Ferðir


Ferðir - 01.04.1942, Blaðsíða 6

Ferðir - 01.04.1942, Blaðsíða 6
4. blaðsiða [Ferðír hann heyrir? Eru það ekki einmitt þau, sem eru tónar vetrarkyrrðarinnar? En friðurinn er ekki eilífur. Þegar Kári rumskar er hann úti og þá vaknar hinn dreymni maður til baráttu upp á líf og dauða við hrxð og frost. Þá finnur hann sinn eigin mátt, berst og berst og þá finnur hann það ef til vill eftir sigraða þraut, að hann er þess verðugur og megnugur að byggja land íssins og sjá og heyra töfra íss og snævar. Glerárdalur er auðugur af slíkum töfrum og bíður allra, sem þeirra vilja njóta, og ekki sízt þeirra, sem næst honum búa. Það er Akureyringa að nema þennan dal og njóta hans. Enginn bær á landinu á meiri gimstein að tröllslegri náttúru, víðáttumiklu útsýni, fjallatign og heimkynni vetraríþrótta. En dalurinn er enn ekki nema hálfnuminn. Frá skíðaskálunum er naumast hægt að ná nema til yzta hluta dalsins og fjallanna við hann. Eftir er þá dalbotninn með aðaljöklunum og hæstu fjöllunum. Einkum er að geta Kerlingar, sem er hæsta fjall á Norður- landi. Af henni getur að líta eitthvert stórfenglegasta út- sýni, sem til er á landinu. Þaðan sér vestur yfir Skaga- fjörðinn, norður yfir allan hinn hrikalega, sundurskorna fjallaklasa milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar, austur á Jökulsprunga í botni Glerárdals. Mynd 2. Foto E. Siéurfíeirsson.

x

Ferðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.