Suðri - 05.12.2019, Síða 8
8 5. desember 2019
Kiwanis er alþjóðleg
þjónustuhreyfing manna
og kvenna sem hafa það
að markmiði að taka þátt í að
bæta samfélagið og láta gott af sér
leiða undir kjörorðinu: „Hjálpum
börnum heimsins“. Hreyfingin
leggur áherslu á manngildi og eflingu
félagskenndar meðal félagsmanna.
Hver Kiwanisklúbbur reynir að þjóna
sem best því samfélagi þar sem hann
starfar. Í Kiwanis eru kvenna-, karla-
og blandaðir klúbbar og er hreyfingin
ávallt tilbúin að aðstoða við stofnum
nýrra klúbba og taka við nýjum
félögum. Það þarf aðeins að senda
póst á seinars@kiwanis.is og biðja um
að vera með.
Kiwanisklúbburinn Ós á
Hornafirði hefur starfað í 31 ár og
stendur nú til að stofna kvennaklúbb.
Haldinn var kynningafundur í
október með þátttöku umdæmis-
stjóra og fjölgunarnefndar og
Kiwanisklúbbnum Freyju á
Sauðárkróki. Mikil hugur er hjá
konunum um að hittast næst í
nóvember og hafa nokkrar sem ekki
komust á fundinn haft samband
um að þær ætli að vera með.
Freyjurnar uppfræddu konurnar á
Höfn í gegnum netið um Kiwanis og
starfsemi klúbba. Þær eru tilbúnar
tl að aðstoða nýjan klúbb og leiða
þær í gegnum ferlið til stofnunar
kvennaklúbbs. Þær ætluðu að vera
á staðnum en veðrið setti strik í
reikninginn. Konur í Sveitarfélaginu
Hornafirði eru hvattar að senda póst
á seinars@kiwanis.is ef þær vilja vera
„Hjálpum börnum heimsins“
og gakktu til liðs við okkur í
Kiwanis!
Haukur Sveinbjarnarson sæmdur sem Heiðursfélagi í Kiwanisklúbbum Ós af forseta Ós Jóni Áka Bjarnasyni
með eða leita að hópnum Konur í
Kiwanis Höfn á Facebook og biðja
um að bætast í hópinn.
En hvað gerir Kiwanisklúbburinn
Ós fyrir samfélagið? K úbburinn
hefur styrktarsjóð til að halda utan
um ágóða af verkefnum klúbbsins.
Árlega eru tíu bágstaddar fjölskyldur
styrktar í kringum jólin og nýtist hluti
af jólatréssölunni í það. Ós hefur styrkt
grunnskólann og framhaldsskólann
með veglegum gjöfum gegnum
árin. Heilbrigðisþjónustan hefur
fengið sinn hluta af söfnunarfé til
tækjakaupa og ýmsar safnanir hafa
verið til hjálpar langveikum börnum.
En ágóði af árlegri jólatrjásölu,
páskabingói og Groddaveislu fer í
Styrktarsjóð Óss og er þaðan veitt út
til samfélagsins.
Nefna má að í gangi er hjá
Kiwanisumdæminu að stofna fleiri
klúbba á Suðurlandi og stofnuð hefur
verið fésbókarhópurinn Kiwanis
væntanlegt í Rangárvallasýslu og eru
allir áhugasamir hvattir til að ganga
í hópinn eða senda póst á kiwanis@
kiwanis.is
Þau verkefni Kiwanis hreyfingar-
innar á Íslandi sem eru hvað þekktust
er sala á K-lyklinum sem er seldur
undir kjörorðinu „Gleymum ekki
geðsjúkum“. Með þessu átaki hefur
hreyfingin styrkt geðverndarmál frá
árinu 1974 fyrir á fjórða hundrað
milljóna og vakið athygli á þessum
sjúkdómi sem enn í dag er oft
mikið feimnismál. Síðast í núna í
september var Kiwanis að styrkja
BUGL og PIETA-samtökin með
20 milljónum sem kom úr síðustu
söfnun á K-lyklinum. Þá þekkja
flestir hjálmaverkefnið þar sem
markmiðið er að stuðla að öryggi
barna í umferðinni með því að gefa
öllum í fyrsta bekk grunnskóla
reiðhjólahjálma. Þetta var gert að
landsverkefni árið 2003 og hefur
aðalstyrktaraðili verkefnisins um
árabil verið Eimskip.
Á heimsvísu hefur hreyfingin
unnið þrekvirki í mörgum málefnum
eins og að útrýma joðskorti í
heiminum, en þetta verkefni
var í samstarfi við UNICEF.
Hreyfingin hefur einnig unnið
að stífkrampaverkefni MNT
(Maternal/Neonatal Tetanus) með
UNICEF en það snýst um að lækna
fæðingarstífkrampa til bjargar
mæðrum og ófæddum börnum
þeirra í 39 löndum. Í dag eru 12
lönd ennþá að berjast við stífkrampa
en í 27 löndum hefur tekist að eyða
honum og verður Kiwanishreyfingin
á fullu með í því verkefni þangað til
sigur hefur unnist.
Á landsvísu viljum við bæta við
fleiri verkefnum í þágu barna og til að
efla starf okkar og gera hreyfinguna
öflugri. Því hvetjum við alla sem vilja
starfa í skemmtilegum félagsskap og
láta um leið gott af sér leiða að slást
í hópinn. Þá vil ég þakka fyrir hönd
hreyfingarinnar allan þann stuðning
við safnanir og starf okkar í gegnum
tíðina.
Með Kiwaniskveðju
Sigurður Einar Sigurðsson
Umdæmisritari og félagi í
Kiwanisklúbbnum Ós
Konur á kynningafundi um stofnun á Kiwanisklúbbi á Höfn
Umdæmisstjóri Tómas Sveinsson, Haukur Sveinbjörnsson formaður Fjölgunarnefndar og Svavar Svavarsson
umdæmisféhirðir
Frá vinsti eru félagar í Ós. Haukur, Stefán Brandur, Sigurður Einar og Jón Áki