Reykjanes - 01.11.1959, Side 4

Reykjanes - 01.11.1959, Side 4
4 REYKJANES Nóvember 1959 Ljósin í kirkjugarðinn. Eins og að undanförnu mun Rafveita Keflavíkur aðstoða fólk, sem vill koma fyrir ljós- um á leiðum vina sinna og vandamanna í kirkjugarðinum. Þeir, sem hafa áhuga fyrir að notfæra sér aðstoð Rafveit- unnar, þurfa sem fyrst að hafa samband við Harald Magnús- son hjá Rafveitunni.. Simi 39 og heimasími 134. TómsÉundaiója unglinga er nú tekin til starfa. Hinn 19. október hófust námskeið í bast- tága-, filt- og perlusaum. Skák- flokkar eru starfandi og flokkar í flugmódelsmíði og frjálsri módelsmíði. Að þessari starfsemi standa ýms félög hér í bæ. Námskeiðin eru nú fullsetin og taka um 100 unglingar þátt í þeim. Mikil nauðsyn er að fá aukið húsrými og aukna starfs- krafta til þess að fullnægja eftirspurn og aðsókn. I ráði er að reyna eftir áramótin að bæta við nýjum starfsgreinum tóm- stundaiðjunnar. Sudurnesjafélagid í Reykjavík er nú að vinna að útgáfu bókar um Suðurnes- in, og hafa þar margir lagt hönd að verki við að skrifa um byggðir Suðumesja. — Ekki þarf að efa að þar er á ferð- inni Jólabók Suðurnesja. hefur beðið blaðið að flytja landsfólkinu kveðju guðs og sína. — Á liðnu sumri gerði Guðmundur víðreist og spilaði á hörpu sína fyrir böm og full- orðna. Guðmundur átti eins og fleiri afmæli á þessu ári — 48 ára — og er því ungur að ámm og í anda. Snæland sendir nú jóla- og nýjársóskir til allra vina sinna. Malbikun Faxabrautar og Hringbraut- ar tókst með miklum ágætum. Ekki mátti tæpara standa vegna veðurs, því að segja má að ekki hafi óveður bráð af síðan verk- inu var lokið. Verður nú unn- ið að því að fullgera og ganga frá götunum, sem bikaðar vom eftir því sem veður og aðrar aðstæður leyfa. Næsti áfangi í malbikun verður Tjarnargata og líklega Vatnsnesvegur. Tjarnargatan þarf mikinn undirbúning, bæði þarf að rétta halla götunnar og leggja í hana ný holræsi, því að gömlu ræsin voru lögð með svo lítilli framsýni að þar þarf vemlega úr að bæta. GAMLA GEITIN SEGIR: Fraiiisóknarincim héldu sigurhátið í Ungó — laugardaginn næstan eftir kosn- ingar. Fáliðað var á hátíðinni — um 100 manns —■ og haft er fyrir satt, að Jón Skaftason hafi gleymt að mæta, þangað til ruggað var við honum og hann minntur á hátíðina. — ,,Þeim gleymist oft . . .“ Talfð cr að Vilborg Auðuns hafi litla von um að komast á þing. — Finnbogi Rútur hvað vera með hressasta móti. LcidréÉting: Það er hvergi tekið fram í skuldbindingu Templara, að þeir megi ekki aka fullum mönnum á kosningadag. Það telst því ekki brot og þarf ekki endurreisnar við. Hver er Krisiján smali? Símanúmer hans finnst með því að leggja saman aldur, fæð- ingarmánuð, bílnúmer og bæta svo 11 við. Ráðlegt er þeim, sem fengu Fram- sóknarloforð fyrir kosningarn- ar, en ekki afgreiðslu, að rukka snarlega inn. — Það er ekki seinna vænna. SKRILSÆÐI Sérleyfisbifreiðar Keflavíkur annast flutninga á starfsfólki Vamarliðsins á milli Keflavík- ur og flugvallarins og hafa gert það síðan í marzbyrjun 1958. Þegar þessir flutningar hóf- ust var opnað biðskýli í vestur- enda stöðvarinnar til afnota fyrir farþega flugvallarbílanna. Meðan aðrir höfðu þessa flutn- inga með höndum urðu farþeg- ar að bíða úti, hvernig sem veð- ur var. Flugvallarfarþegar kunnu vel að meta þessa við- leitni Keflavíkurbílanna, og var kappkostað að hafa biðskýli þetta snyrtilegt og þægilegt svo sem kostur var á. Ekki er allt svo auðvelt sem sýnist. Oft kom til álita, hvort stöðin neyddist ekki til að loka þessu biðskýli fyrir fullt og allt, vegna skemmdarverka ungl- inga og sóðalegrar umgengni þeirra — en það voru ekki far- þegar bílanna, sem áttu hlut að máli — heldur unglingar, sem gerðu sér það til skemmt- unar að sóða biðskýlið svo út, að það var ekki þekkjanlegt sem hús að kvöldi, þótt þrifið væri á hverjum morgni. Veggir vom krassaðir út með nöfnum, klámi í myndum og orðum og alls konar sóðaskap, gólfið var fullt af grjóti og drasli, stólar og bekkir brotið og skitið út — og ekki ósjaldan gengu þessir gestir örna sinna í hornum og á miðju gólfi. Undanfarna daga hefur þessi skrílsháttur færzt í aukana, svo að nú virðast ekki horfur á öðru en að loka verði biðskýl- inu alveg og bitnar það að vísu ekki á skrílnum, heldur farþeg- unum, sem hefja ferðir sínar klukkan hálf sex að morgni og til 12 á kvöldin. Stöðin mun reyna að leysa vanda farþeg- anna á annan hátt, þar sem skemmdaræði unglinganna nær nær ekki til. Annar þáttur alvarlegur er einnig í þessu skemmdaæði. Það er orðið talsvert algengt, að bökin á öftustu stólunum í Séð inn í biðskýlið. bílunum séu hreinlega skorin úr, aðallega í þeim bílum, sem skemmdaskríllinn og í biðskýl- annast flutningana á flugvöll- inn og er þar að verki sami inu. Fullorðið fólk verður að hjálpa til með að ná þessum skemmdavörgum, bókstaflega að líta eftir þessum lýð, sem á óskiljanlegan hátt fær að flækj- ast með bílunum fram og aftur gegnum „passa-hliðið“ — mað- ur skyldi halda, að eftirlitið væri þar í lagi! Þjónusta bifreiðanna er vel af hendi leyst og farþegar eru ánægðir með hana, — en þetta skemmda- og skrílsæði verður að stöðva —■ til þess er leitað aðstoðar farþeganna, sem nota bílana, og annarra, sem kunna að verða varir við skrílinn að verki. Þcééíi cru ||óóar barnaliækur. sciib kuina Ú4 FYH1H •lOL. — Kaupió aócins það liczÉa, scm völ cr á.

x

Reykjanes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/1890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.