Vesturbæjarblaðið - sep. 2023, Síða 4
Guðmundur Pétursson lögfræðingur og knattspyrnumaður til margra
ára spjallar við Vesturbæjarblaðið að þessu sinni. Tilefnið er að hann
hefur sent frá sér bók þar sem hann segir frá mörgu markverðu sem
á daga hans hefur drifið – einkum á sviði knattspyrnu en einnig uppeldi og
atvinnulífi. Guðmundur hefur alið aldur sinn í Vesturbænum lengstan hluta
ævi sinar. Hann var sem barn á Sólvallagötu og síðar í Granaskjóli þaðan sem
nokkrir metrar eru yfir á KR svæðið. Aldrei var því spurning um að hann yrði
KR-ingur eins og margir ungir menn í Vesturbænum.
Guðmundur kveðst fyrst muna eftir sér
sem barni á Sólvallagötu. Foreldrar sínir
hafi búið fyrstu árin á Hávallagötu en það
sé fyrir sitt minni. Fyrstu árin hafi þau búið í
kjallara á Sólvallagötunni en síðar flutt á efri
hæðina og verið þar til þau fluttu í Granaskjól
1957. Fótboltaáhuginn kviknaði snemma.
Guðmundur segir að Vesturbæjarstrákarnir hafi
aðallega verið í fótbolta á Landakotstúninu þótt
aðstaðan væri bágborin. Engin mörk og stangir
gerðar úr yfirhöfnum strákanna sem voru að
elta boltann.
Fyrsti boltinn
Guðmundur minnist fyrsta boltans sem hann
eignaðist. Hann hafi fengið hann í afmælisgjöf. Í
fótboltaleik á Landakotstúninu hafi boltinn eitt
sinn skoppað út á Túngötuna og orðið fyrir
bíl. Boltinn hafi sprungið með háum hvelli.
Bílstjórinn hafi heyrt hvellinn og komið út úr
bílnum. Hann hafi verið leiður og spurt hver
ætti boltann. Guðmundur kvaðst hafa gefið
sig fram með grátstaf í kverkunum. Bílstjórinn
hafi þá farið í vasa sinn og rétt sér einhverja
peninga sem hann fann þar. Þótt þeir hafi ekki
dugað fyrir nýjum bolta hafi þetta verið vel
gert hjá manninum. Skósmiður nokkur hafi
saumað boltann saman og hann verið notaður
það sem eftir var sumars. Guðmundur fór
snemma að leggja leið sína á róluvöllinn við
Hringbraut. Honum fannst hugur strákanna
á Sólvalla götunni fremur snúast um bogfimi
og bófahasar en fótbolta. Á róluvellinum léku
stákarnir sér meira í fótbolta. Hann rifjar upp
þegar hann týndist á sjöunda árinu og hafin var
leit að honum. Hann hafði þá farið út á KR völl
og gleymt sér þar langt utan þess svæðis sem
sex ára guttinn á Sólvallagötunni mátti fara.
Ákjósanlegur bardagastaður
Árið 1957 flutti fjölskyldan í Granaskjól eftir
að faðir hans hafi fengið úthlutað þar lóð ásamt
fjórum félögum sínum úr Stýrimannaskóla
num. Hann hafi fljótt kynnst mörgum á svipuðu
reki úr nýja Vesturbænum það er að segja
Vesturbænum vestan Hringbrautar. Hann segir
strákana hafa haft gaman af ýmum bardögum
auk fótboltans. Eitt húsanna við Granaskjól
var byggt aðeins síðar en hin. Þar hafi orðið til
ákjósanlegur bardagastaður fyrir strákana og
húsið verði „uppbókað“ næstum frá morgni til
kvölds. Granaskjólið var í eigu fjölskyldunnar
í tæp 60 ár eða þar til að Sigurður yngri bróðir
Guðmundar seldi það 2015.
Komust upp með að sleppa við
söngtímana
Þegar Guðmundur var að alast upp var
enginn sex ára bekkur. Skólaganga hans hófst
því í kjallara á Hringbrautinni hjá konu sem
hét Sigríður. Hann var því orðinn sæmilega
læs þegar hin eiginlega skólaganga hófst í sjö
ára bekk í Melaskóla. Þar þekkti Guðmundur
enga nema Sigurð Helgason sem síðar varð
forstjóri Flugleiða sem var sonur vinkonu
móður hans. Hann kynntist þó fljótlega fleirum
og kveðst hafa átt góða daga í Melaskóla.
Tilgreinir nokkrar sögur. Sumar af saklausum
strákapörum og einkum hvernig nokkrir
strákar reyndu að sleppa við söngtímana og
komust upp með það. Hagaskólinn tók við af
Mela skólanum. Fyrsta árið fengum við unga
kennslu konu. Nýlega komna frá námi og vorum
henni vægast sagt erfið. Árið efir tók Björn
Jónsson sem síðar varð skólastjóri við bekknum.
Versló var gæfuspor
Í Hagaskóla hafi þó verið lagður grundvöllur
að gæfuspori sem var að fara þaðan í Verslu
narskólann. Hann hafi valið Versló þótt sú leið
væri lengri en hin hefðbundna menntakólaleið.
Með henni hafi verið hægt að losna við land
sprófið sem sumum hafi reynst erfitt. Þá hafi
líka heyrst af nemendum sem voru að falla í
þriðja og jafnvel fjórða bekk í MR en slíkt verið
fátítt í Versló.
Vinmonopolet og Systembolgaet
Guðmundur minnist áranna í Verslunar
skólanum með hlýju. Hann minnist Jóns Gísla
sonar sem var skólastjóri á þeim tíma sem
ákaflega virðulegs manns. Hann lét nemendur
þéra sig þótt sá talsmáti væri að syngja sitt
síðasta hér á landi. Sigurður Ingimundar
son var stærðfræðikennari og kenndi einnig
eðlis og efnafræði. Hann var mikill krati og
sat á þingi fyrir Alþýðuflokkinn eins og dóttir
hans síðar en hún er Jóhanna Sigurðardóttir
fyrrum forsætisráðherra. Guðmundur segir
Sigurð stundum hafa verið utan við sig og
dæmi um það er að hann hafi einu sinni kveikt
sér í sígarettu í kennslustund. Hann minnist
Hermanns Gunnarssonar eða Hemma Gunn
sem skemmti legs félaga úr Verslunarskólanum
og síðar fótboltanum. Skemmtikrafturinn hafi
snemma vaknað í Hemma og ekki síður fótbol
tamenningin. Þeir áttu samleið þótt annar
væri í KR en hinn í Val. Í útskriftarförinni úr
verslunardeildinni til Skandinavíu lærðu menn
svo fljótt heitin á vínbúðunum Vinmonopolet í
Noregi og Systembolaget í Svíþjóð eins og ríkis
einkasölurnar hétu og heita enn. Engrar slíkra
kunnáttu þurfti við í Danmörku þar sem vín
fékkst í nær hverri matvöruverslun.
Í Íþróttakennaraskólann
Úr verslunardeildinni lá leiðin í lærdóms
deildina sem var undanfari stúdentsprófs.
Þegar kom að útskrift frá lærdómsdeildinni
var Guðmundur orðinn svo upptekinn í
fótboltanum að hann náði ekki að taka þátt
í allri gleðinni. Hann þurfti að spila með
KR. Eftir Verslunarskólann var Guðmundur
óákveðinn um framhaldið og valdi Íþrótta
kennaraskólann á Laugarvatni enda á fullri
ferð í fótboltanum. Hann segir námið í
Íþrótta kennaraskólanum hafi verið um margt
skemmti legt en talsvert öðruvísi en hann hafi
átt að venjast í Versló. Að því loknu eftir nokkra
umhugsun hóf Guðmundur nám í lögfræði
við Háskóla Íslands. Hann valdi það fremur
en viðskiptafræði.
Fara inn eftir og fá okkur eina
Guðmundur ólst upp í hefðbundinni fjöl
skyldu. Fimm voru í heimili. Foreldrar, tveir
synir og dóttir sem var í miðjunni. Hann segist
lítið hafa kynnst föður sínum framan af. Pétur
faðir hans var skipstjóri og mikið á sjó. Hóf
ungur sjómennsku á togurum. Sigldi síðar lengi
á olíuskipinu Kyndli. Hann sigldi yfir Atlants
hafið til Vesturheims á árum síðari heims
styrjaldarinnar. Hann skrifaði dagbækur frá
þeim tíma og lánaði Guðmundur skólabróður
sínum Þór Whitehed sagnfræðingi þær þegar
hann var að vinna að bókum sínum um Ísland
á þeim tíma. Guðmundur fór þó til sjós með
honum 17 ára. Segist þá hafa náð að kynnast
honum betur og vinátta þeirra haldist allt þar
til faðir hans féll frá. Hann segir sögu frá fyrri
kynnum þeirra. Á fjórða ári hafi hann farið
með föður sínum niður í Slipp þar sem skipið
Skeljung ur var í viðgerð. Hann hafi heilsað upp
á karlana sem voru að vinna þar og síðan sagt
að nú værum við búnir að fá útborgað og hvað
ættum við þá að gera. Þá svaraði sá stutti að
„Fara inn eftir og fá okkur eina“. Vínbúðin var þá
á Lindargötunni.
Með konupiss í læknisskoðun
Guðmundur kann ýmsar sögur af föður
sínum og við leyfum honum að láta tvær fjúka.
Faðir hans var með sjónskekkju. Einhverju
sinni fór hann ungur maður á ball á Borginni.
Þar sá hann stúlku sem honum leist vel á. Að
sögn Guðmundar skellti hann í sig einum
tvöföldum og dreif sig síðan að bjóða stúlkunni
upp. En hún stóð ekki upp heldur sú sem sat við
hliðina á henni. Þetta var sem sagt mamma og
þau dönsuðu saman allt lífið. Hin er frá síðari
hluta lífsleiðarinnar. Hann átti að mæta með
þvagprufu á spítala vegna rannsóknar. Þá hafi
strákurinn komið upp í honum og hann fengið
tengdadóttur sína sem var ófrísk til þess að
pissa fyrir sig í glas. Hann fór með sýnishornið
úr konunni ásamt sínu eigin og fékk læknunum
það fyrst. Gaman hafi verið að sjá svipinn á
þeim þegar þeir hafi séð að hann var kominn
sex mánuði á leið. Hann hafi síðan rétt hitt
glasið fram og læknarnir tekið gríninu nokkuð
vel. Guðmundur minnst móður sinnar fyrir
að hafa verið sterki aðilinn í hjónabandinu.
Eins og títt var og er um sjómannskonur hafi
hún þurft að sinna ýmsum verkefnum heima
fyrir. Til dæmis að sinna öllu eftirliti þegar var
verið að byggja Granaskjólið. Hún hafi einnig
verið félagslynd og átt létt um mál. Staðið upp á
mannamótum og haldið tölur. Hún hafi einnig
verið mikill KRingur. Starfaði í skíðadeildinni
og var ein þeirra sem byggði fyrsta skíðaskála
KR í Skálafelli.
Kúarektor, mjólkurpóstur og bara
allt á Reykjum
Morguninn á Kaffi Örnu á Eiðistorgi leið of
fljótt. Kaffibollunum fjölgaði og klósettferðir
fóru að kalla á. Enn var þó mikið eftir enda
Guðmundur lifað fjölbreytta ævi. Einu er ekki
hægt að ganga fram hjá. Tenglum hans við
stórbýlið Reyki í Mosfellssveit. Guðmundur
var aðeins þriggja ára þegar móðir hans
veiktist af berklum og þá var um fátt annað
að ræða en hann færi til ömmu sinnar á
Reykjum. Hún var þá nýlega orðin ekkja og
fékk barnið nær óskipta athygli hennar. Jón
Guðmundsson stórbóndi á Reykjum og
frændi hans nýkominn frá námi í Bandaríkju
num hafði tekið að sér að sjá um búið. Hann
keypti síðar jörðina. Guðmundur segir að þetta
fólk, amma sín og Jón og Fríða kona hans á
Reykjum sé það fólk auk foreldra sinna sem
mestan þátt hafi átt í að koma sér til manns.
Jón á Reykjum stofnaði ásamt fleirum félagið
Hreiður um hænsnarækt og var það stærsta
hænsnabú landsins í sínum tíma. Jón hafði
lært hænsnarækt á námstíma sínum vestra.
Guðmundur hóf starfsferil sinn á Reykjabúinu
með því að gefa hænsnum, reka kýr í haga og
fara með mjólkina á hestakerru niður í Reyk
jalund. Starfsskyldur hans uxu með árunum og
hann sótti jafnan að fara þangað þegar hlé urðu
á skólagöngunni í Vestur bænum. Til dæmis
um jól og páska. Hefð var fyrir stóru jólaboði á
Reykjum á annan dag jóla og þangað mætti fjöl
skyldan úr Granaskjólinu og varð Guðmundur
alltaf eftir og kom ekki í bæinn fyrr enn skólinn
Vesturbæjarblaðið SEPTEMBER 2023
Guðmundur Pétursson lögmaður og knattspyrnumaður til margra ára.
4
Eiginkona Guðmundar er Þórunn Kristjánsdóttir
hjúkrunarfræðingur og eiga þau hvort þrjár uppkomnar dætur
frá fyrri hjónaböndum. Barnabörnin eru orðin 13. Guðmundur
kynntist Þórunni á Rauða ljóninu eftir að hafa verið einhleypur
í um áratug. Hann hafi verið í KR partýi kvöldið áður en lét Agga
vin sinn, Þórarinn Óskar Þórarinsson af Holtinu draga sig á
Ljónið. Þar voru kunningjar þeirra við hljóðfærin og Aggi tók
Elvisslagara með sínum hætti. Guðmundur kveðst hafa farið að
skima í kringum sig og komi auga á fallega konu sem sat með
kynsystrum sínum. Flestum eiginkonum hljómlistarmannanna.
Taldi sig ekki eiga mikla möguleika en bauð henni upp og hún
sagði já. Bæði fráskilin. Bæði Vesturbæingar. Bæði KR ingar og
þau hafa dansað saman síðan.
Ég hef alltaf verið Vesturbæingur
- Guðmundur Pétursson lögfræðingur og knattspyrnumaður til margra ára