Blað Skólafélags Iðnskólans í Reykjavík - 01.05.1946, Qupperneq 11
Sfjórn Kennarafélags Iðnskólans
Skólablad Iðnskólans fyrr og nú
Með þessu blaði, sein nú hefur
göngu sína byrjar nýtt tímabil í
blaðaútgáfu Skólafélags Iðnskólans í
Reykjavík. Skólafélagið hefur samt
nokkur undanfarin ár gefið út blað,
sem nefndist „Iðneminn“. Það blað
kom út tvisvar eða þrisvar á ári, og
var það að mörgu leyti hið ágætasta
blað. F.n það hafði líka tvennskonar
gildi fyrir nemendur skólans, sem
eingöngu eru iðnemar.
í fyrsta lagi var það skólablað, sem
gaf nemendum skólans kost á að
kynnast og fá heildaryfirlit yfir félags-
líf og helztu viðburði skólalífsins.
I öðru lagi var þetta eina blaðið,
sem iðnemar áttu greiðan aðgang að
með stefnu og hagsmunamáf sín.
En tímarnir breytast og mennirnir
með.
Nú hafa iðnnemar bæði hér í
Reykjavík og víða út um land mynd-
að með sér félagssamtök, sem svo
aftur mynda með sér eina heild í Iðn-
nemasambandi íslands. Þetta sam-
band, þó ungt sé, hefur nú ráðist í
það stórræði að gefa út blað, sem þá
er fyrst og fremst og eingöngu mál-
gagn iðnnema og samtaka þeirra.
Þegar svo sambandsstjórnin kom að
því atriði að gefa blaði sínu nafn
fann hún ekkert nafn, sem henni
fannst betu gefa til kynna efni og til-
gang blaðsins, heldur en einmitt þetta
nafn, sem var á blaði Skólafélags Iðn-
skólans í Reykjavík.
A aðalfundi Skólafélagsins síðast-
liðið haust sýndi Skólafélagið sam-
bandinu þann stórhug og velvilja að
bjóða því na-ínið „Iðnneminn", á
málgagn þess. Þetta boð þáði sam-
bandið vitanlega með beztu þökkurn.
Þess vegna er það, að Skólafélagið
gefur nú raunverulega út nýtt blað,
sem aðeins hefur það markmið að
gafa nemendum skólans sem bezta,
Aðalfundur
Kennarafélagsíns
Aðalfundur Kennarafélags Iðnskól-
ans var haldinn í nóvembermánuði
s. 1. A fundinum gaf fráfarandi stjórn
all ýtarlega skýrslu unr störf félags-
ins áliðnu starfsári. í skýrslu stjórn-
arinnar var þess getið m. a., að fyrir
forgöngu félagsins hefði á árinu ver-
ið stofnað Félag stundakennara við
framhaldsskóla í Reykjavík. Einnig
gekkst félagið fyrir kaffikvöldi meðal
kennara skólans.
Þá fór fram stjórnarkosning og í
stjórnina voru kosnir: Haraldur
Ágústsson, formaður, Jóhanna Olafs-
son, ritari og Helgi Hallgrímsson,
gjaldkeri.
í félaginu eru nú yfir 30 kenn-
arar.
gleggsta og skemmtilegasta spegil-
mynd af skólalífinu í heild. Ég vil
svo af hálfu ritnefndarinnar árna
þessu nýja blaði Skólafélagsins allra
heilla í framtíðinni.
D. E.
BLAÐ SKÓLAFÉLAGS IÐNSKÓLANS
11