Austurland - 21.02.2019, Síða 11
GÓÐUR TÍMI TIL AÐ PANTA
2019 ÁRG. AF HOBBY
Ontour 390SF verð 3.000.000
Deluxe 460Ufe verð 3.500.000
Excellent 495UL verð 3.700.000
Excellent 540UL Verð 3.880.000
Excellent 560Cfe verð 4.200.000
Premium 495UL verð 4.330.000
Premium 560UL verð 4.700.000
Premium 560Cfe verð 4.860.000
UPPLÝSINGAR GEFUR BÓAS EÐVALDSSON - BOSAL.IS - SÍMI 7775007 - EMAIL: BOSAL@BOSAL.IS
Sjálfskyptur, 500 Hestöfl,
Pretarder, Bakkmyndavél,
Ískápur, Leiðsögukerfi, Sím-
kerfi, Álfelgur.
Stál pallur með yfirbreiðslu
og vökvagabli.
Sturtu dæla á mótor.
Afhendist hvar sem er á
landinu
Verð 17.000.000
+ Vsk
2.4 Ltr vél, 18” Álfelgur,
Bakkmyndavél, símkerfi,
Snertiskjár, Lyklalaust
aðgengi.
Dráttarkúla aftakanleg
110.000 kr auka.
5 Ára ábyrgð, 8 Ára ábyrgð á
Rafgeymum.
Verð 4.400.000kr
NÝIR 2019 MITSUBISHI
OUTLANDER PLUG-IN HYBRIT
MAN 8X8 ÁRG 2018
EKINN 23.000 KM
GÓÐUR TÍMI TIL AÐ PANTA
2019 ÁRG. AF HOBBY
Ontour 390SF verð 3.000.000
Deluxe 46 Ufe verð 3.5 .
Excell nt 495UL verð 3.700.000
ll 540 Verð 3.880.000
xcel nt 6 Cfe v 4.20 .
Premi 495UL erð .330.000
i 560 v 4.70 .
re ium Cfe erð .860.000
UPPLÝSINGAR GEFUR BÓAS EÐVALDSSON - BOSAL.IS - SÍMI 7775007 - EMAIL: BOSAL@BOSAL.IS
Sjálfskyptur, 500 Hestöfl,
Pretarder, Bakkmyndavél,
Ískápur, Leiðsögukerfi, Sím-
kerfi, Álfelgur.
Stál pallur með yfirbreiðslu
og vökvagabli.
Sturtu dæla á mótor.
Afhendist hvar sem er á
landi u
Verð 17.000.000
+ Vsk
2.4 Ltr vél, 18” Álfelgur,
Bakkmyndavél, símke fi,
Snertiskjár, Lyklalaust
aðgengi.
Dráttarkúla aftakanleg
110.000 kr uka.
5 Ára ábyrgð, 8 Ára ábyrgð á
Rafgeymum.
Verð 4.400.000kr
NÝIR 2019 MITSUBISHI
OUT ANDER PLUG-IN HYBRIT
MAN 8X8 ÁRG 2018
EKI N 23. 0 KM
UPPLÝSINGAR GEFUR BÓAS EÐVALDSSON - BOSAL.IS - SÍMI 7775007 - EMAIL: BOSAL@BOSAL.IS - HAFNARGATA 28, 710 SEYÐISFIRÐI
-Nýir 2019 árgerð
-2,4 lítra Bensínvél 135 hestöfl +
Rafmagn
-Fjórhóladrifnir
-Lyklalaust aðgengi og start
-Bakkmyndavél með hjálparlínum
-Snertiskjár
-Símkerfi
-Sæti 50/50 leður
-Hraðastillir
-Metalic lakk
-Þokuljós
-Aðgerðarstýri
-Hiti í framsætum
-USB innstungur
-Start/stop Automatic
-Dekkjaþrýsti kerfi
-Leðurstýri
-18” álfelgur
-Apple CarPlay
-Blátannabúnaður
-Loftkæling 2 rása
-Regn og ljósaskynjari
-Rafm hitaðirspeglar og aðfellanlegir
-Borðtölva
-Dráttarkúla aftengjanleg ( kostar kr
110.000 auka )
-5 ára ábyrgð
-8 ára ábyrgð á rafgeymum og hleðslu
Verð kr 4.300.000 skráður
MITSUBISHI OUTLANDER PLUG-IN HYBRIT 230 HESTÖFL
,,LIST Í LJÓSI“ Á SEYÐISFIRÐI HLAUT EYRARRÓSINA 2019
Eyrarrósin er viðurkenning
sem veitt er framúrskarandi
menningarverkefni utan
höfuðborgarsvæðisins. Hún
beinir sjónum að og hvetur til
menningarlegrar fjölbreytni,
nýsköpunar og uppbyggingar á sviði
menningar og lista. Að verðlaununum
standa í sameiningu Byggðastofnun,
Air Iceland Connect og Listahátíð í
Reykjavík.
Þau menningarverkefni sem áttu
möguleika á Eyrarrósinni 2019 voru:
Leiklistar og listahátíðin Act
Alone, sem haldin verður í 16. sinn í
sumar á Suðureyri, hefur markað sér
algera sérstöðu á landsvísu með því
að helga sig listum þar sem aðeins ein
manneskja stendur á sviðinu.
Undanfarin fjögur ár hefur
Gamanmyndahátíð Flateyrar verið að
festa sig í sessi. Hátíðin er ein af örfáum
gamanmyndahátíðum Evrópu en um
30 íslenskar gamanmyndir eru sýndar
á hátíðinni ár hvert; stuttmyndir eftir
unga leikstjóra í band við þekktar
myndir í fullri lengd.
List í ljósi hefur vaxið ásmegin
ár frá ári og laðar nú að sér breiðan
hóp listafólks og gesta til þátttöku í
metnaðarfullri og fjölbreyttri dagskrá.
Í ár stendur hátíðin m.a. fyrir verkefni
með aðkomu listafólks frá öllum
Norðurlöndum sem munu skapa
ljósaverk sérstaklega fyrir hátíðina.
Hápunktur List í ljósi er listaganga
þar sem öll götu og húsaljós í bænum
eru slökkt og gestir geta gengið milli
sýningarstaða til að njóta kvikmynda,
innsetninga og ljósverka af ýmsum
toga. Rík áhersla er lögð á þátttöku
almennings í hátíðinni sem er bæði
ókeypis og fjölskylduvæn.
LungA skólinn er tilraunakenndur
jarðvegur fyrir sköpun, listir og
fagurfræði sem rekinn hefur verið
af miklum metnaði á Seyðisfirði frá
vorönn 2014 í góðum tengslum við
LungA hátíðina. Hann er listaskóli
fyrir þá sem hafa opinn huga, fyrir þá
ótömdu og fyrir þá sem vilja rannsaka.
Skólinn ýtir undir sérstöðu hvers
einstaklings og styður við bakið á
nemendum svo þeir finni sér sína leið
í átt að sterkari sjálfsmynd, ásamt því
að þroskast, skilja betur heiminn og
finna sitt hlutverk í honum.
Northern Wave er eina alþjóðlega
stuttmyndahátíðin á Íslandi en hún
verður haldin í tólfta sinn í ár og
hefur nú fest rætur í Frystiklefanum
á Rifi, Snæfellsbæ. Hátíðin býður
upp á fjölbreytt úrval alþjóðlegra
stuttmynda, hreyfimynda, vídeóverka
og íslenskra tónlistarmyndbanda, auk
viðburða eins og fiskiréttasamkeppni,
fyrirlestra, vinnustofur og tónleika.
Markmið hátíðarinnar er að auka
menningarframboð á landsbyggðinni
og sameina fólk úr ólíkum
bæjarfélögum, af ólíkum þjóðernum
og frá ólíkum listgreinum.
Í þrjú ár hefur grasrótar
myndlistarhátíðin PlanB verið
að festa sig í sessi í Borgarnesi
og nærumhverfi. Um er að ræða
alþjóðlega hátíð sem er vettvangur
fyrir ungt listafólk sem er nýlega farið
að vekja athygli á sviði myndlistar
og gjörningalistar en er einnig opin
reynslumeira listafólki. PlanB
leggur áherslu á tilraunakennda og
ögrandi list. Hátíðin fer fram víðs
vegar í Borgarnesi í óhefðbundnum
rýmum, s.s. yfirgefnum verksmiðjum,
geymslum, skemmum og
hálfkláruðum byggingum.
List í ljósi er afburða
menningarverkefni á
landsbyggðinni
,,Þvílíkur heiður, var það fyrsta sem
ég hugsaði þegar ég heyrði að hátíðin
okkar, List í ljósi, hlyti Eyrarrósina í
ár,“ segir Seyðfirðingurinn Sesselja
Jónasardóttir, sem ásamt Celiu
Harrison tók við verðlaununum
úr hendi Elizu Reid, forsetafrúar
og verndara Eyrarrósarinnar þegar
úrslitin voru tilkynnt suður í
sveitarfélaginu Garði, sem reyndar
er orðinn hluti sveitarfélagsins
Suðurnesjabæjar. Eyrarrósin er veitt
árlega fyrir afburða menningarverkefni
utan höfuðborgarsvæðisins. Sesselja
segir þetta vera þriðju rósina sem
komi til Seyðisfjarðar því LungA
hátíðin og Skaftfell hafi áður hlotið
hana. „Þetta er mikil viðurkenning
fyrir menningarbæinn okkar.“
Sesselja segir að þær Celia
Harrison, vinkona hennar, hafi
stofnað List í ljósi fyrir fjórum árum.
„Celia átti hugmyndina. Hún er frá
NýjaSjálandi og hafði verið með
svipaða hátíð þar áður en hún kom
til Seyðisfjarðar. Þegar hún sagði
mér frá henni sagði ég strax: „Þetta
skulum við gera hér!“ Við vorum tvær
í upphafi en fáum stöðugt fleiri til liðs
við okkur með hverju ári. Það eru 65
sem taka þátt í hátíðinni sem hófst sl.
föstudag þegar öll ljós voru slökkt á
Seyðisfirði, bæði götuljós og húsaljós
og listaverkin lýstu upp bæinn frá
klukkan sex til tíu, alls um þrjátíu
verk.“
Leiklistar og listahátíðin
Act Alone á Suðureyri og
stuttmyndahátíðin Northern Wave
/ Norðanáttin í Snæfellsbæ hlutu
tilnefningu til Eyrarrósarinnar og 500
þúsund króna verðlaunafé hvor. Tvær
milljónir króna féllu List í ljósi í skaut,
auk verðlaunagrips sem hannaður
er af Friðriki Steini Friðrikssyni
vöruhönnuði.