Reykjanes - 01.04.1970, Síða 6

Reykjanes - 01.04.1970, Síða 6
6 REYKJANES SEFIIR ÞÚ MÍM.... Framsóknarmenn hér í Kefla vík virðast hafa vaknað heldur betur af sínum langa Þyrnirósar- svefni, og eins og menn, sem sofið hafa of lengi, hafa þeir allt á hornum sér, eru meir en lítið úrillir. Hvar sem þeir líta, er allt illa gert og allt ómögulegt, þeir hefðu getað gert allt betur sjálf- ir. Meðan þeir sváfu, hefur margt og mikið gerzt, sem að sjálfsögðu virðist hafa farið fram hjá þeim. Gleggsta dæmi þessa eru tvö nýútkomin blöð frá þeim. í því fyrra láta fram- bjóðendur gamminn geysa og opna sig fyrir háttvirtum kjós- endum og lofa þeim gulli og grænum skógum, ef þeir vilja gefa þeim atkvæði sitt í komandi kosningum . Ef ég væri ríkur Það fer ekki hjá því, að manni detti í hug hið vinsæla lag úr „Fiðlaranum á þakinu“: „Ef ég væri ríkur“. Rétt er að líta aðeins á það, sem þessir háttvirtu frambjóðend- ur hafa að segja. Fyrsti maður listans telur gleggsta dæmið um lélega stjórn bæjarins vera skulda söfnun. Aðeins neðar á sömu síðu hefur fimmti maður listans orðið, maður, sem verið hefur bæjarfulltrúi flokksins á liðnu kjörtímabili. Hans aðal áhuga- mál er að auka skuldir bæjarins um tugi milljóna króna með því að kaupa allt landið, sem bærinn stendur á. Hann nefnir ekki, hvar taka eigi þetta fé, sér enga aðra lausn á þessu betri en þá, að Framsóknarmenn nái meiri- hlutaaðstöðu og þar með sé mál- ið leyst. Handahófskenndur fjórmagnsaustur Milli þessara ágætu manna lætur þriðji maður listans Ijós sitt skína. Er þar um að ræða fyrrverandi íþróttamann, sem vafalaust er ekki búinn að gleyma þeirri aðstöðu, er hann og félagar hans áttu við að búa, þá er þeir voru upp á sitt bezta. Sú glæsilega aðstaða, sem núver- andi íþróttamönnum hefur verið sköpuð hér, er þó í hans augum handahófskenndur fjármagnsaust ur til íþróttahreyfingarinnar. Að staðan til knattspyrnukeppni hér áður var svo léleg, að vart var hægt að halda hér keppnis/eiki, enda urðu Keflvíkingar að flýja með sína leiki til Njarðvíkur. Nú er aftur á móti svo komið, að þurft hefur að flytja kappleiki frá Reykjavík til Keflavíkur vegna þess að aðstaða var talin betri hér, en það var með tilkomu nýju flóðlýsingarinnar. Þetta kallar íþróttaunnandinn handa- hófskenndan fjármagnsaustur til íþróttahreyfingarinnar. Sé nú rennt augum nokkru aftar yfir listann, ber margt skringilegt fyrir augu. 10. maður lisaans telur ekki mega lengur „trassa eldhúsið í Gagnfræða- skólanum.“ Fáir vita betur en hann eða eiga að vita betur, þar sem viðkomandi er í fræðsluráði Keflavíkur, að stöðugt er og hef- ur verið unnið við innréttingu í nýju álmu skólans, og á næsta hausti verður eldhúsið tilbúið tii notkunar, og munu Framsóknar- menn þar engu um breyta, enda er verkið þegar langt komið. Þessi frambjóðandi nefnir það einnig, að þegar sé hafinn undir- búningur næstu viðbyggingar skólans, en telur jafnframt rétt að cftirláta Framsóknarmönnum verkið. Fegrun Fjórtándi maður listans telur lítið hafa verið gert af hálfu bæj- arins varðandi fegrun. Hvert horf ir maðurinn, er hann lítur út um stofugluggann sinn? Fyrir tveim til þrem árum sá hann þar urð og grjót, sem reyndar er íslend- ingum ekki óalgeng sjón. Nú er holtið fyrir framan hann orðið iðagrænt og slétt, og vatnsból bæjarins heldur til prýði en hitt. Núverandi bæjarstjórnarmeiri- hluti getur hrósað happi yfir því að hafa getað ráðið ötulan og hæfan garðyrkjumann til starfa fyrir bæinn, mann sem metur starf sitt meir en allt annað. Á- rangur af starfi hans hefur líka ekki látið á sér standa, þetta verða allir bæjarbúar að viður- kennna, hvar í flokki, sem þeir standa og gera það líka flestir sem hafa augun opin. Undir hans stjórn hafa bæjarbúar flykkzt saman og sáð í uppblásið land við bæinn, og í þeim hópi hafa meir að segja sézt Framsóknar- menn. Æskan og íþróttir Fimmtándi maður listans kvartar um að lítið sé gert fyrir æsku bæjarins. Honum er einnig ráðlegt að líta út um stofu- glugga sinn, hann mun tæpast geta gert það nema að sjá ungl- inga að leik. Hann sér þrjá í- þróttavelli út um gluggann hjá sér, handboltavöll, grasvöll einn þann bezta á landinu og góðan flóðlýstan malarvöll. — Hann hefur kannski blindazt af lýs- ingunni. Átak í gatnagerð Átjándi maður listans slær svo botn í þetta harmakvein, með því að segja að geysilegt átak þurfi að gera hér í gatna- gerðarmálum. Vissulega eru það orð að sönnu hjá manninum, en vafasamt er hvort Framsóknar- menn séu þeir réttu til að fram- kvæma það. Undir forystu Sjálf- stæðismanna hefur þegar verið gert stókrostlegt átak í þessum málum og fáir vita það betur cn einmitt 18. maður á lista fram- sóknar. Hann hefur nú fengið í seinna blaði Framsóknar- manna vekja svo athygli tveir þættir. Skal þar fyrst minnast á „Til athugunar“. Segir þar frá ræðuhöldum Framsóknarmanna á bæjarstjórnarfundum á síðast- liðnum 4 árurn. í þessu sam- bandi er rétt að kjósendur taki „Til athugunar“ hvernig þessir menn eyddu tíma bæjarstjórnar, og er hér eitt dæmi: Fyrsti mað- ur á lista Framsóknarmanna hef ur átt sæti í bæjarstjórn í all mörg ár, og er af því látið hve vel hann fylgdist með málum þar.. Ekki er langt síðan bæjar- stjórn ræddi um brottflutning tveggja húsa við Túngötu. Áður en Hilmar gæti tekið þátt í at- kvæðagreiðslu um málið, spurð- ist hann fyrir um það, hvort at- hugað hefði verið hvað eigend- ur húsanna vildu fá fyrir þau. Bceði voru þessi hús þcí þegar í eigu bœjarsjóðs, eftir samþykki bœjarstjórnar um kaup á húsun- um í annarri grein eru taldar upp tillögur Framsóknarmanna í bæj arstjórn á síðustu 4 árum, Kenn- ir þar margra grasa, og sumra allfurðulegra. Þarna lögðu þeir til, að bæjarstjórn keypti Kefla- vík hf, og ætti að taka að sér vcrk ríkisstjórnar við jarðhita- rannsóknir, eða veitti ríkissjóði styrk til þeirra; breytti umferðar- reglum Reykjavíkur. Einnig lagða olíumöl allt í kring um hús sitt og hellulagðar gangstéttir. Þcssi maður þarf því ekki langt að líta, aðcins út um gluggann sinn. Það er sama sagan hér og annars staðar, Framsóknarmönn um er ráðlegt að líta í kringum sig og út um gluggann sinn, þá komast þeir vart hjá því að sjá það sem hefur verið gert og er að gerast. Yfir öllu þessu úrillskutali og skeytingarleysi um þau mál sem þessir menn hafa verið kjörnir til að sinna, er ekki hægt annað en velta því fyrir sér hvort Fram sóknarmenn séu svo úrillir vegna eigin getuleysis, eða vegna þess hve mikið hefur verið fram- kvæmt. Því vissulega komast þeir ekki hjá að sjá það, ef þeir líta út um gluggann sinn. lögðu þeir til, við umræður um sömu fjárhagsáætlun, tillögurum samdrátt í tekjum bæjarsjóðs og aukningu útgjalda hans: Jafn- framt fluttu þeir >rœðu um nauð- syn á rtiðurgreiðslu skulda hans, en mismunur, sem með tillögum þeirra yrði, skyhli greiddur með lántökum! Einnig benda þeir þar, sem oft áður á áberandi sinnuleysi þeirra um bæjarmál og framkvæmdir bæjarins. Þeir kvarta nefnilega undan því, að ekki hafi verið framkvæmdar tillögur þeirra, sem bæjarstjórn hafði samþykkt. Þessu til áréttingar telja þeir upp tillögur, sem þegar hafa kom- izt í framkvœmd, svo sem t. d. um sparkvelli fyrir yngstu drengina, o fl. í þessum tveim blöðum sem framsókn hefur gefið út nú í maí, hefur berlega komið í Ijós stefnuleysi flokksins: Hinir 18 frambjóðendur eiga ekkert sam- eiginlegt áhugamál, og enga stefnuskrá hafa þeir birt, en tak- mark flokks þeirra hér er alveg þveröfugt við takmark framsókn ar í Reykjávík. Hér skal mciri- hluti eins flokks leysa vanda- mál öll; en í Reykjavík teljaþeir stórkostlega hættu liggja í inciri- hluta eins flokks. Minnir þetta óneitanlega á hina alrœmdu Já Já — Nei Nci stefnu flokksins í landsmálum. Spor Framsóknar í bœjarstjórn

x

Reykjanes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/1890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.