Vesturland - 03.07.2019, Qupperneq 6

Vesturland - 03.07.2019, Qupperneq 6
6 3. júlí 2019 Árleg ljósmyndasýning opnuð undir berum himni í Skorradal Undanfarin þrjú sumur hafa ljósmyndasýningar verið á Stálpastöðum í Skorradal. Staðurinn er sérstakur og sýningarsvæðið óvenjulegt og undurfagurt þar sem sýnt er undir berum himni, í skjóli hárra trjáa, í og við gömlu hlöðuna sem fyrir hálfri öld þjónaði sem gististaður ungmenna sem unnu við plöntun barrtrjáa á svæðinu. Í ár er fjórða ljósmyndasýningin á Stálpastöðum. Nú er það Guðlaugur Óskarsson í Reykholti sem sýnir og er þema sýningarinnar hestar, menn og náttúran. Sýningin var opnuð 22. júní og verður hún opin til 29. September, dag hvern og allan sólarhringinn. Það er Uppbyggingarsjóður Vesturlands sem styður framtakið. Enginn aðgangseyrir er að sýningunni og allir velkomnir. „Þetta er þó sölusýning og vakni áhugi hjá einhverjum er unnt að ná í mig í síma 8615971 og eiga við mig góð hrossakaup enda hross á öllum myndunum,” segir Guðlaugur. Meðfylgjandi myndir tók Björg Guðlaugsdóttir við opnun sýningarinnar í sumarblíðunni á Stálpastöðum á laugardag og eru þær birtar hér með góðfúslegu leyfi hennar. Guðlaugur kom á tveimur gráum hestum af Hofsstaðakyni ofan heimreiðina til móts við gesti sýningarinnar. Bauð þá velkomna og opnaði sýninguna formlega með nokkrum orðum. Á myndinni má greina Jónínu Eiríksdóttur, Halldór Þórðarson, Bjart Þór og Trausta Jónsson. Jónína heldur í Demant Bjargar og Guðlaugur í Hug sinn. Knapinn á myndinni ríður Uxavatn er Guðmundur Jónsson maður Valgerðar Sveinsdóttur frá Reykjum í Lundarreykjadal. Þorunn Reykdal og forgöngumaður sýninganna Karólína Hulda Guðmundsdóttir húsfreyja á Fitjumræðast við. Á gafli hlöðunnar sjást seinnileitarmenn á Arnarvatnsheiði ríða Norðlingafljót. Guðlaugur lýsir aðstæðum við Uxavatn við myndatökuna fyrir þeim Kristfríði Björnsdóttur, Aldísi Eiríksdóttur og Halldóri Þórðarsyni. HVANNEYRARHÁTÍÐ6.júlí kl. 13 - 17 #hvanneyrarhatid / nánari dagskrá og upplýsingar á f facebook 13:30 SETNING / Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor LbhÍ / 130 ára afmæli búnaðarfræðslu á Hvanneyri / Ferguson í 70 ár - Hugleiðingar Bjarna Guðmundssonar 14 Traktorafimi / 13 - 16 Ferguson á Íslandi í 70 ár - Sýning á vegum Fergusonfélagsins / 14 - 15:30 Kerruakstur með stoppi í fjósi / 14:30 - 15:30 Gróðursetning í gróðurhúsinu 14:30 Leiðsögn um Yndisgróður / Fræðsla um býflugnarækt / 14:30 - 16 Ásgarður opinn gestum og gangandi í tilefni 130 ára búnaðarfræðslu á Hvanneyri Kvenfélagið 19. júní verður með kaffisölu í Gamla-Bút / Skemman Kaffihús verður opið / Sölubásar í Íþróttahöllinni / Ljósmyndasýning barna í Skólastjóraíbúðinni Lopapeysusýning á vegum Kvenfélagsins 19. júní / Ullarselið - Landbúnaðarsafn Íslands - Gestastofa fyrir friðland fugla - Sýningin „Konur í landbúnaði í 100 ár“ opin / Jötunn vélar ehf sýna Sýning á tækjum frá Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands / TÓNLEIKAR MEÐ KK á Hvanneyri Pub um kvöldið 1 2 2 3 3 4 5 6 7 8 9 10 10 11 12 13 14 14 13 11 12 8 9 7 6 5 4 1

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/989

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.