Suðri - 04.07.2019, Blaðsíða 8

Suðri - 04.07.2019, Blaðsíða 8
8 4. júlí 2019 Mikil óánægja með ástand vega í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Sveitarstjórn Skeiða-og Gnúpverjahrepps blés á dögunum til fundar í félagsheimilinu Árnesi vegna mikillar óánægju með ástand vegamála. Á fundinn mættu ráðherra samgöngumála, þingmenn, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar, lögreglustjórinn, formaður samgöngunefndar SASS, ásamt góðum fjölda íbúa og annarra. Kristófer A. Tómas son er sveitar- stjóri Skeiða-og Gnúp verja hrepps og tók Suðri kappann tali um fundinn, til efni hans og helstu mál efnin í sveitar fé laginu. Hvert var til efni fundarins? „Sveitar stjórnin og ég erum lang- eyg eftir úr bótum í vega málum í sveitar fé laginu. Árum saman hefur lítið miðað í þeim efnum. Við töldum það skyldu okkar að kalla til ráða- manna þjóðarinnar í von um úr- bætur. Fundurinn var vel sóttur og margir tóku til máls. Að mínu mati heppnaðist hann vel, fundir sem þessi eru til raun til að kalla eftir úr bótum í vega málum.“ Er ó á nægja í sveitar fé laginu með á stand veganna, og hvað þá helst? „Já það leynir sér ekki að það er mikil ó á nægja með á stand vega í sveitar fé laginu. Í búar upp lifa það svo að þetta sveitar fé lag hafi orðið al ger- lega út undan hvað varðar endur bætur og við hald vega. Ég leyfi mér að full- yrða að þetta sé mjög al mennt við horf íbúa. Víða er efni í vegunum orðið nánast upp urið. Víða þarf að byggja vegina upp og fullt til efni til að leggja slit lag á fleiri vegi hér. Slæmt á stand vega stendur hreint út sagt at vinnu- starf semi og dag legu lífi fólks fyrir þrifum. Það ber að geta þess að það er víða um slysa hættu að ræða í þessu sam bandi.“ Kom eitt hvað fram í máli ráð herra og þing manna sem horfir til úr bóta? „Ráð herra og þing menn gáfu væntingum okkar um úr bætur, eitt- hvað undir fótinn með það. Hvað sem kann að verða úr því. Við metum á huga þeirra, sem og að lör eglu stjóri og svæðis stjóri Vega gerðarinnar skyldu eyða með okkur kvöld stund.“ Er von á meira fé í safn- og tengi vegi? „Já það var á nægju legt að Svanur Bjarna son svæðis stjóri Vega- gerðarinnar til kynnti okkur að um- tals verðum fjár munum yfir varið í ofan í burð og styrkingu safn og – tengi vega í sveitar fé laginu nú í sumar. Efni úr námu í Skálda búðum er ætlað í það. Ég bind vonir við að það skili sér í úr bótum á vegunum.“ Hvað ber annars hæst í sveitar fé laginu, til dæmis er varðar þróun í búa fjölda og at vinnu mála? „Það er næg at vinna í sveitar fé- laginu. Ég veit ekki til að neinn sé at vinnu laus. Við erum um 610 í búar um þessar mundir. Á sjö árum hefur þeim fjölgað um ná lægt 100 manns. Við búum að góðum inn viðum sem myndu taka við tals vert fleiri í búum. Það er á nægju legt að það er að fjölga í leik – og grunn skóla. Það er meira byggt af í búðar hús næði í sveitar- fé laginu, en verið hefur í mörg ár. Þriggja í búða rað hús er nánast til búið í Ár nes hverfi, það verður grafið fyrir öðru þriggja í búða rað húsi í því hverfi innan skamms og sökkull að par húsi var steyptur í Brautar holts hverfi fyrir nokkrum dögum. Ég held að það muni verða auð velt að fylla þessar í búðir af fólki. Mikið er spurt um hús- næði og allt sem boðið hefur verið til sölu að undan förnu hefur selst og fast- eigna verð fer stígandi. Frið lýsing hluta Þjórs ár dalsins er í vinnslu og undir búningur fyrir upp byggingu ferða þjónustu við Reyk holt í Þjórs ár dal er í far vatninu. Land búnaðurinn stendur til tölu- lega traustum fótum hér, einkum mjólkur fram leiðsla. Erfiðleikar í loðdýraræktinni koma reyndar við sögu hér. Ferða þjónusta hefur byggst upp ró lega. Vinna við nýtt aðal skipu- lag hefur verið í vinnslu undan farið og er komið í aug lýsingu.“ - bgs Kristófer A. Tómas son er sveitar stjóri Skeiða-og Gnúp verja hrepps Mynd Mats Wibe Lund. Tvær nýjar íslenskar ljóðabækur Í sumar komu út tvær nýjar ljóðabækur eftir íslenska höfunda; Líkn eftir Hildi Eir Bolladóttur og Ljóð 2007-2018 eftir Valdimar Tómasson Líkn er fyrsta ljóðabók séra Hildar Eirar. Hildur er Íslendingum að góðu kunn fyrir einlægar, hispurslausar og kjarnyrtar predikanir og pistla um málefni líðandi stundar.  Hún hefur áður gefið út bókina Hugrekki – sögu af kvíða  sem þótti einlæg og fyndin þrátt fyrir erfitt viðfangsefni.  Ljóð 2007-2018 er samansafn allra ljóðabóka Valdimars Tómassonar en einlæg og sársaukafull ljóð hans  hafa snortið hjartastrengi og notið vinsælda allt frá því fyrsta bók hans,  Enn sefur vatnið, kom út. Englar og menn – tónlistarhátið Strandarkirkju Hin árlega  tónlistarhátíð  Englar  og  menn  hófst í Strandarkirkju sunnudaginn 30. júní með opnunartónleikum. Yfirskrift tónleikanna var ,,Himinborna dís” en flytjendur eru Björg Þórhallsdóttir sópran,  Elísabet Waage hörpuleikari,  Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Hilmar Örn Agnarsson organisti. Megnið af efnisskránni verða sönglög Atla Heimis Sveinssonar,  helguð minningu hans, en einnig sönglög eftir Sigvalda Kaldalóns Franz Schubert o.fl. Hátíðin stendur yfir frá 30. júní til 11. ágúst með tónleikum á sunnudögum kl. 14. Á hátíðinni í ár koma fram margir af fremstu söngvurum og tónlistarmönnum landsins ásamt nýstirnum úr íslenskum söngheimi. Í  Strandarkirkju  er einstakur hljómburður og helgi sem skapar hlýja stemningu  og  nálægð. Flytjendur sumarsins eru með það í huga við val á efnisskrá sinni sem er afar fjölbreytt og spennandi að vanda og  rík áhersla er lögð á flutning þjóðararfsins - íslenskra þjóðlaga og sönglaga.  Aðrir flytjendur sumarsins eru:  7. Júlí - Lilja Guðmundsdóttir sópran, Kristín Sveinsdóttir mezzósópran og Helga Bryndís Magnúsdóttir harmóníum og píanó;  14. júlí - Hrafnhildur Árnadóttir sópran, Þorsteinn Freyr Sigurðsson og Matthildur Anna Gísladóttir harmóníum og píanó;  21. Júlí - Auður Gunnarsdóttir sópran, Ágúst Ólafsson baritón og Eva Þyrí Hilmarsdóttir harmóníum og píanó;  28. júlí - Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sópran, Egill Árni Pálsson tenór og Hrönn Helgadóttir harmóníum og píanó;  4. ágúst - Vala Guðnadóttir sópran og mandólín, Helga Laufey Finnbogadóttir harmóníum og píanó og Guðjón Þorláksson kontrabassi.  Á lokatónleikum hátíðarinnar 11. ágúst kl.14 koma svo fram Björg Þórhallsdóttir sópran,  Oddur Arnþór Jónsson baritón, Elísabet Waage hörpuleikari, Gunnar Kvaran sellóleikari og Hilmar Örn Agnarsson organisti.   Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona er listrænn stjórnandi  og  framkvæmdastjóri hátíðarinnar, sem er styrkt af Sambandi sunnlenskra sveitarfélaga, Tónlistarsjóði  og  Strandarkirkjunef nd.  Aðgangseyrir að tónleikunum er 2.900 kr. Strandarkirkja er ein þekktasta áheitakirkja landsins  og  þykir þar vera sérstakur kraftur til hjálpar  og  bænheyrslu. Yfirskrift hátíðarinnar vísar til helgisagnarinnar um fyrstu kirkjuna þar, um ljósengilinn sem birtist  sæförum í  sjávarháska  og  þeir hétu á í örvæntingu sinni. Hann vísaði þeim að landi  og  þeir reistu  þar kirkju í þakklætisskyni.   Mikil fegurð er í Selvognum  og  þangað er tæpur klukkustundar akstur frá Reykjavík um Þrengslin. Tilvalið er að taka með sér nesti eða fá sér veitingar hjá heimamönnum.   Nánari upplýsingar veitir Björg Þórhallsdóttir í síma 898 4016. www.hafnarfrettir.is

x

Suðri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Suðri
https://timarit.is/publication/1143

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.