Ferðir


Ferðir - 01.04.1942, Síða 10

Ferðir - 01.04.1942, Síða 10
og vestur af þessum hæðadrögum sér ofan í botn Glerárdals og er það hin fegursta sjón. í brúnunum fram undan liggja jöklarnir, sumstaðar undir svörtum stand- Efst til vinstri: Jökulport við upptök Glerár. I miðju: Ttöllahyrna o£ Tröllaíjall. — Tröllin bera í Hyrnuna. Neðst til hægri: Annað Tröllið í T röllafjalli. Foto E. Sigurgeirsson. björgum, og steypast þaðan niður í dalinn, sundurrifnir af gínandi sprungum. En allt sem niður fellur gleypir meginjökullinn, sem flæðir út yfir dalbotninn og sígur það- an niður í dalinn. Fyrir botni dalsins eru rúmlega 1400 m. háar eggjar og taka við snarbrattar hlíðar og klettabelti niður í þriðja Lambárdalinn, þegar upp á þær er komið. Yfir þessar brúnir er þó sæmileg skíðaleið út í Oxna- dalinn hjá Þverá. Yfir í Bægisárdalinn, með stærsta jökl- inum hér um slóðir, er hinsvegar upp að fara aflíðandi brekkur. Þegar litið er nú út eftir Glerárdal norðan megin, verð- ur fyrst fyrir rúmlega 1400 m. hár tindaklasi, að mestu umgirtur standbjörgum dalsmegin. Yzt heitir Tröllahyrna og blasir hún við frá Akureyri, en að öðru leyti er mér ekki kunnugt um örnefni. Fjallganga er engum sérstökum erf- iðleikum bundin ef lagt er upp úr botni Glerárdals. Afast við tindaklasann er Tröllafjall; það er flatt ofan, 1471 m. á hæð, og að mestu girt mörg hundruð metra háum standbjörgum. Af því er álíka víðsýnt og af Kerl- ingu, en þó skyggir Kerling nokkuð á útsýnið til suðurs. Austur úr Tröllafjalli liggur örmjó egg, en framan við hana, í sléttri hlíð, standa tveir 40 m. háir drangar, sem Tröllin heita. Naumast munu þau kleif, en þó er ekki vitað að neinn hafi freistað uppgöngu. Nokkru norðan við Tröllin liggur hryggur upp undir brún Tröllafjalls, og má fara eftir honum upp á fjallið. Onnur leið liggur norðar og er þar eingöngu upp að fara aflíðandi hlíðar. Þriðja leiðin er upp frá Bægisárjökli. Fjórða leiðin væri hugsanleg upp eggjarnar ofan við Tröllin, en þó eingöngu síðsumars í klettamennskuskyni (alpinis- mus). Við Glerána, beint niður und- an Tröllunum, eru sléttar grundir, ca. 700 m. yfir sjó. Lækur rennur þar niður frá fjöllunum. Beggja megin árinn- ar eru hmar glæsilegustu brekk- ur og tiltölulega stutt að ganga, hvort sem er á Tröllafjall, Kerl-

x

Ferðir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.