Vesturland - 03.07.2019, Síða 14
14 3. júlí 2019
Allar gerðir báta velkomnar
á bátadaga á Breiðafirði
Félag áhugamanna um Bátasafn
Breiðafjarðar á Reykhólum,
í samvinnu við Báta og
hlunnindasýninguna á Reykhólum,
gengst nú fyrir bátahátíð á Breiðafirði
í tólfta sinn dagana 5. og 6. júlí nk. Nú
verður breyting á því nú eru allar gerðir
báta velkomnar, ekki bara trébátar.
Fyrirhuguð dagskrá er í stórum
dráttum þessi sem hér segir:
Föstudagur 5. júlí
Ráðgert er að þáttakendur safnast
saman á Reykhólum föstudaginn 5 júlí.
Flóð er um kl. 21 og þá er gott að setja
bátana niður í höfninni fyrir þá sem
koma með bátana landleiðina.
Laugardagur 6. júlí
Á laugardagsmorgun verður haldið frá
Reykhólum um kl. 9 og áformað er að
sigla að Ólafseyjum og þar skoðaðar
gamlar mannvistarleifar. Þaðan verður
siglt í Sviðnur þær skoðaðar, eigendur
verða á staðnum og fræða þáttakendur.
Síðan verður siglt innanskerja til
Skáleyja. Loks verður siglt til baka til
Reykhóla og ráðgert koma að landi um
eða fyrir kl. 20 en háflóð er um kl. 22 og
því hentugt að taka bátana upp.
Allir bátar eru velkomnir og eru
sem flest hvött til að nýta sér þetta
tækifæri til siglingar um þetta
fallega umhverfi. Sjá má fróðleik úr
starfi félagsins og myndir frá fyrri
bátadögum á vefsíðunni batasmidi.
is. Frekari upplýsingar veitir: Hafliði
Aðalsteinsson, formaður félagsins, s.
8983839.
Siglingaleiðin sem farin verður.
Grundfirðingur
seldur til
Suðurnesja
Fiskiskipið Grundfirðingur
SH 24 hefur verið seldur til
Suðurnesja þaðan sem hann
verður gerður út til netaveiða, að því
er fram kemur á vefnum skipamyndir.
com.
Grundfirðingur hefur verið gerður
út frá Grundarfirði síðan 2001 en þá
keypti útgerðarfyrirtækið Sofanías
Cesilsson skipið og gerði lengst af
út til línuveiða. Fyrir um ári síðan
var áhöfninni hins vegar sagt upp og
skipinu lagt.
Grundfirðingur hét upphaflega
Þorlákur ÁR 5 og var smíðaður hjá
Stálvík í Garðabæ 1972 fyrir Meitilinn
h/f í Þorlákshöfn. Árið 1977 fékk hann
nafnið Brimnes SH og 1979 Rita NS 13
þar sem heimahöfn var Vopnafjörður.
Árið 1982 varð báturinn svo Hringur
GK og gerður út frá Hafnarfirði.
Báturinn var lengdur 1973,
yfirbyggður 1985 og aftur lengdur
1990, þá var honum slegið út að aftan
og skipt um brú 1990. Hann mælist
151 brl./255 BT að stærð. Aðalvél
775 hestafla Caterpillar frá 1998.
Upphaflega var hann 105 brl. að stærð.
Grundfirðingur SH við bryggju á
Grundarfirði.
Nýr Bárður SH kominn á flot
Bárður hífður á hafið. Ljósm.: Bredgaard Boats.
Ljósmynd Bredgaard boats. 2019.
Nýsmíðin Bárður SH 81
var sjósett á dögunum í
Bredgaard bátasmiðjunni
í Rødby á eyjunni Lálandi, suður
af Kaupmannahöfn höfuðborgar
Danmerkur.
Bárður SH 81 er smíðaður
fyrir Pétur Pétursson skipstjóra
og útgerðarmann á Arnarstapa á
Snæfellsnesi. Báturinn verður búinn
til netaveiða. Hann er smíðaður úr
trefjaplasti og mjög stór sem slíkur.
Nýsmíðin er alls 26,9 metra löng og
7 metrar á breidd, og á að hafa pláss
fyrir 55 tonna afla í fiskikörum í lest.
Þetta mun vera stærsti plastbátur sem
íslensk útgerð hefur látið smíða.
Pétur Pétursson hefur undanfarin
ár gert út eldri trefjaplastbát með
sama nafni frá Arnarstapa en sá
er íslensk smíði. Hinn nýi Bárður
mun væntanlegur til Ísland síðar á
þessu sumri. Meðfylgjandi myndir
eru fengnar af Facebooksíðu
skipasmíðastöðvarinnar Bredgaard
Boats, en skipaáhugafólki skal
einnig bent á heimasíðu þeirra
bredgaardboats.com.