Læknablaðið : fylgirit - 26.09.2014, Síða 2

Læknablaðið : fylgirit - 26.09.2014, Síða 2
LÆKNAblaðið 2014/100 3 Læknablaðið the iceLandic medicaL journaL www.laeknabladid.is Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi 564 4104 – 564 4106 Útgefandi Læknafélag Íslands Læknafélag Reykjavíkur Ritstjórn Engilbert Sigurðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Gerður Gröndal Hannes Hrafnkelsson Magnús Gottfreðsson Sigurbergur Kárason Tómas Guðbjartsson Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir Tölfræðilegur ráðgjafi Thor Aspelund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður og ljósmyndari Hávar Sigurjónsson havar@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Sigdís Þóra Sigþórsdóttir sigdis@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Ljósmynd á forsíðu: Anna Fjóla Gísladóttir Upplag 150 Prentun: Prenttækni © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition og Scopus. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/ Science Edition and Scopus. ISSN: 0254-1394 V. Vísindaþing Geðlæknafélags Íslands 26.-28. september 2014 á Hótel KEA Geðlæknafélag Íslands hefur staðið fyrir reglulegum vísindaþingum síðan fyrsta vísindaþing félagsins var haldið á Akureyri árið 2005, og nú höldum við á ný til höfuðstaðar Norðurlands. Það er afar mikilvægt að efla rannsóknir og rannsóknarvinnu innan geðlæknisfræði, ef til vill enn mikilvægara en í öðrum greinum læknisfræðinnar. Við vitum öll sem vinnum í þessu fagi hversu mikil vanþekking og klárir fordómar ríkja gegn þeim sem þjást af geðsjúkdómum og fjölskyldum þeirra. Vanþekking og fordómar ríkja svo sannarlega einnig gegn okkur sem stundum þessa grein og þeim meðferðarúrræðum sem við beitum. Við þurfum því af meira krafti en aðrir heilbrigðisstarfsmenn að sýna fram á með rökum og vönduðum rannsóknum að það sem við erum að gera getur hjálpað við að líkna og lækna þá fjölmörgu sem einhvern tíma á ævinni þjást af geðsjúkdómum. Ef litið er yfir sögu geðlækninga má glögglega sjá hve gríðarlegar framfarir hafa orðið í með- ferð geðsjúkra á síðustu hundrað árum. Öflug vísindastarfsemi er hornsteinn þessara framfara og forsenda þess að við getum barið kröftuglega á fordómum og hjálpað enn fleirum til að rísa undan þeim þungu byrðum sem alvarlegir geðsjúkdómar eru. Þess má geta að 13.-16. júní 2018 verður Norræna geðlæknaþingið haldið í Reykjavík, sem mun án efa veita mörgum innblástur til frekari afreka á vísindasviðinu. Innilega velkomin og hjartans þakkir til allra þátttakenda. Þórgunnur Ársælsdóttir Formaður Geðlæknafélags Íslands Undirbúningsnefnd Halldóra Jónsdóttir Lára Björgvinsdóttir Magnús Haraldsson Sigurður Páll Pálsson Þórgunnur Ársælsdóttir Ritari þingsins: Sigurlaug J. Sigurðardóttir Aðalstyrktaraðili þingsins Janssen Actavis Lilly Lundbeck Novartis Pfizer Aðrir styrktaraðilar

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.