Blað Skólafélags Iðnskólans í Reykjavík - 01.05.1946, Blaðsíða 7
„Óhreínlæííð i Idnskólanum"
Vegna pess livað langt er síðan pessi
grein var skrifuð, pykir ritnefndinni rétt
að taka pað fram að á hreinlceti skólans
hafi ef til vill orðið nokkur breyting til
batnaðar frá pví greinin var skrifuð.
Slíka fyrirsögn sem þá, er að oí'an
greinir mátti sjá í einu af dagblöðum
Reykjavíkur, laugardaginn 16. marz
s. 1. Ég býst við, að mörgum hafi
orðið á að hugsa eins og mér, er ég
sá ofangreinda fyrirsögn og las grein-
arstúf þann, sem henni fylgdi. Það
var tími til kominn að einhver skæri
upp úr með hina svívirðulegu hreins-
un, sem tíðkazt liefur í Iðnskólanum,
og við verðum að segja, að það hlýtur
að vera nokkuð langt gengið, þegar
farið er að ræða slíkt sem hreinsun
eins skólahúss í dagblöðum bæjarins.
Það hlýtur að vera eithvað meira en
orðin ein, og þannig er það. Það eru
ekki orðin ein. Meira segja umget-
in grein er raunverulega allt of hóg-
vær. í greininni er drepið á það, að
máske sé umsjónarmannsstarfið við
skólann svo illa launað, að sá maður,
sem gegnir því geti ekki af því lifað.
En um leið og slíku er kastað fram
hlýtur manni að verða spurn. Getur
])að verið, að sú skólanefnd sem
skólanefnd Iðnskólans, sem látið hef-
ur sér svo annt um skólahaldið og
sem m. a. hefur komið því til leiðar,
að nokkuð af bekkjum skólans starfa
nú sem dagskóli. Að það sé luin, sem
eigi hér sök á? Nei, slíku getum við
nemendur þessa skóla ekki trúað, fyrr
en við sannreynum þá liið gagnstæða.
Nei, sökin hlýtur fyrst og fremst að
vera hjá þeim, sent verkið á að vinna,
hann hefur tekið verkið að sér og
honum ber að ynna það svo af hendi,
að viðunanlegt sé. En það er svo langt
Irá því, að hreinsunin á skólahúsinu
hafi að undanförnu verið viðunanleg.
Það virðist eins og umsjónamaður
hússins sé svo gjörsneyddur allri sóma
tilfinningu,, að hann verður þess ekki
var á hvað „vítaverðan hátt‘ hann
gegnir starfi sínu. Okkur nemendum
þessa skóla er því spurn, hve lengi á
svo til að ganga? Við krefjumst þess
af umsjónarmanninum, að hann nú
þegar bæti ráð sitt og hreinsi skóla-
húsið svo að það líti ekki út eins og
illahirt pakkhús, heldur eins og skóla-
hús, sem sæmir kennurum og nem-
endum Iðnskólans.
í hinni umgetnu blaðagrein er á
það sérstaklega minnst hve svívirði-
lega gólfin í húsinu eru hreinsuð.
Hugsið ykkur stólana, hugsið ykk-
ur borðin og hugsið ykkur veggina í
húsinu. Hefur umsjónarmaður skól-
ans virkilega ekki séð þörf á, að borð
og stólar í skólahúsinu séu þvegin?
Mér virðist sent hann hafi ekki enn
talið það í verkahring sínum að þvo
/af skápum og öðru því líku, sem í
kennslustofunum er, lítið t. d. á skáp
þann, sem stendur í einu horninu í
F stofunni, á honum hefur verið
þykkt lag at' ryki í mest allan vetur.
Ætli umsjónarmaðurinn lialdi það í
verkahring nemenda eða kennara að
þurka ryk af stólum, borðum, skáp-
um og öðru því líku, sem í skólahús-
inu er? Ef svo ótrúlega skyldi vera,
þá vil ég upplýsa hann um það, að
slíkt er alger misskilningur.
Það skal viðurkennt, að umgengni
nokkurra nemenda um skólahúsið er
stórvítaverð. T. d. þeirra nenrenda,
sem kynna sinn innri mann með því
að kríta á veggi skólahúsins, ýmist
allskonar klámyrði, dónalegar mynd-
ir og afbakaðar ritningagreinar. Sum-
ir nemendur skólans hafa ekki svo
sjaldan gert sér leik að því að nota
vasahnífa sína til þess að skera vtt
allskonar myndir á borðin í kennslu-
stofunum. Ég verð að segja, að mér
blöskraði er ég um daginn gekk um
aðra af nýju kennslustofunum og sá
hve illa einhverjir nemendur höfðu
gengið þar um. Hin ágætu og full-
komnu húsgögn, sem þar eru, ýmist
útkrotuð af blýantsstrikum eða blek-
klessum.
Við nemendur skólans, sem ekki
höfum gert okkur seka um slíkt at-
hæfi, sem þessi, krefjumst þess sama
af þeim, sem hér eiga sök á og af
umsjónarmanninum, að þeir bæti nvi
þegar ráð sitt og sjái sóma sinn í því
að ganga um skólahúsið eins og menn
en ekki eins og skrœlingjar.
Þess skal þó getið, að þótt sumir
af nemendum skólans hagi sér eins
og að framan er greint, þá er það
ekki til þess að afsaka vanrækslu um-
sjónarmannsins í lvans starfi, vegna
þess aðallega að það er enginn vafi á
því að það eru áreiðanlega sárafáir
nemendvir, sem sekir eru.
Ég mun nvi ekki hafa þessar línur
öllvi fleiri, en vil aðeins að lokum
láta í ljósi þá von mína, að þeir >nem-
endvir, sem gert hafa sig seka í slíkri
umgengni, sem að framan greinir
víki nú þegar af villu sins vegar. Þess
sama og vona ég um þann nvann, sem
sjá á um hreinsun á húsinu, og ég
trúi ekki öðru en hann sjái að sér og
bæti ráð sitt, vegna þess að ég fæ ekki
skilið, að ef það á að viðgangast leng-
ur að hreinsa lnisið ekki betur en
gert hefvir verið, annað en gerðar
verða strangari aðgerðir til þess að
fá því framgengt heldur en hingað
til liefur verið gert. Og vil ég að lok-
um benda framangreindum aðiljum
á að bæta ráð sitt, því að sá, sem það
gerir verður að lokum mikill maður.
17. marz 1946.
BLAÐ SKOl.AFLf.AGS IÐNSKÓLANS
/