Suðri - 04.07.2019, Blaðsíða 2
2 4. júlí 2019
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Einstök gæði frá
40 ár
á Íslandi
Sterkir og
notendavænir
sláttutraktorar
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími • 552-2002
ÓDÝR
Margskipt gleraugu
Verð 39.900 kr
Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur)
Marg i t l augu
Umgjörð og gler
Samið við Flugbjörgunar-
sveitina á Hellu
Rangárþing ytra og
Flugbjörgunarsveitin á
Hellu hafa undirritað
samstarfssamning til fjögurra
ára vegna starfsemi sveitarinnar
sem tryggir að starfsemi hennar
verði áfram jafn öflug og verið
hefur. Með samningnum er
Flugbjörgunarsveitinni tryggðir
fjármunir til starfseminnar sem nema
8.000.000 kr á tímabilinu.
Samningurinn felur í sér eflingu
æskulýðs- og tómstundastarfs
en Flugbjörgunarsveitin hefur
haldið úti öflugu æskulýðs- og
tómstundastarfi með ungliðadeild
sem snýr að því að byggja upp og
þjálfa unga björgunarsveitarmenn
til að vinna í hóp, leysa verkefni á
við fyrstu hjálp, rötun, fjallamensku
og aðgerðarstjórnun með
reglubundnum æfingum og ferðum.
Flugbjörgunarsveitin heldur úti
öflugum fjallabjörgunarhópi,
sleðaflokk og sérhæfðum hundahópi
og er það styrkt sérstaklega. Þá mun
sveitin taka að sér ýmis verkefni
tengdum viðburðum á vegum
sveitarfélagsins. Þá eru kaup á
björgunarbúnaði sem og viðhald
húsnæðis styrkt.
Flugbjörgunarsveitin á Hellu
heldur einnig heldur utan um, þjálfar
og byggir upp, öflugt net sjálfboðaliða
í björgunarstörfum sem geta tekist á
við hin ýmsu verkefni sem upp koma
á svæðinu, hvort sem það er vegna
veðurs, náttúruvár eða aðstoðar við
ferðamenn.
Það er sveitarfélaginu dýrmætt að
hér sé starfrækt öflug björgunarsveit,
skipuð einstaklingum sem ávallt eru
tilbúnir til að bregðast við þegar útköll
berast.
Almar opnar á Selfossi
Almar bakari opnaði nýtt og glæsi legt bakarí á Sel fossi þann 26. júní. Bakaríið er til húsa í nýja verslunar- og
þjónustu húsinu við Larsen stræti á milli nýja póst hússins og verslana Hag kaups og Bónus á Sel fossi. Þar verður
einnig ný vín búð ÁTVR.
Almar bakari er ekki ó kunnugur Sel fyssingum en hann rak bakarí á Sel fossi fyrir ekki svo löngu síðan. Nýja bakaríið er
með 40 sætum og litlum bakar ofni sem bakar á kveðnar vörur á staðnum.