsta á HSA að netvæða sjúkrastofur
og starfsmannaðsöðu. Eftirfarandi
tillaga var samþykkt samhljóða á
aðalfundinum;
,,Aðalfundur HSFS 12.október
2018 samþykkir að í samvinnu við
tæknideild HSA verði unnið að
því að netvæða sem fyrst húsnæði
Hjúkrunarheimilis Fossahlíðar þ.e.a.s.
sjúkrastofur og starfsmannaaðstöðu
og með því m.a. svara ákalli og færa
þjónustuna betur nær nútimanum.“
Núverandi stjórn HSFS skipa þau
Arnbjörg Sveinsdóttir, Ragnhildur
Billa Árnadóttir, Óttar M. Jóhannsson,
Vilhjálmur Jónsson og Þorvaldur
Jóhannsson.
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Fossahlíðar Seyðisfirði urðu 10 ára á sl. ári.
Hönd í hönd 5.október 2010. /mynd: Sólveig Sigurðardóttir.
Hluti fundargesta á aðalfundi HSFS 12.október sl. /mynd: Ragnhildur Billa.
Verslunin
Belladonna
Stærðir
38-58
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS