Suðri - 05.12.2019, Blaðsíða 16

Suðri - 05.12.2019, Blaðsíða 16
Auglýsingar: Sími 578 1190 og amundi@fotspor.is Ritstjórn: Sími 863 5518 og sudri.heradsblad@gmail.com 11. tölublað 5. árgangur VILTU AUGLÝSA Í SUÐRA? AUGLÝSINGASÍMINN ER 578-1190 Þegar tveir miklir sagna- meistarar sem hafa verið nánir vinir frá unglingsárum leggja saman í púkk er viðbúið að útkoman verði safarík og skrautleg. Í bókinni Með sigg á sálinni segir Einar Kárason rithöfundur frá ævi Friðriks Þórs Friðrikssonar, allt frá bíódögum og sveitasögum bernskunnar til Óskarsverðlaunatilnefningar og kynna leikstjórans af stórstjörnum af ýmsu tagi. Lífsferill Friðriks Þórs hefur verið bæði ævintýralegur og öfgafullur. Hann hefur legið milli heims og helju á gjörgæsludeild í Þessalóníku við hliðina á sundurskotnum eiturlyfjabarón; verið handtekinn um nótt í Brasilíu sem grunaður hryðjuverkamaður; rekið umsvifa- mikið fyrirtæki og misst aleiguna; veitt marga stórfiska sem ekki minnka neitt að ráði í frásögnum þeirra félaganna; gert kvikmyndir um norræna kúreka, braggabúa, skyttur og fálkaþjófa, alheimsengla og einhverfu – og er þá fátt eitt talið. Í bókinni er sagt frá fjölmörgum litríkum karakterum, sumum heims þekktum, öðrum af botni mannfélagsins og ýmsum þar á milli – en alltaf tekst þeim Friðriki og Einari að draga fram gamanmál eða örlagasögur sem gera þá minnisstæða. Með sigg á sálinni Ú T FA R A R ST O FA ÍS LA N D S sí ð a n 1 9 9 6 A LÚ Ð • V IR Ð IN G • T R A U ST • R EY N SL A Sí m ar a lla n só la rh ri ng in n: 5 81 3 30 0 & 8 96 8 24 2 • w w w .u tf or in .is K om um h ei m ti l a ðs ta nd en da o g ræ ðu m s ki pu la g út fa ra r e f ó sk að e r. M ar gr ét Á st a G uð jó ns dó tti r Sv er ri r E in ar ss on K ri st ín In gó lfs dó tti r Bíldshöfða 16 Sími: 661-1902 Hámarks þyngd notanda: 130 kg. Halli 0 til 15% 3 hp mótor 12 prógröm Hátalarar og MP3 Hraði 3-16 km/klst Stærð brautar: 47x133 cm Verð 99.000 kr. Alvöru græja Sagnasjóður handa nýrri öld Íslendingasögur og þættir í nýrri og glæsilegri fimm binda heildarútgáfu Ritstjórar útgáfunnar eru Aðalsteinn Eyþórsson, Bragi Halldórsson, Jón Torfason, Sverrir Tómasson og Örnólfur Thorsson. Útgáfan er skreytt 40 myndum eftir dönsku listakonuna Karin Birgitte Lund. Útgáfan er aðgengileg og læsileg, sögurnar 40 og þættirnir 51 eru á nútímastafsetningu og þeim fylgja ítarlegir formálar sem greiða götur um veröld sagnanna, vandaðar orðskýr- ingar, vísnaskýringar og nafnaskrá auk greina og mynda sem varpa ljósi á húsakost og híbýli, skip og siglingar, vopn og verjur. Þá fylgir útgáfunni sagnalykill sem nýtist þeim sem vilja skyggnast dýpra í sagnaheiminn, skoða sambærilega þætti í fleiri en einni sögu, hvort sem áhuginn beinist að bardögum og vígum, haugum, dysjum og helgum fjöllum eða útræði og hlunn- indum, aflraunum og líkamsburðum eða draugum og reim- leikum, svo nokkur dæmi séu nefnd. Bækurnar fimm eru einstaklega vandaðir prentgripir vinland@centrum.is • sími: 8937719 • 5627950 • www.sagaforlag.is „Íslendingasögurnar eru úrvalsverk heimsbókmenntanna og fá enn nýtt líf í þessari vönduðu útgáfu Saga forlagsins. Þær hafa öllu öðru fremur skapað og styrkt vitund Íslendinga sem þjóðar við útmörk Evrópu og verið okkur siðferðislegur leiðarvísir og vísidómsbrunnur. Enn eru þær sístarfandi að mótun okkar og mikil- vægi þeirra er augljóst á hvaða tímum sem er - og kannski sérstaklega nú á okkar dögum.“ Arnaldur Indriðason: „Við Íslendingar eigum engar fornar borgir með höllum og höfuðkirkjum, listasöfnum eða háskólum. En við eigum fornar bækur með listaverkum á borð við Íslendingasögur og það eru okkar dýrgripir, hallir og höfuðkirkjur, listasöfn og háskólar.“ Einar Kárason: „Íslendingasögurnar bjóða okkur að setjast við fótskör formæðra okkar og for- feðra þar sem við heyrum þau sjálf segja frá sigrum sínum og sorgum, vonum og ótta. Enn berst þaðan hvinur af sverðum og gustur hnífbeittra orða.“ Gerður Kristný:

x

Suðri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Suðri
https://timarit.is/publication/1143

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.