Blað Skólafélags Iðnskólans í Reykjavík - 01.05.1946, Síða 3

Blað Skólafélags Iðnskólans í Reykjavík - 01.05.1946, Síða 3
kennslan. Það munu margir ugglaust hugsa sem svo, að úr þessu hlyti að hafa rætzt, þar sem nú sé dagkennsla bæði í 1. og 2. bekk skólans. En ekki hefur dagskólafyrirkomulag, það, sem er í skólanum verið til þess að auka fundarsókn að fundum Skólafélagsins og kemur þar ýmislegt til greina. M.a. má geta þess, að svo mikil hreyfing er á nemendum þeim, sem nám stunda í 1. og 2 bekk skólans, að það verða aðeins þeir nemendur, sem mestan áhuga hafa, sem verða virkir félagar, hinir sem minni áhuga liafa, þeir koma sér seint eða aldrei til að sækja fundi. Á þessu sést því, að hvað þetta snertir, virðist dagskólafyrir- komulagið ekki koma sér neitt betur en kvöldskóla fyrirkomulagið. En ég vona nú samt, að þó svona hafi tek- izt í vetur urn þessa nemendur, sem nám stunduðu og stunda í 1. og 2. bekk, þá verði breytingin á því til batnaðar fyrir félagslíf skólans. Á aðalfundi félagsins í haust var samþykkt tillaga þess efnis að fram- vegis skuli félagið aðeins gefa út eitt hlað á ári, sem nefna skal Blað Skóla- íélags Iðnskólans í Reykjavík. Jafn- framt var samþykkt að bjóða Iðn- nemasambandi íslands að nota nafn- ið „Iðneminn“, sem var nafnið á blaði félagsins til afnota sem nafn á blað sambandsins. Með þessari breyt- ingu vona ég, að framvegis verði blað félagsins eins og hvert annað skóla- hlað en ekki blað, sem eingöngu cr Iiagsmunablað heillar stéttar. En það hefur blað félagsins verið hingað til. Á aðalfundinum í haust var og sam- þykkt tillaga Jress efnis að fela tveim mönnum að endurskoða skemmtana- reglur félagsins. Nefndin starfaði að endurskoðun reglanna milli aðal- fundanna og vann hún verk sitt í samráði við skólastjóra og formann lelagsins, Eggert Þorsteinsson. Eftir þeim reglum, sem nefndin samdi í samráði við áðurnefnda aðila hafa dansæfingar félagsins verið starfrækt- ar í vetur, og ég verð að segja fyrir mitt leyti, og ég veit, að það er skoð- un margra annarra, að mikill munur sé á þeim dansæfingum, hvað þar gætir nú miklu minni ölvunar en á BLAÐ SKÓLAFÉLAGS IÐNSKÓLANS dansæfingum félagsins undanfarin ár. Og það er enginn vafi, að það getur haft mikil áhrif út á við fyrir skól- ann, að skemmtanir nemenda fari sem bezt fram, og ég tel, að skemmt- anir [rær, sem félagið hefur haldið í vetur sé góður vottur um það, að ef vel er á haldið, þá sé hægt að lialda uppi góðu, heilbrigðu skennntanalífi innan Iðnskólans ekki síður en ann- ara skóla. Ég vil því sérstaklega þakka skemnnineínd félagsins fyrir ágætt starf, því það er þeim mönnum, sem í henni starfa að Jrakka, hve Jrær skemmtanir, sem haldnar hafa verið í vetur, hafa farið, ég verð að segja miklu betur fram, en undanfarna vetur. Þó starfið innan Skólafélags- ins sé hvergi meira en hjá skemmti- nefndinni, eru þó ýmsar aðrar nefnd- ir, sem innt hafa af hendi mikil og tímafrek störf, má þar nefna sund- nefndina. Það er enginn vafi, að það er ekki svo lítið starf, sem þarf til þess að halda uppi æfingum, sem fram verða að fara á hádeofi á sunnu- o dögum, því annan tíma fá nemendur Iðnskólans í Reykjavík ekki til sund- æfinga. En Jressara örðugleika nem- enda Iðnskólans hafa dagblöð bæjar- ins ekki nefnt,.þó Jrau hinsvegar hafi nefnt ýmsa örðuleika hjá þeim skól- um, sem liafa vissa æfingatíma til sundiðkana á stundaskrá sinni. í vetur hefur einnig eins og í fyrra starfað handknattleiksnefnd. Æfing- ar í þeirri íþrótt gátu því miður vegna ýmissa, erfiðleika, ekki hafizt fyrr en eftir s. I. áramót. Erfiðleikar hafa og verið á að fá kennara við þessar æfingar og stafa þeir erfiðleik- ar aðallega af Jrví, hve óhentuga tírna nemendur skólans hafa til slíkra iðk ana, en tíminn, sem æfingar fara fram á er milli klukkan 10—12 á sunnudögum. Þá hefur og starfað sérstök kór- nelnd og byrjuðu söngæfingar nokk- uru eftir áramót. Að ýmsu leyti eru sömu örðugleikarnir hvað snertir sönginn og íþróttirnar. Söngæfingar geta af eðlilegum ástæðum ekki farið frain fyrr en eftir klukkan 9 á kvöld- in. Bæði við íþróttirnar og sönginn hafa vissir hópar nemenda sýnt frá- bæran áhuga og sýnir það bezt, hvað hægt er að áorka ef viljinn er með. Eina nefnd vil ég enn nefna en það er ritnefndin. Hún á ekki síður en aðrar nefndir við ýmsa örðugleika að etja. En verk þeirra nefndar getið þið að miklu metið sjálf, er Jiið fáið í hendurnar þetta blað og lesið það. # # * Eins og að framan er getið eru all margir erfiðleikar á allri slíkri starf- semi sem þessum innan Iðnskólans, en eins og áður er sagt, vegna áhuga vissra hópa nemenda og sér í lagi dugnaðar og atorku þeirra nemenda, sem valdir liafa verið til að standa fyrir [ressum störfum skólans og Skólafé- lagsins. Árangurinn af störfum þeirra, sem vinna fyrir Skólafélagið ætti að geta verið þeim nemendum skólans, sem enn hafa staðið utan við félags- lífið til hvatningar og örfunar að leggja sitt fram, og ég trúi ekki öðru en, að þegar þeir nemendur, sem enn ekki liafa tekið þátt í félagslífi skól- ans fara að hugsa þessi mál í alvöru, að þá vakni hjá þeirn áhugi og skiln- ingur á starfsemi Skólafélagsins og löngun til að starfa fyrir það. Að lokum vil ég hvetja ykkur nem- endur, sem enn standið utan Skóla- félagsins, að ganga i það nú þegar, og þið megið vera þess fullviss, að ef Jrið gerir það, Joá eigið þið, eftir að þið hafið lokið burtfaraprófi frá skól- anum, ennþá bjartari og skemmti- legri endurminningar en þið annars eigið, ef þið alla tíð standið utan við félagslíf skólans. En félagsstarfsemin hefur ábyggilega þroskandi áhrif á hvern þann, sem af einlægni og á- huga vill starfa að félagsmálum. Nemendur! Ef við öll í heild stönd- urn saman um velgengni Skólafélags- ins, þá mun þeim tilgangi náð, að Skólafélagið verði nokkurs konar skóli í skólanum. 28. febrúar 1946. Sigurður Guðgeirsson.

x

Blað Skólafélags Iðnskólans í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Blað Skólafélags Iðnskólans í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1856

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.