Blað Skólafélags Iðnskólans í Reykjavík - 01.05.1946, Side 6
SKÓLALÍ FIÐ
ÞAÐ VORAR AFTUR
Skólaárið er senn liðið. Það byrjar
Jjegar blöð trjánna falla fyrir nöp-
rum haustvindinum og endar þegar
náttúran rís úr vetrardvalanum til
þess að klæðast vorskrúðinu á ný.
Prófin eru yfirstandandi, einmitt
núna þessa dagana, hjá 3. og 4. bekk
í Iðnskólanum í Reykjavík. Allir
berjast eins og hetjur við úrlausn verk-
efnanna, og hugsa þannig: Við gerunr
það sem við getum til þess að taka
góð próf, okkur sjálfum, skólanum
og kennurunum til sóma.
En hversu margir eru það, sem fá
próhroll? Ástundunarsamir og dug-
legir námsnrenn roðna og fölna á víxl
rneðan þeir fást við prófverkefnið og
augum þeirra eru huldar lrinar réttu
og einföldu úrlausnir.
Margan piltinn þekki ég, sem séð
hefir sín egin axarsköft, strax og kom-
ið var út úr prófi, en - einum of seint.
Eg er sannfærður um að flestum
kennurum er jafn illa við þennan
óhræsis „prófskrekk”, eins og þeim
sem hann ásækir. I öllum skólum
eru nemendurnir undirbúnir undir
prófin, og þessi undirbúningur á að
vera örugt ráð við hinum leiða kvilla.
Það sem okkur ber að gera, er í fyrsta
lagi, að sýna ástundun og námsvilja,
og í öðru lagi að treysta kennara okk-
ar fyllilega til að dæma rétt og þá
mun vel fara.
Þeir námsmenn sem búnir eru að
sitja í skóla vetur eftir vetur, hjá
sömu kennurum, mega vera vissir um
að enginn þekkir þá betur, en einmitt
Jreir. Þessir menn, sem margir hverjir
leggja á sig mikla aukavinnu til þess
að glæða námshæfni og skilning þeirra
nemenda sem vilja áfram. Þessunr
kennurum erum við öll sérstaklega
þakklát, enda munum við að íokinni
skólavist minnast þeirra að verðleik-
um.
Veganestið, sem iðnaðarmaðurinn
hefur með sér út á starfsbrautina, fæst
aðeins með námi. Kennaralið Iðn-
skólans í Reykjavík er alveg sérstak-
lega vef skipað, og mætti um það segja
á máli sjómanna: „að þar sé valinn
maður í hverju rúmi”. Það er ósann-
gjarnt að gefa einum hrós og öðrum
ekkert, því allir þessir kennarar eiga
sameiginlega hlutdeild í andlegum
þroska nemendanna. Þó get ég ekki
látið lijá líða, að minnast sérstaklega
þeirra kennara, sem lagt hafa á sig
auka erfiði, vegna okkar þessara svo-
kölluðu „yfirhlaupara”. Ég tala ef-
laust fyrir munn margra iðnnema
þegar ég segi: „Þið eruð okkar .stolt’,
og við viljum vera bæði okkur og
ykkur til sóma“.
Nú líður óðum að lokaþætti skóla-
göngunnar á þessum vetri. Margir út-
skrifast eins og venja er til. Nýir iðn-
aðarmenn, og næg eru verkefnin.
Þessi hópur leggur nú út á starfsbraut-
ina með veganestið í sjálf síns barmi
og nú tekur reynzlan, starfið, tæknin
og tírninn við framhaldskennslunni.
Allir þessir menn kveðja Iðnskólann
og starfslið hans með þakklæti og
hlýjum hug.
Jón Friðrik.
Margt er það, sem ber á góma í
skólanum og mörg sjónarmið, sem
bitast þar og aflt er tif umræðu, skóla-
mál jafnt sem áhugamál.
Nú skulum við bregða okkur inu
í einhverja skólastofuna. Þar gefur
að heyra skvaldur mikið. Við kom-
um nær, en skyndilega þagna allar
raddirnar eins og eigendur þeirra
hefðu allt í einu orðið uppnumdir,
en ástæðan er nú samt ekki sú, heldur
er það kennarinn, sem liirzt hefur í
dyrunum.
„Blessaðir opnið þið gluggann,
loftið er þrungið af tölustöfum". Það
er kennarinn, sem hefur orðið og hef-
ur mál sitt að venju á því að fordæma
loftræstingunni, sem hann telur óvið-
unandi. Síðan strýkur liann hendinni
af varúð yfir stólsetuna og talar um
ryk, en í raun og veru er hann að
gera leit að teiknibólum, sem slæðst
kynnu að hafa Jrangað, auðvitað
óvart. — Ekki eru tíu mínútur liðnar
af kennslustundinni, þegar einhver
spyr sessunaut sinn, hvort tíminn
■sé ekki bráðum búinn, Jrví þfeim
finnst stundin lengi að líða, sem ekk-
ert kunna og geta átt það á hættu að
vera tekin upp þegar minnst varir
en þeir þykjast þó eiga sér afsökun
með Jrví að segja „til hvers er maður
að læra þetta, sem maður liefur svo
aldrei not fyrir”. Þetta er mjög algeng
spurning, þótt svarið við henni sé
löngu til orðið, því mennt er máttur
og þar af leiðandi er iðnaðarmennt
iðnaðarmáttur og við sem eigum að
erfa iðnaðinn í landinu verðum að
búa okkur undir það svo vel, að við
séum þess fær að skapa nýja og dug-
andi iðnaðarstétt.
Hilmar Biering.
0
BLAÐ SKÓLAFí'.LAGS IÐNSKÓI.ANS