Suðri - 05.12.2019, Blaðsíða 14

Suðri - 05.12.2019, Blaðsíða 14
14 5. desember 2019 Selfyssingurinn Elvar Geir Sævarsson veiktist alvarlega og óvænt þann 22. ágúst síðastliðinn. Vinir hans hafa boðað til samstöðu- og styrktarpartýs á Hard Rock Café í Reykjavík föstudagskvöldið 6. desember þar sem fjöldi listamanna kemur fram. Meðal þeirra sem stíga á stokk eru Flekar, Morðingjarnir, Kolrassa krókríðandi, Skálmöld, Sólstafir og HAM. Elvar hefur lengi verið viðriðinn tónlistarbransann og spilað á gítar með fjölda hljómsveita auk þess sem hann starfar sem hljóðmaður hjá Þjóðleikhúsinu. „Það er áfall að vera kippt út úr sínu eðlilega lífi á augabragði og þá er gott að finna að maður er ekki einn,“ segir Stefán Magnússon, vinur Elvars og einn þeirra sem standa að tónleikunum. „Það er dýrt að verða veikur og því fylgir vinnutap og Samstöðu- og styrktarpartý fyrir Elvar við viljum síst af öllu að Elvar Geir hafi fjárhagsáhyggjur þegar hann á eingöngu að vera að einbeita sér að því að ná bata.“ Vonandi geta sem flestir mætt á tónleikana á föstudagskvöldið, en Mynd: Guðmundur Karl/sunnlenska.is þeir sem sjá sér ekki fært að mæta geta lagt inn á styrktarreikning sem opnaður hefur verið fyrir Elvar, nr: 0370-22-018601, kt. 120583-3609. Unnur Birna og Björn Thoroddsen ásamt hljómsveit hafa spilað víðsvegar um gjörvalt landið 2019 við mikinn fögnuð nær og fjær- staddra.Þau ætla að slá í endann á árinu með smá jólagleði á fáum útvöldum stöðum. Þann 14. desember verða þau á Midgard Base Camp og koma með jólaandann, gleði og gæði. Þau verða ekki ein því Dívan Hera Björk mun einnig koma fram á þessum tilteknu tónleikum en hún og Björn ferðuðust í sumar hringinn í kringum landið við góðan orðstýr. Jólatónleikar Midgard Base Camp 2019 -Unnur Birna, Hera Björk og hljómsveit Bjössa Thor. Með þeim leika Sunn lenska Rhytma-parið Skúli Gíslason á Trommur Sigur geir Skafti Flosason á Bassa. Það er nokkuð ljóst að hér stefnir í eftirminnilega kvöldstund. Að hér finni allir eitthvað við sitt hæfi. Forsala miða verður auglýst fljótt en hafa skal það í huga að takmarkað magn miða er í boði. Hlökkum til að sjá ykkur. Kærar kveðjur. Unnur, Hera og Bjössi. Sveitarfélagið Árborg hefur nú tilraunaverkefni með fyrstu grenndarstöð innan sveitarfélagsins. Grenndarstöðin verður staðsett vestan við bílastæði Sunnulækjarskóla. Grenndarstöðin er hugsuð sem yfirfall frá heimilum á bláu tunnunni og má koma með allan endurvinnanlegan heimilisúrgang. Gilda hér sömu reglur og um bláu tunnuna hvað varðar þá flokka sem má henda. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um flokkana á vefsíðu Árborgar sem og vefsíðu Íslenska gámafélagsins. Að auki er hægt að koma með smáhluti úr gleri og postulíni til endurvinnslu í grenndarstöðina í sérmerkt hólf. Verkefnið snýst um að auka þjónustu við íbúa sveitarfélagsins, og mun standa í þrjá mánuði. Að því búnu verður reynslan metin út frá athugasemdum frá íbúum, þjónustuaðila og starfsmönnum sveitarfélagsins auk þess sem reynslan af umgengni íbúa mun vega þungt. Ef vel tekst til, þá eru uppi hugmyndir um að bæta við grenndarstöðvum á fleiri staði innan sveitarfélagsins. Biðlað er til íbúa og gesta að ganga vel um stöðina og ekki skilja eftir endurvinnanlegan heimilisúrgang við stöðina ef hún er full, heldur tilkynna að það þurfi að losa í síma 480-1900. Starfsmenn þjónustumiðstöðvar munu vakta Grenndarstöð í Árborg – tilraunaverkefni stöðina til að byrja með og út frá þeirri vöktun losunartíðni skipulögð. Hvað má flokka? Bylgjupappa o t.d. pizzakassar— má losa beint í stöðina· Sléttan pappa og fernur o t.d. morgunkornspakkar, eggjabakkar og pappírsrúlluhólkar – má losa beint í stöðina Dagblöð og tímarit og einnig umslög, skrifstofupappír og annan prentpappír – má losa beint í stöðina Plastumbúðir og allar umbúðir úr hörðu eða mjúku plasti, t.d. plastpoka, hreinsiefnabrúsa, skyrdósir og plast- filmu – má losa beint í stöðina. Málma og t.d. niðursuðudósir, álpappír, krukkulok og sprittkerta- koppar og þarf að losa beint í stöðina, ekki í pokum. Muna að fjarlægja allar matar– og efnaleifar og minnka umfang umfang umbúða eins og hægt er, t.d. með því að brjóta saman kassa. PON Pétur O. Nikulásson ehf. | Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • Meira útsýni • Þægilegra innstig • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu • Hnappur sem losar glussaþrýsting á tengjum • Og margt fleira Góð viðgerða- og varahlutaþjónusta Manitou er þarfasti þjónninn í dag til lands og sveita

x

Suðri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Suðri
https://timarit.is/publication/1143

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.