Vesturland - 03.07.2019, Side 4

Vesturland - 03.07.2019, Side 4
4 3. júlí 2019 Brautskráning frá Bifröst Laugardaginn 22. júní var mikið um dýrðir í Háskólanum í Biftröst en þá útskrifaði Vilhjálmur Egilsson rektor 81 nemanda við hátíðlega athöfn. Nemendahópurinn samanstóð af nemendum úr viðskiptadeild, félagsvísinda­ og lagadeild og Háskólagátt. Í hátíðarræðu sinni kom rektor inn á breyttar aðstæður á vinnumarkaði og hækkandi menntunarstig þjóðarinnar. „Háskólarnir hafa ekki lokið hlutverki sínu þótt fólk hafi þegar lokið háskólaprófi. Margir vilja eða þurfa að koma aftur í háskóla til að læra eitthvað nýtt eða til að dýpka þekkingu sína og fólk getur byrjað háskólanám á öllum aldri.“ Sjá nánar á bifrost.is Einn útskrifarnema nú var Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri á Útvarpi Sögu. Hún lauk meistaragráðu í viðskiptalögfræði. Þetta afrekaði hún samhliða því að stýra fjölmiðli í fullu starfi. Arnþrúður segist himinlifandi með Háskólann á Bifröst og námið þar. „Svakalega góðir og flottir kennarar, ekki síst mjög hæfar konur, “ segir Arnþrúður. Nær jafn margar konur og karlar í sveitarstjórnum Kosið var til 72 sveitarstjórna á landinu í síðustu sveitarstjórnarkosningunum sem haldnar voru 26. maí í fyrra. Bundin hlutfallskosning var í 56 sveitarfélögum þar sem 99% allra á kjörskrá voru búsettir og 198 framboðslistar boðnir fram. Þar af var sjálfkjörið í einu sveitarfélagi þar sem aðeins einn listi var í boði. Kosning var óbundin í 16 sveitarfélögum þar sem 1% kjósenda var á kjörskrá. Á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2018 voru 247.943 eða 71,2% landsmanna. Hagstofa Íslands hefur gefið út Hagtíðindi þar sem greint er frá niðurstöðum kosninganna og má nálgast ritið á vef stofnunarinnar. Kosningaþátttaka í þeim sveitarfélögum þar sem kosning fór fram var 67,6%, aðeins lítið eitt meiri en þátttakan 2014 (66,5%) sem er sú dræmasta til þessa. Kosningaþátttaka kvenna var meiri en karla og var hún breytileg eftir aldri, meiri meðal eldri en yngri kjósenda. Þátttaka nýrra kjósenda sem sökum aldurs voru að kjósa í fyrsta sinn í sveitarstjórnarkosningum var 51,5%. Þátttaka kjósenda með erlent ríkisfang var 18%, rúmt 51% meðal norrænna kjósenda en 15% meðal annarra erlendra ríkisborgara. Gild atkvæði voru 162.587. Auðir seðlar voru 4.225 og aðrir ógildir 774 eða samanlagt 3.0% greiddra atkvæða. Tala frambjóðenda í sveitarfélögum þar sem kosning var bundin var 3.482, 1.797 karlar (51.6%) og 1.685 konur (48,4%). Voru kjörnir 420 sveitarstjórnarmenn í þessum sveitarfélögum en 82 í sveitarfélögum þar sem kosning var óbundin. Alls voru kjörnir 502 sveitarstjórnarmenn á landinu öllu, 266 karlar eða 53,0% og 236 konur eða 47,0%. Hefur hlutfall kvenna af kjörnum fulltrúum aldrei verið hærra. Í kosningunum var 59% kjörinna fulltrúa nýkjörnir en 41% höfðu einnig verið kjörnir í kosningunum 2014. Konum í sveitarstjórnum hefur fjölgað jafnt og þétt í kosningum síðustu áratuga og nú eiga þær ekki langt eftir í að verða jafn margar og karlar. Keltneskt altari við Esjuberg Tekið hefur verið í notkun nýtt úti altari í kelt neskum anda við Esju berg á Kjalar nesi. Það er Steini sögu fé lag á Kjalar nesi sem hefur haft veg og vanda að gerð altarsins sem er til minningar um fyrstu kirkjuna sem reist var á Ís landi, en það var á Esju bergi. Fram kvæmdir við gerð altarsins hófust snemm sumars 2016. Með fylgjandi myndir tók Bjarni Sig­ hvats son vara for maður Steina sögu­ fé lags. Sr. Arna Grétarsdóttir sóknarprestur í Kjós og á Kjalarnesi stýrði á dögunum helgiathöfn í blíðskaparveðri við nýja útialtarið. Þannig lítur útialtarið út í dag. Það er hringur úr torfi og grjóti og fyrir miðju er stór steinn úr Esjuhl Arnþrúður Karlsdóttir á útskriftardaginn með meistaragráðu í viðskiptalögfræði frá Bifröst. Ljósm.: Úr einasafni, birt með góðfúslegu leyfi. Frétt Vesturlands í maí 2016 Hestaferđir Við bjóðum upp á stuttar hestaferðir alla daga sem henta knöpum á öllum aldri og með mismunandi reynslu. Kaffi og kökur fylgja í lok hverrar ferðar. www.polarhestar.is Vinsamlegast bókið með fyrirvara: 89 6 1879 Pólar Hestar – Grýtubakki II – 601 Akureyri Upplagt að líta við á Grenivík í leiðinni: www.grenivik.is

x

Vesturland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/989

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.