Heimili og skóli - 01.10.1963, Blaðsíða 14

Heimili og skóli - 01.10.1963, Blaðsíða 14
ÓLAFUR GUNNARSSON, SÁLFRÆÐINGUR: ALVO R IJ TALAÐ Hugsandi mönnum munu vera ljósar all- miklar veilur í uppeldis- og fræðslumálum Islendinga. Nægir í því sambandi að minna á óheilbrigt skemmtanalíf fjölda æsku- manna, drykkjuskap, nautnalyfjaneyzlu og fleiri tákn óhæfilegrar eyðslu lífsorkunn- ar. Aberandi er óhlýðni og virðingarleysi fyrir öllu og öllum í fari margra bama og unglinga. Augljóst er, að hin meira en þúsund ára gamla heimilismenning íslendinga stendur höllum fæti í borgar- og bæjaumhverfi, þar sem aðstæður allar eru gerólíkar því, sem áður þekktist. Stendur þjóðin þannig andspænis vandamálum, sem hún þekkti ekki áður og er eldri kynslóðin því illa sett hvað lausn þeirra snertir, þar eð hún þekkir ekki frá sínum eigin bernsku- og æskudögum þau vandamál, sem nú steðja að. Ekki þarf að athuga heimili í Reykja- vík lengi til þess að gera sér grein fyrir því, að þau eru ekki byggð upp sem vinnu- staðir, heldur fyrst og fremst sem hvíldar- og jafnvel veizlustaðir. Þetta stingur mjög í stúf við gömlu íslenzku heimilismenning- una, þar sem allir sátu að vinnu sinni í sömu baðstofunni. Vitanlega myndi eng- inn nútímamaður vilja hverfa aftur til bað- stofumenningarinnar, því að henni fylgdu 106 HEIMILI OG SKÓLI miklir og greinilegir ókostir. En hitt er víst, að í ríkara mæli ber að taka tillit til leikja- og athafnaþarfa barna og unglinga og jafnvel fullorðinna, þegar íbúðarhús eru teiknuð og byggð, þannig, að sem mest- ir athafnamöguleikar skapist innan heim- ilanna sjálfra og þau verði aftur staðir, sem flestir kjósa að dvelja á að öllum jafn- aði, en ferðir á skemmtistaði verði til há- tíðabrigðis eins og löngum hefur verið. Rétt er að leiða athygli arkitekta og yf- irvalda borga og bæja sérstaklega á þessu atriði. í uppeldi verður alltaf að leggja áherzlu á þrennt, en það er umhyggja, ástúð og agi. Sýnilegt er, að mikið skortir á umhyggju fjölmargra foreldra, nægir í því sambandi að benda á ferðir smábarna í bráðum hættum umferðarinnar, þar sem götumar eru gerðar að leikjasvæði lítilla barna í stað húsgarða og leikvalla. Á þessu verð- ur skilyrðislaust að verða breyting og ber lögreglu borgar og bæja að framfylgja án undanbragða banni við leikjum bama á götum úti. Ástúðin verður að koma fram í eðli- legri hlýju foreldra, en ekki fyrst og fremst í sælgætisgj öfum foreldra og skyldmenna og ferðum í kvikmyndahús og aðra skemmtistaði, sem hefjast yfirleitt of

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.