Læknaneminn - 01.03.1949, Blaðsíða 3
LÆKNANEMINN
3
*
Avarpsorð.
Enn einu sinni er tilraunin gerð;
að gefa út blað eða tímarit lækna-
nema. Undanfarin ár hefir félag
læknanema árlega kjörið ritnefnd
til að sjá um útgáfu einhverskon-
ar málgagns. Árangurinn hefir því
miður verið heldur lélegur, enda
hafa þessar ritnefndir átt við mikla
og margvíslega erfiðleika að stríða.
Á forsíðu þessa blaðs getur að
líta rómverska tölu, sem gefur til
kynna,, að hér sé fjórði árgang-
ur, fyrsta tölublað, á ferðinni. í
vissu tilliti er þetta rétt: blaðið
hefir komið út fjórum sinnum, eitt
tölublað í hvert skipti, en þó eru
liðin 8 ár síðan fyrsta blaðið kom.
Það var f jölritað, svo og hin tvö,
sem komið hafa síðan. Það er von,
að manni verði á að spyrja: Hvers
vegna erum við þá að basla við
að gefa út blaðsnepil? Er nokk-
ur grundvöllur fyrir málgagn
læknanema? Er nokkur áhugi inn-
an deildarinnar á slíku brölti?
Læknadeildin er nú orðin býsna
f jölmenn. Það er af, sem áður var,
að allir þekktu alla, og hópurinn
var ekki stærri en svo, að hann
gat komið saman í einu stofuhorni
niðri í Alþingishúsinu og rætt þar
áhugamál sín, deiluefni og um-
kvartanir. Viðhorfið í dag er ann-
að: hópurinn er einmitt orðinn það
stór, að þörf er á málgagni til við-
ræðna, til almenns yfirlits, til að
gefa sem flestum kost á að láta
álit sitt, áhugamál og óskir í ljós
á vettvangi, þar sem náð verði tii
sem flestra félaganna. Þannig hef-
ir þessu að vísu ekki verið varið,
því miður, hvorki með þetta tölu-
blað eða þau undanfarandi. Erfið-
leikar ritnefndanna, sem minnzt
var á hér að ofan, hafa aðallega
verið í því fólgnir, að snapa sam-
an nægu efni til að fylla einhvern
ákveðinn síðufjölda. Þetta á að
hverfa. Við skulum öll gera okkur
það ljóst, að í málgagni, — hvort
sem við köllum það blað eða tíma-
rit, árbók eða eitthvað annað, —
eigum við athvarf með hugmvndir
okkar og áhugamál varðandi
kennslu, nám, félagslíf, framhalds-
nám, framtíðarhorfur, fjárhags-
mál, auk annarra innblásinna bók-
mentnalegra afreka, svo sem
ljóð (!), sögur, frásagnir o. s. frv.
Sem sagt, blaðið á að vera „For-
um“ okkar allra!
Útlit, efnisskipan og frágangur
allur er mjög breyttur frá því, sem
verið hefir. Þau blöð, sem komið
hafa, hafa verið fjölrituð, meira
og minna sundurleit að efni og frá-
gangi öllum, enda þótt viss atriði
hafi verið ríkjandi í þeim öllum.
Hér er gerð tillaga um form, sem
ætti að geta verið slíku tímariti
hentugt; nokkur fjölbreytni, án
sundurleitni; efninu settir vissir
rammar, sem þó eru mjög víðir,
að minnsta kosti nægilega víðir
til þess að tryggja margbreytileika
en forðast endurtekningar í fram-
tíðinni.
Ritnefndin vonar þó, að henni
berist mikil og skörp kritik á formi,
efnisvali og frágangi, því að það
myndi sýna áhuga, umhugsun og
skilning á markmiði tímaritsins.
Verði ykkur að góðu!