Ferðir - 01.04.1942, Blaðsíða 11
og vestur af þessum
hæðadrögum sér ofan
í botn Glerárdals og
er það hin fegursta
sjón. í brúnunum
fram undan liggja
jöklarnir, sumstaðar
undir svörtum stand-
Efst til vinstri: Jökulport við upptök
Glerár.
I miðju: Ttöllahyrna o£ Tröllaíjall. —
Tröllin bera í Hyrnuna.
Neðst til hægri: Annað Tröllið í
T röllafjalli.
Foto E. Sigurgeirsson.
björgum, og steypast þaðan niður í dalinn,
sundurrifnir af gínandi sprungum. En allt
sem niður fellur gleypir meginjökullinn,
sem flæðir út yfir dalbotninn og sígur það-
an niður í dalinn.
Fyrir botni dalsins eru rúmlega 1400 m.
háar eggjar og taka við snarbrattar hlíðar og
klettabelti niður í þriðja Lambárdalinn,
þegar upp á þær er komið. Yfir þessar
brúnir er þó sæmileg skíðaleið út í Oxna-
dalinn hjá Þverá. Yfir í Bægisárdalinn, með stærsta jökl-
inum hér um slóðir, er hinsvegar upp að fara aflíðandi
brekkur.
Þegar litið er nú út eftir Glerárdal norðan megin, verð-
ur fyrst fyrir rúmlega 1400 m. hár tindaklasi, að mestu
umgirtur standbjörgum dalsmegin. Yzt heitir Tröllahyrna
og blasir hún við frá Akureyri, en að öðru leyti er mér ekki
kunnugt um örnefni. Fjallganga er engum sérstökum erf-
iðleikum bundin ef lagt er upp úr botni Glerárdals.
Afast við tindaklasann er Tröllafjall; það er flatt ofan,
1471 m. á hæð, og að mestu girt mörg hundruð metra
háum standbjörgum. Af því er álíka víðsýnt og af Kerl-
ingu, en þó skyggir Kerling nokkuð á útsýnið til suðurs.
Austur úr Tröllafjalli liggur örmjó egg, en framan við
hana, í sléttri hlíð, standa tveir 40 m. háir drangar, sem
Tröllin heita. Naumast munu þau kleif, en þó er ekki vitað
að neinn hafi freistað uppgöngu.
Nokkru norðan við Tröllin liggur hryggur upp undir
brún Tröllafjalls, og má fara eftir honum upp á fjallið.
Onnur leið liggur norðar og er þar eingöngu upp að fara
aflíðandi hlíðar. Þriðja leiðin er upp frá Bægisárjökli.
Fjórða leiðin væri hugsanleg
upp eggjarnar ofan við Tröllin,
en þó eingöngu síðsumars í
klettamennskuskyni (alpinis-
mus).
Við Glerána, beint niður und-
an Tröllunum, eru sléttar
grundir, ca. 700 m. yfir sjó.
Lækur rennur þar niður frá
fjöllunum. Beggja megin árinn-
ar eru hmar glæsilegustu brekk-
ur og tiltölulega stutt að ganga,
hvort sem er á Tröllafjall, Kerl-