Heimili og skóli - 01.08.1959, Side 19

Heimili og skóli - 01.08.1959, Side 19
HEIMILI OG SKÓLI 63 Starfsfrœhsla í skólum Erindi flutt á fulltrúaþingi Sambands ísl. barnakennara þann 7. júní 1958. Þegar verið var að skipuleggja fyrsta ís- lenzka starfsfræðsludaginn í marzmánuði 1956, hitti ég kunningja minn á förnum vegi og bauð honum að heimsækja starfs- fræðsluna í Iðnskólanum sunnudaginn 19. marz. Kunningi imnn rak upp stór augu og spurði: „Hvað er starfsfræðsla?“ „Það er fræðsla um störf,“ svaraði ég, en var mér samt þess meðvitandi, að ég hafði ekki svarað spurningu hans nema að nokkru leyti. Sumir menn eru þannig gerðir, að þeir vilja láta skilgreina alla hluti, aðrir láta sér nægja að vita efnislega um hvað er verið að ræða, hvaða gagn það gerir o. s. frv. Hvað bezt sé og réttast í þessu efni, þori ég ekki að segja, en til þess að reyna að fullnægja öllu réttlæti sem bezt, skal ég hefja mál mitt með því að skírgreina, hvað starfsfræðsla er, og ræða síðan eink- um um starfsfræðslu í skólum. Skírgreiningin varðandi starfsfræðslu, sem samþykkt var á alþjóðaráðstefnu í Genf árið 1949, hljóðar þannig: „Starfsfræðsla er sú aðstoð, sem ein- staklingi er veitt til þess að leysa vanda- mál í sambandi við val ævistarfs og við að ná tökum á ákveðinni starfsgrein. Sé þá tekið fullt tillit til eiginleika einstaklings- ins, aðstöðu hans allrar og faglegra mögu- leika.“ Við þessa skýrgreiningu hef ég per- sónulega það að athuga, að í henni felst ekki aðeins hvað starfsfræðsla er, heldur einnig starfsvalsleiðbeiningar, en þær eru venjulega framhald starfsfræðslunnar og byggjast a .m. k. stundum á fræðilegum grundvelli, svo sem greindar- og hæfni- prófunum. Starfsfræðsla í víðtækustu merkingu þess orðs hefur sennilega verið veitt eins lengi og fólk hefur byggt þessa jörð, og Ólafur Gunnarsson. raunar vafasamt hvort telja eigi að hún sé aðeins veitt af mönnum. Hins vegar er hún í nútímamerkingu orðsins tiltölulega ný af nálinni, því að ekki eru nema fimm- tíu ár síðan markviss starfsfræðsla hófst og þá í borginni Boston í Bandaríkjunum. Fyrr á tímum voru störf yfirleitt svo fábreytt í samanburði við það, sem nú er, að kerfisbundinnar starfsfræðslu var lítil þörf. Unga fólkið lærði störfin af hinum fullorðnu í nánum tengslum við heimilið eða innan vébanda þess og fór sjaldan inn á aðrar brautir en þær, sem forfeðurnir höfðu troðið. Hér á landi var t. d. um lítið annað að ræða en sveita- og sjávarstörf, og annað hvort lærðu flestir, en margir hvort tveggja. Nú er starfsgreinafjöldinn í heiminum hins vegar orðinn svo mikill, að enginn veit með vissu hversu margar starfsgrein- arnar eru, en í Dictionary of Occupational

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.