Ferðir - 01.04.1942, Blaðsíða 18
16. blaðsíða
[Ferðir
og ódýrustu skemmtiferðirnar, sem hér er kostur á. Ferðirnar voru
þessar:
27. apríl: A Kerlingu. Þáttakendur 9.
11. maí: A Vindheimajökul. Þátttakendur 14.
7.—8. júní: I Reykjahverfi. Þátttakendur 16.
21.—22. júní: I Mývatnssveit. Þátttakendur 13.
28. —29. júní: Til Hóla í Hjaltadal. Þátttakendur 18.
12. —13. júlí: Út í Fjörðu. Þátttakendur 8.
12.—17. júlí: Til Austurlands. Þátttakendur 37.
2.—4. ágúst: I Herðubreiðarlindir. Þátttakendur 22.
2.—7. ágúst: I Öskju. Þátttakendur 5.
Vegagerð á Vatnahjallavegi.
Haldið var áfram vegagerð á Vatnahjallavegi, undir umsjá Ferða-
nefndar. voru alls farnar 10 vinnuferðir og samtals unnið í 1157
stundir. Var vinna sú að miklu leyti gefin. Ruðningi er nú að mestu
lokið upp á fjallsbrún og hefir þegar verið ekið þangað á bíl. Þá
hefir nokkuð af veginum verið malborið, en allmikið verk er enn eft-
ir við malarburð, svo að vegurinn verði tryggur. Vegagerð þessi nýt-
ur mikilla vinsselda og hafa gefizt til hennar í peningum 291 króna.
Þá hefir fjallvegasjóður þegar veitt til hennar kr. 500 og heitið öðr-
um kr. 500 á þessu ári. Verður að vona að á þessu sumri verði unnið
að fullgera veginn upp á brúnina, hvað sem síðan tekst að ryðja
áleiðis inn á fjöllin.
Blaðið
hefir orðið í síðbúnara lagi, en þess er að vænta, að félagsmönnum
þyki sú bið goldin, með því að það er nú vandaðra en fyrr, prýtt
ágætum myndum, en einmitt útvegun myndamóta hefir tafið út-
komu þess. Vill stjórnin minna félagsmenn á að hafa ferðaáætlunina
handbæra hvenær, sem til þarf að taka.
Frá F. í.
hefir stjórn F. F. A. borizt tilkynning um að árstillag hækki á
þessu ári upp í kr. 10.00. Er þess að vænta að félagsmenn bregðist
vel við hækkun þessari.
PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR