Ferðir - 01.04.1942, Síða 8
6. blaðsíða
[Ferðir
skornar af djúpum giljum, sem eru leiður Þrándur í Götu
ferðamannsins. Eyrarnar hækka smámsaman inn á móts
við Tröllin, en þar hafa þær grafizt undir feikilegu fram-
hruni úr Lambárdalsöxl og hækkar áin þar ört upp í hér
um bil 700 m. hæð. Þar taka aftur við sléttar grundir og
eyrar inn í dalbotn.
Austan við mynni dalsins eru Súlumýrar, sem áður var
getið. Af þeim má ganga beint af augum á Súlur. Frá Súl-
um (Nyrðri- og Syðri-Súlur, 1144 m. og 1208 m.) liggur
tindóttur hryggur til suðvesturs og eru helztu tindarnir
Litli- og Stóri-Krummi, Bóndi (1361 m.) og Þríklakkar
(1371 m.). Eftir hryggnum er greiðfær leið bæði lausfóta
og á skíðum. Austur af hryggnum má fara hvar sem vill
niður í Eyjafjörðinn, en sumstaðar er allbratt.
Vestur af hryggnum ofan í Glerárdalinn má hinsvegar
telja illfært nyrst á löngum kafla, sökum hamra, en hlíðar
taka við fyrir sunnan.
Utsýni af Súlum og öðrum tindum á þessum hrygg er
aðallega til austurs, til Mývatnsfjalla og niður í Eyjafjörð-
inn svo og inn Glerárdal. Hinsvegar byrgja hærri fjöll all-
mjög útsýnið.
Við suðurenda hryggjarins er komið að Kerlingu, sem
gnæfir upp yfir hann með þverhníptum hömrum.
Norðan úr Kerlingu skagar Lambárdalsöxl inn í Gler-
árdalinn. Hún er fremst 1050 m., en efst 1324 m., þar
sem djúpt skarð skilur hana frá Kerlingu.
Milli axlarinnar og þríklakka er Lambárdalur, en í hon-
um liggur skriðjökull, sem er 3,5 km. á lengd. A vetrum
er jökullinn venjulega hulinn snjó svo og einnig í venju-
legum sumrum. En tvö síðastliðin sumur hefir allt ný-
snævi horfið af þessum og öðrum jöklum á Glerárdal og
kemur þá í ljós blágrænn ísinn, sundurskorinn af botn-
lausum sprungum. A neðri helming jökulsins liggur þykk
stórgrýtisurð, sem hægt og hægt hefir borizt þangað fiá
hömrum Kerlingar, en þessir og aðrir samskonar hamrar
á dalnum eru einmitt verk jöklanna.