Ferðir


Ferðir - 01.04.1942, Side 8

Ferðir - 01.04.1942, Side 8
6. blaðsíða [Ferðir skornar af djúpum giljum, sem eru leiður Þrándur í Götu ferðamannsins. Eyrarnar hækka smámsaman inn á móts við Tröllin, en þar hafa þær grafizt undir feikilegu fram- hruni úr Lambárdalsöxl og hækkar áin þar ört upp í hér um bil 700 m. hæð. Þar taka aftur við sléttar grundir og eyrar inn í dalbotn. Austan við mynni dalsins eru Súlumýrar, sem áður var getið. Af þeim má ganga beint af augum á Súlur. Frá Súl- um (Nyrðri- og Syðri-Súlur, 1144 m. og 1208 m.) liggur tindóttur hryggur til suðvesturs og eru helztu tindarnir Litli- og Stóri-Krummi, Bóndi (1361 m.) og Þríklakkar (1371 m.). Eftir hryggnum er greiðfær leið bæði lausfóta og á skíðum. Austur af hryggnum má fara hvar sem vill niður í Eyjafjörðinn, en sumstaðar er allbratt. Vestur af hryggnum ofan í Glerárdalinn má hinsvegar telja illfært nyrst á löngum kafla, sökum hamra, en hlíðar taka við fyrir sunnan. Utsýni af Súlum og öðrum tindum á þessum hrygg er aðallega til austurs, til Mývatnsfjalla og niður í Eyjafjörð- inn svo og inn Glerárdal. Hinsvegar byrgja hærri fjöll all- mjög útsýnið. Við suðurenda hryggjarins er komið að Kerlingu, sem gnæfir upp yfir hann með þverhníptum hömrum. Norðan úr Kerlingu skagar Lambárdalsöxl inn í Gler- árdalinn. Hún er fremst 1050 m., en efst 1324 m., þar sem djúpt skarð skilur hana frá Kerlingu. Milli axlarinnar og þríklakka er Lambárdalur, en í hon- um liggur skriðjökull, sem er 3,5 km. á lengd. A vetrum er jökullinn venjulega hulinn snjó svo og einnig í venju- legum sumrum. En tvö síðastliðin sumur hefir allt ný- snævi horfið af þessum og öðrum jöklum á Glerárdal og kemur þá í ljós blágrænn ísinn, sundurskorinn af botn- lausum sprungum. A neðri helming jökulsins liggur þykk stórgrýtisurð, sem hægt og hægt hefir borizt þangað fiá hömrum Kerlingar, en þessir og aðrir samskonar hamrar á dalnum eru einmitt verk jöklanna.

x

Ferðir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.