Læknablaðið : fylgirit - 26.09.2014, Qupperneq 10

Læknablaðið : fylgirit - 26.09.2014, Qupperneq 10
V . V Í S I N D A Þ I N G G E Ð L Æ K N A F É L A G S Í S L A N D S 2 0 1 4 F Y L G I R I T 8 0 LÆKNAblaðið 2014/100 11 ana við erfðabreytileika. Markmið rannsóknarinnar er meðal annars að finna erfðabreytileika sem tengjast aukaverkunum í clozapín-meðferð til að hægt sé að auka öryggi meðferðarinnar og nýta lyfið fyrr í meðferðar- ferlinu til hagsbóta alvarlega veikum sjúklingum. Helstu aukaverkanir sem verið er að rannsaka eru sykursýki, kyrningafæð (neutropenia), Ileus og ketoacidosa. Efni og aðferðir: Gerð var textaleit í sjúkraskrá 1191 sjúklings sem höfðu samþykkt þátttöku í rannsókn á erfðabreytileika og geðrofssjúkdómum að orðum sem tengjast clozapínnotkun og helstu aukaverkunum. Þar sem þessi leitarorð fundust var Clozapínnotkun staðfest og eða aukaverkun könnuð með uppflettingu í sjúkraskrá. Samtals fundust 227 sjúklingar með staðfesta notkun á clozapíni. Niðurstöður: Sjúklingar með geðklofa eða geðhvarfaklofa voru 86,8% þeirra sem höfðu notað clozapín í rannsókninni. Bipolar sjúkdómur var greiningin hjá 10,1% og 4,1% höfðu aðra greiningu. Af þeim sem byrjuðu að taka Clozapín hélt afar hátt hlutfall, 71,8%, áfram notkun þess á rann- sóknartímanum. Sykursýki greindist hjá 15,4% sjúklinganna. Tæplega 12% sjúklinga reyndust í aukinni hættu á að greinast með sykursýki (HbA1c >5,9). Ileus greindist hjá 1,8% sjúklinga og fékk helmingur þeirra, 0,9%, stoma. Enginn greindist með ketoacidosis. Tveir sjúklingar eða 0,9% af hópnum greindist með alvarlega kyrningafæð (Neutrophilar <0,5). Báðir náðu sér að fullu. Umræða: Clozapín er öflugasta meðferðin sem til er við geðklofa en líklega vannýtt. Alvarleg kyrningafæð fær líklega of mikla athygli miðað við aðrar aukaverkanir sem Clozapín getur valdið en enginn í rannsóknarhópnum reyndist hafa hlotið varanlegan skaða af völdum kyrningafæðar. 22. Áhrif eintakabreytileika í erfðamenginu á vitræna getu Brynja B. Magnúsdóttir1, Magnús Haraldsson1,2, Engilbert Sigurðsson1,2 1Landspítali, 2Háskóli Íslands Inngangur: Á síðustu árum hefur skilningur aukist á tengslum erfða og svipgerðar langvinnra sjúkdóma í heila. Sýnt hefur verið fram á áhrif eintakabreytileika (copy number variants) á geðrofssjúkdóma, og taugaþroskaraskanir, en með eintakabreytileika er átt við að orðið hefur ýmist úrfelling eða tvöföldun á litningasvæði. Í mörgum tilfellum virðist sami eintakabreytileikinn tengjast ólíkum svipgerðum, ýmist geðklofa, einhverfu eða tengdum röskunum, en jafnframt eru einstaklingar með eintakabreytileikann sem ekki sýna nein svipgerðareinkenni. Sá hópur veitir möguleika á að rannsaka áhrif eintakabreytileikans á vitræna starfsemi án áhrifa frá sjúkdómsmyndinni. Aðferð: Valdir voru 26 ólíkir eintakabreytileikar, sem allir hafa sýnt tengsl við geðrofssjúkdóma, og tilheyrðu 167 þátttakendur þeim hópi en 465 höfðu eintakabreytileika sem ekki hafa verið tengdir geðrofs- sjúkdómum. Alls voru 475 þátttakendur sem höfðu ekki ofangreinda eintakabreytileika í viðmiðunarhóp auk 161 sjúklings með geðklofa. Margvísleg taugasálfræðileg próf voru lögð fyrir þátttakendur ásamt greindarmati, spurningarlistum og geðgreiningarviðtali. Niðurstöður: Þátttakendur sem höfðu eintakabreytileika tengda geð- rofssjúkdómum sýndu frammistöðu á prófum sem lá mitt á milli við- miðunarhóps og sjúklinga með geðklofa. Þegar ólíkir eintakabreytileikar voru bornir saman kom í ljós að þeir höfðu mjög ólík áhrif á vitræna getu, þrátt fyrir að auka allir áhættu á geðrofssjúkdómum. Sá hópur sem var með úrfellingu á 15q11.2 hafði sterka sögu um les- og talnablindu án þess að sýna taugasálfræðilega veikleika á prófum. Ályktanir: Frammistaða heilbrigðra einstaklinga með eintakabreyti- leika sem auka áhættu á geðrofssjúkdómum bendir til þess að um minni tjáningu eintakabreytileikans gæti verið að ræða hjá þessum hópi samanborið við þá sem greinast með geðklofa. 23. Samspil sjúkdóma og umhverfis Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir1,2, Guðrún K. Blöndal1, Rakel Valdimarsdóttir1, Halldór Kolbeinsson1 1Geðsviði Landspítala, 2 Háskóla Íslands Markmið rannsóknarinnar er að fá fram upplýsingar um samspil sjúkdóma og umhverfis Áhersla var lögð á að finna umhverfisbreytur, sem gætu sagt fyrir um heilsufar. Notað var eitt af matstækjum interRAI, samfélagsgeð- þjónustumat, sem er staðlað, gagnreynt alþjóðlegt mælitæki, („interRAI Community Mental Health, (interRAI CMH)), Matið var lagt fyrir tvo hópa og upplýsinga aflað með viðtölum heilbrigðismenntaðs aðila við einstaklinga. Úrtakið eru þeir, sem nutu þjónustu endurhæfingardeildar geðsviðs í Hátúni á árunum 1998-2010 (Hópur I, N=110). Samanburðarhópur (Hópur II, N=110) er fólk sem býr sjálfstætt án geðgreiningar. Gildi rannsóknarinnar felst meðal annars í því að mælitækið er notað við rannsókna- og þróunarvinnu víða erlendis, sem gerir kleift að bera saman niðurstöður. Ávinningur felst meðal annars í því að hægt verði að birta niðurstöður rannsóknarinnar á fræðilegan hátt og vinna markvisst að bættum lífsgæðum fólks. Niðurstöður benda til þess að lífsgæði fólks með geðraskanir séu lakari en annarra og ýmsar aðstæður geti haft áhrif. Marktækur munur greindist á milli hópanna í mörgum tilgreindum þáttum. Sem dæmi hafa 48% (N=93) af hópi I orðið fyrir ofbeldi, en 11% (N=63) úr hópi II. Þá eiga 41% úr hópi I í erfiðum félagslegum tengslum, en 13% úr hópi II og fjármál 38% úr hópi I eru erfið, en 17% úr hópi II. Rannsóknarniðurstöður gefa ástæðu til að rannsaka nánar hvernig hægt er að vinna gegn félagslegri einangrun, bæta samskipti og mæta þörfum fólks með tilliti til aukinna lífsgæða. 24. Endurteknar athuganir á áráttu- og þráhyggjuröskun: Erum við einhvers vísari? Ragnar P. Ólafsson Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands Áráttu- og þráhyggjuröskun (obsessive-compulsive disorder) einkennist af uppáþrengjandi hugsunum og endurtekinni hegðun eða ritúölum sem auðveldlega kveikja kvíða og vanlíðan hjá fólki. Tiltölulega lítið er vitað um orsaka- og viðhaldandi þætti vandans auk þess sem rannsóknir sýna lakari árangur sálrænnar- og lyfjameðferðar í samanburði við önnur kvíðatengd vandkvæði. Það má því segja að röskunin sé krefjandi verk- efni fyrir rannsakendur og meðferðaraðila að fást við. Í erindinu verða hugrænar atferliskenningar um áráttu- og þráhyggjuröskun stuttlega útskýrðar með áherslu á þátt hugsanastjórnar í þráhyggju. Gefin verða dæmi um rannsóknir á þessu sviði, meðal annars úr doktorsrannsókn höfundar þar sem kannað var samspil hugsanastjórnar og hugrænnar færni (vinnsluminni, hugræn hömlun) í tíðni uppáþrengjandi hugsana. Einnig verður skoðað hvort gagnlegt sé að samþætta sálfræðilegar og geðlæknisfræðilegar rannsóknir til að afla nýrrar þekkingar á þessu sviði. Að lokum verður stuttlega vikið að árangri sálrænnar meðferðar og lyfjameðferðar við áráttu- og þráhyggjuröskun og stöðu þeirra mála hér á landi.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.